Björgvin Halldórsson látinn Jakob Bjarnar skrifar 9. apríl 2026 12:43 Björgvin Halldórsson has left the building vísir/vilhelm Björgvin Halldórsson söngvari er látinn. Hann fæddist 16. apríl 1951 og var því hartnær 75 ára gamall þegar hann andaðist. Hann varð bráðkvaddur að heimili sínu nú í morgun, 9. apríl.
Stórt skarð er nú höggvið í íslenskt tónlistarlíf. Björgvin hefur verið afar atkvæðamikill á þeim vettvangi svo ekki sé meira sagt. Hann er „Röddin“ – ein helsta stjarna Íslands fyrr og síðar, þekktur fyrir að syngja lög sem hafa náð gríðarlegum vinsældum á Íslandi og víðar. Björgvin fæddist í Hafnarfirði og var beint sem óbeint talsmaður síns sveitarfélags. Hann var til að mynda fyrstur tónlistarmanna til að fá sérstaka stjörnu sér til heiðurs í stéttina fyrir framan Bæjarbíó í Hafnarfirði. Fyrsta hljómsveitin hans var Bendix. Þann 1. október 1969 varð viðburður sem átti eftir að marka brautina: Björgvin var valinn „poppstjarna ársins“ við mikla viðhöfn í Laugardalshöll. Miklum sögum fór af því að ungmenni hafi brotið tönn sína að hætti Björgvins. Um þennan viðburð hefur verið mikið skrifað og um hann fjallað. Þar sagðist Björgvin í viðtali einkum hafa ánægju af því að syngja „ballads“. Svo frægur varð Björgvin að sögur fóru af því að ungmenni færu með hamar á framtönn sína og brytu til að líkjast goðinu. En Björgvin braut framtönn sína í Sundhöll Hafnarfjarðar barn að aldri og var hin brotna framtönn einkennandi fyrir útlit söngvarans fyrstu árin. Einstakur tónlistarferill Björgvin tók stöðu Jónasar R. Jónssonar sem söngvari í hljómsveitinni Flowers en hann söng seinna meðal annars með hljómsveitum á borð við Ævintýri, Brimkló, Ðe lónlí blú bojs, HLH-flokknum og Sléttuúlfunum en ekki síst flutti hann tónlist undir eigin nafni. Björgvin hefur flutt fjöldann allan af lögum, bæði frumsömdum sem og tökulögum, sem náðu flugi og má þar nefna lög eins og Þó líði ár og öld, Þú komst með jólin til mín og Gullvagninn, bara svo einhver séu nefnd. Stórt skarð er höggvið í íslenskan tónlistarheim nú þegar röddin sjálf hefur kvatt þann vettvang. Árið 1995 var Björgvin valinn til að fara fyrir Íslands hönd í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva og flutti þar lagið Núna. Dóttir Björgvins er Svala Björgvinsdóttir sem flutti lagið Paper sem framlag Íslands á sama vettvangi árið 2017. Bó ræddi þátttöku sína í Eurovision í þáttunum Tónlistarmennirnir okkar á Sýn. Þar fór hann á kostum. Eins og áður segir var Björgin eins konar „rödd Íslands“, hann starfaði áratugum saman sem þulur – rödd Stöðvar 2 – og hver jól, allt þar til undir það síðasta, stóð hann fyrir tónleikum undir yfirskriftinni Jólagestir Björgvins. Má hann heita frumkvöðull á því sviði. „Og að sjálfsögðu, gestgjafinn sjálfur, hinn óviðjafnanlegi, töfrandi, stórbrotni og goðsagnakenndi Björgvin Halldórsson, sem kveður gestgjafahlutverkið á Jólagestum eftir þessa tónleika,“ segir í tilkynningu fyrir Jólagesti Björgvins 2024. Þekktur fyrir sín einstöku tilsvör Björgvin var einstakur og svo þekktur fyrir sín tilsvör að Gísli Rúnar Jónsson heitinn, rithöfundur og leikari, skrifaði um það fyrirbæri bók sem kom út 2001 og bar titilinn „Bó & co … með íslenskum texta“. Þar má finna aragrúa af skemmtisögum af Bó og hans samferðarmönnum. Björgvin lýsti því í fjölmörgum viðtölum að hann væri ósköp venjulegur heimilisfaðir; þegar hann kæmi heim væri söngvarinn settur inn í skáp og héngi þar á herðatré í öllum skrúðanum. Svo væri hann sendur út að skemmta. En á seinni árum var líkt og þessir tveir menn rynnu saman og Björgvin sagðist kominn á þann stað að ekki yrði aftur snúið, hann væri sáttur við ferilinn. Björgvin var sæmdur riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu í janúar 2011 fyrir framlag sitt til íslenskrar tónlistar. Hann lætur eftir sig eiginkonuna Ragnheiði B. Reynisdóttur en saman eiga þau áðurnefnda Svölu og soninn Odd Hrafn en áður en þau Ragnheiður tóku saman eignaðist Björgvin soninn Sigurð Þór. Lög Björgvins munu hljóma reglulega á Bylgjunni í dag og þátturinn Kvöldstund með Eyþóri Inga, með Björgvin í aðalhlutverki, verður á dagskrá Sýnar í kvöld.
Andlát Tónlist Hafnarfjörður Andlát Björgvins Halldórssonar Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Erlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Fleiri fréttir Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Sjá meira