Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 11. apríl 2026 12:07 Fundur í utanríkismálanefnd Alþingis, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mætir fyrir nefndina um Evrópumál Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir koma til greina að breyta svarmöguleikum á kjörseðlinum í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að Evrópusambandinu eftir að landskjörstjórn gerði við þá athugasemd.
Landskjörstjórn skilaði í vikunni umsögn sinni til utanríkismálanefndar Alþingis þar sem athugasemdir eru gerðar við þingsályktunartillögu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Skoðanir á umsóknarstöðu gætu haft áhrif Staða aðildarumsóknar Íslands hefur verið fyrirferðarmikil í umræðu um þjóðaratkvæðagreiðsluna þrátt fyrir að það liggi fyrir að þegar aðildarviðræður var slitið hafi umsóknin aldrei verið afturkölluð. Það sést skýrt á ummælum þáverandi utanríkisráðherra og formanni utanríkismálanefndar að engin formleg slit hafi átt sér stað enda krefst slíkt afgreiðslu þingsins. Athugasemdir Landskjörstjórnar varða hins vegar einmitt hvort skoðanir kjósenda á þessu hafi áhrif á afstöðu þeirra við atkvæðagreiðslu. Þorgerður Katrín segir tillögu um að stytta svarmöguleikana þannig að kjósendur svari skýru já-i eða nei-i liggja fyrir þinginu. „Ég ber mjög mikla virðingu fyrir þinginu, það er með málið til meðferðar. Þessi konkret tillaga um að taka síðustu setninguna út eftir jáið og neiið liggur fyrir og ég held að það sé eitthvað sem þingið leggst mjög vel yfir.“ Aldrei þingmeirihluti fyrir afturköllun Staða aðildarumsóknar Íslands sé samt sem áður kýrskýr. „Staðreyndin er sú, sama hvað fólk segir í stjórnarandstöðunni, að umsóknin var aldrei lögformlega afturkölluð. Hún var formlega samþykkt af þinginu árið 2009. Síðan árið 2013 og 2014 reyndi sú ríkisstjórn undir forystu Sigmundar Davíðs að afturkalla hana í gegnum þingið en það var aldrei þingmeirihluti fyrir því og það komst aldrei í gegnum það. Þessi bréfaskipti sem urðu á eftir voru ekki skýrari en svo að það er alveg ljóst af hálfu Evrópusambandsins að umsóknin er enn í gildi,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Evrópusambandið Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira