Viðskipti innlent

Ríkið fær tuttugu milljarða frá Lands­virkjun

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Hörður Arnarson er forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson er forstjóri Landsvirkjunar. Vísir/Vilhelm

Aðalfundur Landsvirkjunar samþykkti í dag tillögu stjórnar um 165 milljóna bandaríkjadala arðgreiðslu í ríkissjóð, sem á núverandi gengi er um 20 milljarðar króna. Samanlagður arður vegna rekstraráranna 2021 til 2025 nemur um 110 milljörðum króna.

Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá Landsvirkjun. Greint var frá því í febrúar að hagnaður af grunnrekstri Landsvirkjunar hefði numið tæplega 36 milljörðum króna í fyrra og fyrirhugað væri að leggja til arðgreiðslu í ríkissjóð upp á 165 milljarða bandaríkjadali.

Þá segir í tilkynningu að stjórn fyrirtækisins sé óbreytt. Formaður hennar er Brynja Baldursdóttir og aðrir stjórnarmenn eru Berglind Ásgeirsdóttir, Hörður Þórhallsson, Sigurður Magnús Garðarsson, og Þórdís Ingadóttir.

Varamenn í stjórn Landsvirkjunar eru Elva Rakel Jónsdóttir, Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, Pétur Már Halldórsson, Styrkár Jafet Hendriksson og Stefanía Nindel.

Aðalfundurinn staðfesti skýrslu fráfarandi stjórnar og reikning fyrir liðið reikningsár, auk þess að samþykkja tillögu stjórnar um arðgreiðslu til eigenda. Arðgreiðslur Landsvirkjunar eru ákveðnar á grundvelli arðgreiðslustefnu fyrirtækisins.

Deloitte ehf. var kosið endurskoðunarfyrirtæki Landsvirkjunar. Auður Þórisdóttir endurskoðandi, var kjörin utanaðkomandi nefndarmaður í endurskoðunarnefnd fyrirtækisins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×