Framlengir vopnahléið og herkvína Samúel Karl Ólason skrifar 21. apríl 2026 20:32 Í yfirlýsingu sinni gefur Bandaríkjaforseti til kynna að árásir gegn Íran geti hafist aftur með litlum fyrirvara, verði ekki af viðræðum. AP/Julia Demaree Nikhinson Donald Trump segist ekki ætla að skipa hernum að hefja á nýjan leik árásir á Íran þegar vopnahlé milli Bandaríkjamanna og Ísraela annars vegar og Írana hins vegar rennur sitt skeið á morgun. Hann segir að herkvínni gagnvart Íran verði þó haldið áfram.
Þetta segist Trump hafa ákveðið eftir beiðni frá forsætisráðherra Pakistan og með tilliti til mikillar sundrungar innan stjórnvalda í Íran. Hann segir að vopnahléið verði í gildi þar stjórnvöld í Íran hafi lagt fram einhverjar tillögur að viðræðum eða viðræðum ljúki eða verði hætt. Í færslu á Truth Social segist forsetinn einnig hafa skipað forsvarsmönnum hersins að vera í viðbragðsstöðu. Fyrr í dag sagðist Trump líklegur til að hefja árásir á nýjan leik á morgun. Til stóð að JD Vance varaforseti, Jared Kushner tengdasonur Trumps, og Steve Witkoff vinur forsetans og sérstakur erindreki hans, færu til Islamabad í Pakistan í dag. Þar áttu þeir að funda með embættismönnum frá Íran á morgun en svo virðist sem ekki muni verða af þeim fundi eða honum verði að minnsta kosti frestað. Íranir lýstu því yfir í dag að ekki væri búið að ákveða hvort þeir myndu taka þátt í viðræðunum og vísuðu til „óásættanlegrar“ hegðunar Bandaríkjamanna. Sjá einnig: Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ráðamenn í Pakistan eru sagðir í viðræðum við Írani og Bandaríkjamenn um stöðuna en eins og fram kemur hér að ofan segir Trump að Shehbaz Sharif, forsætisráðherra Pakistan, hafi beðið hann um að framlengja vopnahléið. Enn er lokað fyrir umferð skipa um Hormússund en lokunin hefur þegar haft mikil áhrif á fólk og hagkerfi víða um heim. Búist er við því að þau áhrif geti aukist mjög verði sundið lokað til langs tíma en um það fer um fimmtungur allrar olíu heims, auk mikils magns jarðgass og annarra aðfanga.
Bandaríkin Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Hernaður Donald Trump Ísrael Tengdar fréttir Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Ráðamenn í Íran virðast ekki enn hafa tekið ákvörðun um það hvort þeir senda fulltrúa til viðræðna við Bandaríkjamenn í Pakistan. Undirbúningur viðræðna er sagður standa yfir í Islamabad en JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, sem mun sækja viðræðurnar fyrir hönd stjórnvalda þar í landi, ku ekki vera lagður af stað. 21. apríl 2026 07:21 Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Ríkismiðlar í Íran greindu frá því í gærkvöldi að stjórnvöld í Tehran hefðu engar áætlanir uppi um að taka þátt í viðræðum við fulltrúa Bandaríkjanna í Pakistan. Nokkrum klukkustundum áður hafði Donald Trump lýst því yfir að sendinefnd landsins myndi ferðast til Islamabad í dag. 20. apríl 2026 06:47 Barist á hafi úti Íranir gerðu í kvöld drónaárás á bandarísk herskip, samkvæmt írönskum ríkismiðlum. 19. apríl 2026 22:40 Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira
Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Ráðamenn í Íran virðast ekki enn hafa tekið ákvörðun um það hvort þeir senda fulltrúa til viðræðna við Bandaríkjamenn í Pakistan. Undirbúningur viðræðna er sagður standa yfir í Islamabad en JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, sem mun sækja viðræðurnar fyrir hönd stjórnvalda þar í landi, ku ekki vera lagður af stað. 21. apríl 2026 07:21
Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Ríkismiðlar í Íran greindu frá því í gærkvöldi að stjórnvöld í Tehran hefðu engar áætlanir uppi um að taka þátt í viðræðum við fulltrúa Bandaríkjanna í Pakistan. Nokkrum klukkustundum áður hafði Donald Trump lýst því yfir að sendinefnd landsins myndi ferðast til Islamabad í dag. 20. apríl 2026 06:47
Barist á hafi úti Íranir gerðu í kvöld drónaárás á bandarísk herskip, samkvæmt írönskum ríkismiðlum. 19. apríl 2026 22:40