Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Agnar Már Másson skrifar 12. apríl 2026 23:10 Olíuflutningaskip á ferð um Hormússundið. Myndin er tekin í Khor Fakkan í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. AP Alþjóðlegt olíuverð hefur hækkað um 7 prósent frá því að Donald Trump Bandaríkjaforseti sagðist myndu láta loka fyrir umferð um Hormússund við Persaflóa. Blátt bann á að taka gildi klukkan 15 á morgun, mánudag, en óskýrt er hvort skipum sem tengjast ekki Íran verði hleypt í gegn þar sem misræmis gætir í málflutningi Trump og hersins í þeim efnum.
BBC hefur eftir þremur sérfræðingum á sviði sjóréttar að bannið kynni að fara á svig við siglingalög. Centcom, aðgerðarstjórn Bandaríkjahers í Miðausturlöndum, segir á X að herinn muni stöðva umferð til og frá írönskum höfnum frá og með klukkan 15 á morgun, mánudag. Herinn segir þar enn fremru að skipum sem ekki eru á leiðinni til eða frá Íran væri hleypt í gegn. Þetta stangast vissulega á við yfirlýsingar Donalds Trump Bandaríkjaforseta þess efnis að Bandaríkin myndu setja blátt bann á „öll skip sem reyna að fara inn eða út um Hormússund.“ Trump bætti því við að enginn sem greiddi Írönum „ólöglegan“ hafnartoll kæmist um sundið og að bandaríski sjóherinn myndi eyða tundurduflum sem Íranir hefðu lagt í sundinu. Svo í viðtali við Fox News lýsti hann aftur yfir „algjörri herkví“ um sundið, það væri annað hvort „allt eða ekkert“. Síðar sagði sjóher íslamska byltingarvarðarins í Íran að litið yrði á öll herskip sem nálguðust Hormússund sem brot á vopnahléinu og „tekið yrði á þeim af hörku“. Verð á bandarískri olíu hækkaði um allt að átta prósent í Bandaríkjumun í kjölfar yfirlýsinga Trumps og stendur tunnan nú í 104 bandaríkjadölum, að því er Times of Israel greina frá. Verð á Brent olíu, sem er staðlað alþjóðlegt verð, hefur hækkað um 7 prósent og kostar tunnan nú 102 dollara. Fyrir stríð kostaði tunnan um 70 dali. „Brátt munuð þið sakna þess að fá gas á fjór til fimm dollara [á gallon (3,7 lítra)],“ sagði íranski þingforsetinn Mohammad Bagher Ghalibaf í dag en hann leiddi viðræður fyrir hönd Írana. Bensínverð hefur hækkað verulega frá því að átökin hófust en um 20 prósent af olíu heims er flutt í gegnum sundið. Fyrr voru það Íranir sem höfðu lokað fyrir umferð um Hormússund en það opnaði á ný eftir Íranir gengu aftur að samningaborðinu eftir að Trump hótaði að gereyða allri siðmenningu í Íran. Ráðgjafi æðstaklerksins Mojtaba Khamenei brýndi fyrir Bandaríkjamönnum í dag að Íranir ættu nóg inni til þess að bregðast við aðgerðum Bandaríkjamanna á Hormússundi, samkvæmt umfjöllun New York Times. Samkvæmt hafkortagögnum má sjá að hið minnsta þrjú írönsk skip hafi siglt um sundið frá því að Trump hótaði að loka því.
Íran Bandaríkin Bensín og olía Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Ísrael Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira