Göngum til góðs fyrir íslenska náttúru Jóna Bjarnadóttir skrifar 22. apríl 2026 08:00 Við Íslendingar erum auðug af náttúruauðlindum og höfum nýtt náttúruna okkur til hagsbóta. Við njótum þeirra forréttinda að nýta vatnsafl, jarðvarma og vind til orkuvinnslu og erum því minna háð jarðefnaeldsneyti en flestar aðrar þjóðir. Landsvirkjun hefur alltaf unnið að uppbyggingu orkuinnviða með virðingu fyrir náttúru landsins að leiðarljósi, vandað til verka þannig að eftir er tekið samhliða því að stuðla að öflugu atvinnulífi víða um land og þeim lífsgæðum sem við flest lítum á sem sjálfsögð. Fyrri kynslóðir tryggðu okkur græna orku með framsýni sinni og við erum stolt af því að tryggja hag komandi kynslóða á sama hátt. Nýting auðlinda felur í sér inngrip í náttúruna sem óhjákvæmilega veldur raski á umhverfinu. Það að nýta endurnýjanlegar auðlindir gerir raforkuvinnslu okkar umtalsvert umhverfisvænni en ef svo væri ekki, en slík nýting felur eins og önnur í sér inngrip í náttúru og rask á umhverfi. Það er á okkar ábyrgð að lágmarka þetta rask eins og kostur er til að draga úr fórnarkostnaði áhrifa á náttúru á móti efnahags- og samfélagslegum ávinningi. Náttúruvernd mikilvæg forsenda við hönnun virkjana Við hjá Landsvirkjun öxlum daglega þá ábyrgð að nýta náttúruauðlindir þjóðarinnar og leggjum okkur ávallt fram um að vanda til verka í hverju skrefi. Við stöndum vörð umlíffræðilega fjölbreytnimeð vistkerfisnálgun að leiðarljósi og leggjum áherslu á að þekkjaumhverfisáhrifstarfseminnar, að draga úr þeim og koma í veg fyrir umhverfisatvik. Hér eru nokkur dæmi um nálgun okkar: Við beislun jarðvarma á Þeistareykjum var virkjunin hönnuð út frá staðháttum og með náttúru svæðisins í forgrunni. Lögð var áhersla á að raska ekki sérstökum hverasvæðum og hraunmyndunum, öðru raski var haldið í lágmarki og frágangi sinnt samhliða uppbyggingu virkjunarinnar. Við undirbúning fyrsta vindorkuvers landsins við Vaðöldu var þess gætt að velja stað á svæði sem þegar hefur verið raskað og þar sem innviðir, vegir og flutningslínur, eru þegar til reiðu. Við gættum þess jafnframt að velja ekki svæði sem njóta náttúruverndar og vera fjarri svæðum sem teljast til mikilvægra fuglasvæða. Við undirbúning Hvammsvirkjunar var sérstaklega hugað að áhrifum á laxfiska með það að markmiði að tryggja áfram vöxt og viðgang fiskistofna í Þjórsá. Ástæða er til að benda á að stofninn hefur vaxið og dafnað síðustu 60 árin, samhliða nýtingu vatnsfallsins til raforkuframleiðslu. Á rúmlega 60 ára starfstíma sínum hefur Landsvirkjun lagt áherslu á að bæta upp raskað land með aðgerðum sem falla að náttúrunni, með sérstaka áherslu á sjálfbærni, viðnámsþol og líffræðilega fjölbreytni. Við rekum umfangsmikil verkefni, bæði í tengslum við framkvæmdir en einnig með það að markmiði að efla kolefnisbindingu, styrkja búsvæði og draga úr jarðvegseyðingu. Sérstök áhersla er lögð á að nýta staðargróður og innlendar tegundir til að efla náttúruleg vistkerfi. Takk fyrir aðhaldið! Orkufyrirtæki þjóðarinnar þarf aðhald eigenda sinna til að finna lausnir sem annars vegar draga úr neikvæðum áhrifum starfseminnar á náttúrfar, fólk og aðra landnýtingu og hins vegar stuðla að ávinningi fyrir nærsamfélag virkjana og þjóðina alla. Það aðhald fæst meðal annars með öflugu starfi náttúruverndarsamtaka og við erum þakklát fyrir það. Græna gangan á morgun, sumardaginn fyrsta, er öflugt og jákvætt framtak náttúruverndarhreyfingarinnar á Íslandi. Það er mikilvægt að við öll, hvar sem við störfum, höfum ávallt í huga að það fylgir því mikil ábyrgð að nýta náttúruauðlindir. Ég ætla að mæta og taka þátt í Grænu göngunni og ganga fyrir náttúrna og framtíðina. Höfundur er framkvæmdastjóri Samfélags og umhverfis hjá Landsvirkjun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jóna Bjarnadóttir Mest lesið Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson Skoðun Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst? Hjörtur Hjartarson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Skoðun Skoðun Hvönnin í bjarginu Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Hvernig fór síðasti heimsendir? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Um tjáningu fullveldis Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun 25,2% árangur Gísli Garðarsson skrifar Skoðun Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum með blaðamönnum Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar Skoðun Þess vegna segjum við NEI þann 29. ágúst Þorvaldur Þorvaldsson skrifar Skoðun Ég kýs JÁ ! - Hvers vegna? skrifar Skoðun Kveðja til hleðslukvíðans Úlfar Linnet skrifar Skoðun Samkeppnishæfni Íslands Ingvar Þóroddsson skrifar Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst? Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Traust er ekki sjálfgefið Hilmar Freyr Gunnarsson skrifar Skoðun Evrópusambandið, skjól frá Bandaríkjunum? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Sjá meira
Skoðun Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir skrifar
Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar