Mikilvægast með jarðgöngum að losna við hættulegustu vegi Kristján Már Unnarsson skrifar 19. mars 2026 12:10 Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra á fundi þingnefndarinnar í morgun. Vilhelm Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra vísaði til náttúruvár þegar hann varði þá ákvörðun sína að setja Fljótagöng til Siglufjarðar í efsta sæti forgangslista næstu jarðganga. Á opnum fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í morgun bentu tveir þingmenn Norðausturkjördæmis hins vegar á að innan Fjallabyggðar væri jafnvel sterkari krafa um að fá ný Múlagöng vegna ítrekaðra snjóflóða í Ólafsfjarðarmúla.
Jens Garðar Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokks, fór fram á það að innviðaráðherra yrði kvaddur á fund þingnefndarinnar til að gera grein fyrir breyttri forgangsröðun jarðganga. Hann spurði Eyjólf Ármannsson hvort þetta hefði ekki einfaldlega verið pólitísk ákvörðun. Frá opnum fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í morgun.Vilhelm Eyjólfur vísaði til mikillar náttúruvár þegar hann varði þá ákvörðun að setja Fljótagöng í fyrsta sæti. „Það er stórhættulegur vegur og Vegagerðin fer hvern einasta dag til að meta ástand vegarins. Það er jarðsig í Almenningum og svo er skriðuhætta í Mánárskriðum og þetta er vegur sem er stórhættulegur,“ sagði ráðherrann. Fundinn í heild má sjá að neðan. „Þannig að það er gríðarlega mikilvægt að við förum í þá framkvæmd. Það er mesta náttúruváin þar og svo líka í Súðavíkurhlíðinni. Þar er líka grjóthrun, stórhættulegt grjóthrun sem hefur lent á bílum. Og viti menn, báðar þessar hlíðar voru lokaðar núna í síðustu viku vegna snjóflóða og annars slíks. Þannig að þessi náttúruvá er gríðarlega mikilvæg og það er mjög mikilvægt að við byrjum á að taka hættulegustu vegi úr umferð með jarðgöngum,“ sagði Eyjólfur, eins og heyra mátti í hádegisfréttum Bylgjunnar: Jens Garðar benti hins vegar á að fyrir norðan væru sterkar kröfur um aðra forgangsröðun á Tröllaskaga. „Það virðist vera að íbúar í Fjallabyggð séu ekkert síður að kalla eftir og leggi kannski meiri áherslu á að fá ný Múlagöng heldur en Fljótagöng. Hvað segir ráðherrann um það?“ spurði Jens Garðar. Jens Garðar Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, á fundinum í morgun.Vilhelm Þórarinn Ingi Pétursson, þingmaður Framsóknarflokks, sagði að vegurinn á milli Dalvíkur og gangamunna Ólafsfjarðarganga væri búinn að vera lokaður meira og minna undanfarna þrjá daga. „Mig minnir að það hafi fallið sextán snjóflóð á þessum stutta kafla. Hann er stórhættulegur og mikilvægi þess að farið verði í góðan og mikinn undirbúning varðandi Múlagöng, það liggur alveg fyrir,“ sagði Þórarinn Ingi. Þórarinn Ingi Pétursson, þingmaður Framsóknarflokks í Norðausturkjördæmi.Vilhelm „Ég er algjörlega sammála háttvirtum þingmanni um Múlagöngin, að þau eru mikilvæg í framtíðinni,“ svaraði Eyjólfur Ármannsson. „Ég er algjörlega sammála því að þessi vegur milli Dalvíkur og Múlaganga, það er vegur sem er hættulegur. Það eru líka margir vegir sem og vegurinn hérna um Almenninga og Mánárskriður,“ sagði innviðaráðherra.
Samgönguáætlun Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Jarðgöng á Íslandi Alþingi Samgöngur Vegagerð Fjallabyggð Dalvíkurbyggð Múlaþing Fjarðabyggð Skagafjörður Súðavíkurhreppur Ísafjarðarbær Tengdar fréttir Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur verið boðaður á opinn fund umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis á fimmtudag til að svara spurningum um forgangsröð jarðganga. Fjarðabyggð hefur kynnt þingnefndinni tillögu að sáttaleið á Austfjörðum. 17. mars 2026 21:41 Segir göng undir Fjarðarheiði ekki fjárhagslega forsvaranleg Ríkisstjórnin er einhuga um að breyta forgangsröðun jarðganga og setja Fljótagöng í fyrsta sæti og hafa þingflokkar stjórnarinnar samþykkt tillöguna. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að Fjarðarheiðargöng hafi ekki verið fjárhagslega forsvaranleg. 3. desember 2025 21:10 Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sjá meira
Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur verið boðaður á opinn fund umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis á fimmtudag til að svara spurningum um forgangsröð jarðganga. Fjarðabyggð hefur kynnt þingnefndinni tillögu að sáttaleið á Austfjörðum. 17. mars 2026 21:41
Segir göng undir Fjarðarheiði ekki fjárhagslega forsvaranleg Ríkisstjórnin er einhuga um að breyta forgangsröðun jarðganga og setja Fljótagöng í fyrsta sæti og hafa þingflokkar stjórnarinnar samþykkt tillöguna. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að Fjarðarheiðargöng hafi ekki verið fjárhagslega forsvaranleg. 3. desember 2025 21:10