Vilja ekki takmarka trúariðkun „umfram það sem brýnir almannahagsmunir krefjast“ Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 28. mars 2026 12:56 Karl Gauti Hjaltason er fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögunnar. Vísir/Vilhelm Þingmenn Miðflokksins hafa lagt fram þingsályktunartillögu um bann við hylmingu andilts í opinberu rými. Tilefnið segja þeir ekki að takmarka trúariðkun „umfram það sem brýnir almannahagsmunir krefjast“.
Flutningsmenn tillögunnar eru Karl Gauti Hjaltason, Bergþór Ólason, Ingibjörg Davíðsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Snorri Másson og Þorgrímur Sigmundsson. Með öðrum orðum eru allir þingmenn Miðflokksins skráðir flutningsmenn að Sigríði Á. Andersen formanni þingflokksins undanskildri. Hún sagði það þó ekki hafa verið gert í neinu mótmælaskyni heldur kveðst hún almennt ekki skrifa sig fyrir þingmálum. Beinist ekki að neinum sérstökum trúarhópi Í greinargerð um þingsályktunartillöguna segir að markmið hennar sé að skapa skýran og heildstæðan lagaramma um atriði sem varða almannaöryggi, framkvæmd opinberrar þjónustu og grundvallarskilyrði mannelgra samskipta í opnu og lýðræðislegu samfélagi. Vísað er til sambærilegrar lagasetningar í Danmörku, Hollandi og Frakklandi. Sérstaklega er vísað til þess að Mannréttindadómstóll Evrópu hafi ekki fallist á að franska löggjöfin bryti í bága við mannréttindasáttmála Evrópu. Flutningsmenn segja að leggja verði ríka áherslu á stjórnarskrár- og mannréttindasjónarmið við undirbúning frumvarpsins og hvergi er tekið fram að hún beinist sérstaklega að trúariðkun og -tjáningu múslímskra kvenna sem trúin krefur um að hylja höfuð sín. Fram kemur að eðlilegt sé að í frumvarpi á grunni tillögunnar sé lögð áhersla á skýrar og afmarkaðar undantekningar. Þá segir einnig að markmið lagasetningar af þessu tagi sé ekki að takmarka trúariðkun eða -tjáningu „umfram það sem brýnir almannahagsmunir krefjast heldur að móta almenna og skýra reglu um sýnileika andlits í þeim aðstæðum þar sem auðkenning og gagnkvæm samskipti skipta grundvallarmáli“. Sóttvarnargrímur og öskudagsbúningar leyfðir Karl Gauti Hjaltason fyrsti flutningsmaður segir í samtali við fréttastofu að það séu sannarlega dæmi um að brýnir almannahagsmunir krefjist þess að ríkið takmarki trúariðkun og -tjáningu. „Til að fólk þekkist og geti borið kennsl á þá sem eru á ferli, bæði í löggæslutilgangi og í samskiptum fólks. Að fólk sé ekki með andlitið hulið. Það myndi ég halda að væri ágætisdæmi,“ segir hann og bætir við að lögregla verði að geta borið kennsl á mótmælendur sem hylji andlit sín í því skyni að fremja eignarspjöll eða ofbeldisbrot. Það yrðu skýrar undantekningar og nefnir Karl Gauti mótorhjólahjálma, sóttvarnargrímur, lambhúshettur. „Jafnvel trefill ef það er frost úti.“ Ekki afskipti af klæðaburði borgara Dómsmálaráðherra kæmi til með að útfæra smáatriðin. Aðspurður segir hann tillöguna ekki snúa að því að ríkisvaldið fari að skipta sér að klæðaburði fólks. „Heldur að andlit fólks sjáist. Þetta er lýðræðislegt samfélag. Fólk á ekki að hylja á sér andlitið að nauðsynjalausu,“ segir Karl Gauti Hjaltason þingmaður Miðflokksins.
Miðflokkurinn Trúmál Alþingi Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Sjá meira