Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Katrín Júlíusdóttir, fyrrverandi iðnaðarráðherra úr röðum Samfylkingarinnar, telur raunhæft að samið verði um það í viðræðum við Evrópusambandið að hafið í kringum Ísland yrði sérstakt stjórnsýslusvæði um fiskveiðar. Hún segist ekki vera sami Evrópusinni og hún var áður og lítur ekki svo á að hugsanlegar aðildarviðræður snúist um að „kíkja í pakkann“, heldur sé um „harðar samningaviðræður“ að ræða. Innlent 24.8.2026 14:13
Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Netöryggissveitin CERT-IS fylgist grannt með notkun gerviaðganga á samfélagsmiðlum nú þegar styttist í þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður við ESB. Tilgangur þeirra er að ýta undir upplýsingaóreiðu að sögn forstöðumanns sem hvetur almenning til að vera á varðbergi. Innlent 24.8.2026 12:01
Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Viggó Kristjánsson, landsliðsmaður í handbolta, biðlar til Donald Trump Bandaríkjaforseta að bjóða Íslendingum samning sem myndi gera Ísland að 51. ríki Bandaríkjanna. Handbolti 24.8.2026 12:01
Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Þrír prófessorar við lagadeild Háskólans í Reykjavík segja frétt Morgunblaðsins um að þeir telji engar undanþágur í boði við aðild vera ranga. Einn prófessoranna segir blaðið leggja sér orð í munn. Innlent 22. ágúst 2026 13:43
„Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Stækkunarstjóri Evrópusambandsins segir að engin aðlögun íslenskra laga að evrópsku regluverki muni eiga sér stað segi þjóðin já í atkvæðagreiðslunni í næstu viku. Hún segir ekkert hægt að segja til um mögulegar undanþágur. Það muni samningaviðræður leiða í ljós. Innlent 21. ágúst 2026 20:54
Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu „Ég tel að það sé útilokað að fá varanlega undanþágu frá stefnunni í heild sinni. Hins vegar er spurning um hvort hægt sé að hanna hlutina að innan þannig að við erum de facto með full yfirráð,“ segir Vilborg Ása Guðjónsdóttir stjórnmálafræðingur og fyrrverandi ritstjóri Evrópuvefsins. Innlent 21. ágúst 2026 16:27
„Ég get ekki svarað því“ Marta Kos, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, telur ómögulegt að segja til um hvort Íslendingar geti staðið utan sjávarútvegsstefnu sambandsins. Það muni mögulegar samningaviðræður snúast um. Innlent 21. ágúst 2026 12:17
Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Möguleg Evrópusambandsaðild var rædd frá sjónarhorni ungs fólks í Pallborðinu á Vísi í dag. Þátttakendur minntust meðal annars á hvað myndi gerast yrði íslenskur efnahagur fyrir áfalli og stöðu landbúnaðar. Innlent 20. ágúst 2026 22:01
„Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Nei-arar kölluðu „Já til að sjá“ markaðsbrellu í það minnsta þrisvar sinnum á nokkrum mínútum þegar fulltrúar já- og nei-hliðarinnar mættust í Pallborði þar sem ungt fólk var í brennidepli. Já-ari sagði sérfræðinga tala í kross og það væri eflaust mörgu ungu fólki sem fyndist það vera bestu útkomuna úr atkvæðagreiðslunni í lok ágúst að fá að sjá með eigin augum hvað fælist í samningi. Innlent 20. ágúst 2026 15:34
Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Ungt fólk verður í brennideplinum í Pallborðinu á Vísi í dag. Húsnæðismál, atvinnuleysi, efnahagsmál og fleiri mál verða rædd með það að markmiði að ungt fólk sé einhverju nær um hvað það á að kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst næstkomandi. Innlent 20. ágúst 2026 12:21
Um peningalegt fullveldi og framsal þess Ljóst er að með inngöngu Íslands í ESB og upptöku evru verður viðbótar framsal okkar svo umfangsmikið að telja verði að Ísland hafi þar með afsalað sér peningalegu fullveldi sínu. Það verður dýru verði keypt og um það verður ekki samið. Umræðan 20. ágúst 2026 07:50
Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Í það minnsta 29 þingmenn ætla að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið þann 29. ágúst. Sumir þingmenn vilja ekki gefa upp afstöðu sína á meðan aðrir svara ekki fyrirspurn. Fleiri segja nei en já af þeim 51 sem svara. Innlent 20. ágúst 2026 07:29
„Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ „Þessi vegferð hefst eiginlega ekki raunverulega fyrr en í upphafi tuttugustu aldar, þegar virkilega koma fram stjórnmálahreyfingar og stjórnmálahugmyndir um að það væri best fyrir Íslendinga að slíta samstarfinu við Dani,“ segir Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur sem er gestur dagsins í hlaðvarpinu Vísir að viðræðum. Innlent 19. ágúst 2026 12:30
Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Lögrétta, félag laganema við Háskólann í Reykjavík, stóð fyrir pallborðsumræðum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið í dag. Innlent 19. ágúst 2026 11:30
Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fulltrúar rússneskra stjórnvalda segjast ekki hafa neinn áhuga á því að hafa áhrif á þjóðaratkvæðagreiðsluna á Íslandi 29. ágúst um það hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Rússar hafa ítrekað verið sakaðir um að reyna að hafa áhrif á kosningar og atkvæðagreiðslur í Evrópu, meðal annars í Brexit-atkvæðagreiðslunni 2016. Innlent 19. ágúst 2026 01:01
Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Hart var tekist á um kostnað Íslands við mögulega ESB-aðild í Pallborðinu á Vísi í dag. Áfram Ísland segir árlegan kostnað geta numið fimmtíu milljörðum króna en fulltrúar já-hreyfinganna hafna þeirri tölu alfarið og segja villandi að setja hana fram án þess að mögulegur ávinningur sé tekinn með. Innlent 18. ágúst 2026 23:30
Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Forsvarsfólk bæði já- og nei- hreyfinga saka hina hliðina um að hafa farið með rangt mál frá því að kosningabarátta hófst. Þau mættust í Pallborði Vísis í dag. Fréttamaður sem stýrði Pallborðinu hafði á orði að það væri um stund sem forsvarsmenn væru að ræða hvor sinn hlutinn, svo ólíkar væru áherslurnar. Innlent 18. ágúst 2026 21:03
„Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Málskotsréttur forseta hverfur ekki þó að Ísland myndi ganga inn í ESB en verður þó takmarkaður, að sögn Birgis Ármannssonar fyrrverandi þingforseta. „Salami-aðferð“ Evrópusambandsins í viðræðum gæti að hans mati gert Íslendingum erfiðara fyrir ef þeir vilja hætta við hugsanlega aðildarumsókn. „Flest mannanna verk eru nú þannig að það er hægt að snúa þeim við,“ segir hann samt. Innlent 18. ágúst 2026 19:56
Ráðuneytið birtir útreikningana Stjórnarráð Íslands hefur gefið út mat á kostnaði við aðild að Evrópusambandinu en þar kemur fram að hugsanleg nettóframlög Íslands til Evrópusambandsins orðið um átta til þrettán milljarðar. Áður hefur verið greint frá því að Áfram Ísland standi við útreikninga á að kostnaður Íslands að Evrópusambandinu muni hlaupa á fimmtíu milljörðum króna. Forsætisráðherra hefur fullyrt að upphæðin sé „ekki nándar nærri því sem gæti komið út úr þessum viðræðum.“ Innlent 18. ágúst 2026 17:38
Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Ákveði Íslendingar að hefja viðræður á ný við Evrópusambandið gæti það greitt götu Svartfjallalands inn í Evrópusambandið, að því er fram kemur í frétt Reuters. Þar er haft eftir háttsettum erindreka innan ESB að viðræður við auðugt ríki á borð við Ísland geti dregið úr efasemdum um frekari stækkun sambandsins. Erlent 18. ágúst 2026 16:29
Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Áfram Ísland stendur við útreikninga á að kostnaður Íslands að Evrópusambandinu muni hlaupa á fimmtíu milljörðum króna. Samtökin vísa á bug fullyrðingum forsætisráðherra um að upphæðin sé „ekki nándar nærri því sem gæti komið út úr þessum viðræðum.“ Innlent 18. ágúst 2026 14:45
Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Peningastefnunefnd Seðlabankans kynnir vaxtaákvörðun sína á morgun. Markaðurinn fylgist að venju grannt með en að þessu sinni hafa aðilar vinnumarkaðarins og fylkingarnar í ESB-málinu einnig sérstaka ástæðu til að leggja við hlustir. Viðskipti innlent 18. ágúst 2026 14:28
Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir fundarferð sína um landið í aðdraganda þjóðaratkvæðis ganga vel og skapa tækifæri fyrir kjósendur að hittast, ræða málin og heyra skoðanir hver annars. Hún tekur fyrir þær háu tölur sem nefndar hafa verið um kostnað Íslands við aðild og segir upphæðina í raun mun lægri. Innlent 18. ágúst 2026 12:18
Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Breskur hagfræðiprófessor sem sat í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands eftir hrun segir Ísland eiga heima í evrusvæðinu. Upptaka evru geti aukið stöðugleika og gerði það afar ólíklegt að hrun eins og það sem varð árið 2008 endurtæki sig. Viðskipti innlent 18. ágúst 2026 11:33