Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Lovísa Arnardóttir skrifar 7. apríl 2026 21:42 Bandaríska sendiráðið er við Engjateig í Reykjavík. Vísir/Vilhelm Samtök hernaðarandstæðinga boða til skyndimótmæla við bandaríska sendiráðið klukkan 17 á morgun, miðvikudaginn 8. apríl. Í tilkynningu segir að ræðumenn verði kynntir síðar. „
Eftir linnulausar árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran síðustu vikur hefur Donald Trump forseti Bandaríkjanna nú hótað að tortíma írönsku þjóðinni í heild sinni. Heimurinn hefur ekki verið á hættulegri stað áratugum saman. Ljóst er af árásum Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran og Líbanon, auk þjóðarmorðsins í Palestínu, að hryllingurinn mun aðeins halda áfram ef ekki er gripið í taumana. Ísraelsríki og Bandaríkin hafa ítrekað framið stríðsglæpi með því að ráðast á barnaskóla, heimili, sjúkrahús, vatnshreinsistöðvar, sjúkraflutningafólk, olíuhreinsistöðvar, kjarnorkuver og aðra lífsnauðsynlega innviði í Íran, Líbanon og í Palestínu,“ segir í tilkynningu Samtaka hernaðarandstæðinga. Þar segir einnig að þegar forsetinn komist upp með að hóta að gjöreyða heilli þjóð án nokkurra mótmæla alþjóðasamfélagsins sé öryggi heimsins alls ógnað. „Áframhaldandi stríð mun valda heimskreppu með gríðarlegum áhrifum á almenning á Íslandi og um allan heim, auk þess sem straumur flóttafólks mun margfaldast,“ segir í tilkynningunni og að því boði samtökin til mótmæla við sendiráðið á morgun. „Við krefjumst þess að íslensk stjórnvöld taki afstöðu í verki, verji alþjóðalög og reki bandarískt herlið af landi brott og slíti samstarfi við Bandaríkin,“ segir að lokum.
Bandaríkin Donald Trump Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Félagasamtök Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira