Barn flutt í sjúkraflugi eftir alvarlegt umferðarslys Alvarlegt umferðarslys varð á Varmahlíð síðdegis í dag. Ekið var á tvo gangandi vegfarendur, fullorðinn einstakling og barn, við söluskála Olís. Innlent 29.3.2026 19:11
Þyrlan gerð út vegna slyss við Varmahlíð Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út að beiðni Lögreglunnar á Norðurlandi vestra vegna umferðarslyss við Varmahlíð. Innlent 29.3.2026 17:44
Of stór biti að kyngja án íbúakosningar „Ég er mjög óánægður með þá ákvörðun meirihluta sveitarstjórnar Skagafjarðar að veita ekki íbúum möguleika á að kjósa um menningarhús,“ segir Daniel Þór Gunnarsson sem hugðist með undirskriftasöfnun þrýsta á um íbúakosningu sem sveitarstjórn Skagafjarðar sló út af borðinu á miðvikudag. Innlent 27.3.2026 15:19
Deila um menningarhús skekur Skagafjörð Allt stefnir í að harðnandi átök um fyrirhugaða byggingu menningarhúss á Sauðárkróki verði að funheitu kosningamáli í Skagafirði. Gráa silfrið sem andstæðar fylkingar elda nálgast suðumark en fulltrúi Byggðalista vill íbúakosningu um málið sem oddviti Framsóknar lýsir aftur á móti sem stormi í vatnsglasi. Innlent 22. mars 2026 10:03
Mikilvægast með jarðgöngum að losna við hættulegustu vegi Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra vísaði til náttúruvár þegar hann varði þá ákvörðun sína að setja Fljótagöng til Siglufjarðar í efsta sæti forgangslista næstu jarðganga. Á opnum fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í morgun bentu tveir þingmenn Norðausturkjördæmis hins vegar á að innan Fjallabyggðar væri jafnvel sterkari krafa um að fá ný Múlagöng vegna ítrekaðra snjóflóða í Ólafsfjarðarmúla. Innlent 19. mars 2026 12:10
Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur verið boðaður á opinn fund umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis á fimmtudag til að svara spurningum um forgangsröð jarðganga. Fjarðabyggð hefur kynnt þingnefndinni tillögu að sáttaleið á Austfjörðum. Innlent 17. mars 2026 21:41
Heitavatnslög gaf sig í Varmahlíðarskóla Heitavatnslögn gaf sig í Varmahlíðarskóla í Skagafirði aðfaranótt þriðjudags og lak vatnið niður þrjár hæðir í forstofu skólans. Aðstoðarskólastjóri hælir skjótum viðbrögðum starfsfólksins. Nemendur fengu snemmbúið vetrarfrí. Innlent 19. febrúar 2026 11:36
Gengu tíu kílómetra til að geta óskað eftir aðstoð Flugbjörgunarsveitin í Varmahlíð og björgunarsveitin Skagfirðingasveit á Sauðárkróki komu fjórum ferðamönnum til aðstoðar í gær sem höfðu fest bíla sína í Mælifellsdal. Fólkið gekk tíu kílómetra í 18 stiga frosti til að komast í símasamband til að láta vita af sér. Innlent 18. febrúar 2026 10:28
Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Enn gustar um skagfirsk stjórnmál og nú er það kvenfélagið Framtíð í Fljótum sem telur sig eiga á undir högg að sækja hjá byggðaráði Skagafjarðar. Innlent 2. febrúar 2026 13:17
Bláklukka bar þremur lömbum á bænum Viðvík í Skagafirði Guðríði Magnúsdóttir sauðfjárbónda á bænum Viðvík í Skagafirði var nokkuð brugðið í gær þegar hún fór að gefa fénu í fjárhúsinu hjá sér því þá hún að ærin Bláklukka hafði borið þremur lömbum. Það þykir mjög óvenjulegt og sérstakt á þessum árstíma en gerist þó alltaf annars slagið. Innlent 13. janúar 2026 20:21
Stytting framhjá Blönduósi ekki á samgönguáætlun Hringvegurinn mun styttast umtalsvert á nokkrum köflum á Suðausturlandi á næstu tíu til fimmtán árum. Hins vegar er ekki gert ráð fyrir styttingu framhjá Blönduósi, samkvæmt áformum sem kynnt eru í samgönguáætlun. Innlent 22. desember 2025 21:51
Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Árni Rúnar Örvarsson er yngsti æðadúnsbóndi landsins. Fyrirtækið hans, Icelandic Eider, hefur verið að gera gott mót í útivistarklæðnaði sem reiðir sig á æðadúninn. Garpur Ingason Elísabetarson kíkti í heimsókn í þessa merkilegu framleiðslu í Íslandi í dag á Sýn í gærkvöldi. Lífið 19. desember 2025 15:03
Áminntir fyrir að drekka einn bjór: Sagðir drukknir og hafa tekið „Happy Gilmore-sveiflu“ Tveir þátttakendur Íslandsmóts golfklúbba í 3. deild karla 2025 á golfvelli Golfklúbbs Sauðárkróks hafa verið áminntir fyrir áfengisneyslu á mótinu. Þeir játuðu að hafa drukkið einn bjór og ekki var talið sannað að þeir hefðu drukkið meira, þrátt fyrir að kvartað hafi verið yfir því að þeir hefðu verið sjáanlega drukknir. Einnig var kvartað yfir því að þeir hefðu beitt svokallaðri „Happy Gilmore-sveiflu“ á fyrsta teig. Aganefnd taldi þeim hins vegar frjálst að slá með þeim hætti. Golf 11. desember 2025 17:00
Skilur vonbrigðin en hafnar því að hafa tekið óupplýsta ákvörðun Innviðaráðherra hafnar því að ákvörðun um breytta forgangsröðun jarðganga hafi ekki verið tekin á upplýstan hátt. Hann skilji vonbrigði samfélagsins fyrir austan en segir að með nýrri forgangsröðun sem boðuð er með samgönguáætlun sé ekki verið að slá Fjarðarheiðargöng út af borðinu. Stofnun innviðafélags um stórframkvæmdir skapi forsendur til að ráðast hraðar í stór samgönguverkefni en verið hefur. Innlent 9. desember 2025 09:12
Breytt forgangsröðun jarðganga Mikil umræða hefur skapast um nýja samgönguáætlun undanfarna daga, sérstaklega vegna breyttrar forgangsröðunar jarðganga. Ég hef fullan skilning á þeim vonbrigðum sem þessi breyting hefur valdið í samfélaginu eystra. Skoðun 9. desember 2025 09:00
Hjólreiðamaður fluttur „mikið slasaður“ með sjúkraflugi Ekið var á hjólreiðamann á Sauðárkróki seinnipartinn í gær nálægt gatnamótum Skagfirðingabrautar og Sauðárkróksbrautar. Um alvarlegt slys var að ræða. Innlent 7. desember 2025 19:17
Segir göng undir Fjarðarheiði ekki fjárhagslega forsvaranleg Ríkisstjórnin er einhuga um að breyta forgangsröðun jarðganga og setja Fljótagöng í fyrsta sæti og hafa þingflokkar stjórnarinnar samþykkt tillöguna. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að Fjarðarheiðargöng hafi ekki verið fjárhagslega forsvaranleg. Innlent 3. desember 2025 21:10
Fljótagöng sett í forgang Fljótagöng, Fjarðagöng, Súðavíkurgöng og Miklidalur og Hálfdán verða sett í forgang í nýrri jarðgangaáætlun sem kynnt verður í dag á fundi innviðaráðherra þar sem hann kynnir samgönguáætlun fyrir 2026 til 2040. Undirbúningur við næstu jarðgöng hefst 2026 og verður byrjað að bora 2027. Innlent 3. desember 2025 10:30
„Við erum með stórt sár á sálinni“ Ellefu manna fjölskylda slapp lygilega vel úr alvarlegu bílslysi á Þverárfjallsvegi á leið sinni úr skírnarveislu á Sauðarkróki. Fjölskyldan sem taldi afa og ömmu, þrjú uppkomin börn þeirra og fjögur barnabörn þeirra ferðaðist á tveimur bílum, einn fyrir framan annan, þegar bíll þveraði veginn og skall á bílunum tveimur með þeim afleiðingum að báðir fóru út af og annar valt. Innlent 26. nóvember 2025 19:02
Allir bílarnir ónýtir og mildi að ekki fór verr Varðstjóri hjá lögreglunni á Norðvesturlandi segir mildi að ekki hafi farið verr þegar að tvö umferðarslys urðu með um fimmtán mínútna millibili á svæðinu í gær. Aksturskilyrði versnuðu mjög skyndilega. Vegurinn hafði ekki verið hálkuvarinn. Innlent 24. nóvember 2025 12:02
Þvættuðu tugi milljóna og lögreglan göbbuð í sumarbústað Bræður á fimmtugsaldri hafa verið dæmdir í skilorðsbundið fangelsi og þá helst fyrir peningaþvætti. Öðrum var líka refsað fyrir að gabba lögregluna. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í síðustu viku. Innlent 17. nóvember 2025 12:26
Áköf undirskriftakeppni hafin vegna jarðganga Áköf keppni eru hafin í söfnun undirskrifta milli stuðningsmanna tveggja mismunandi jarðgangakosta á Austurlandi, annarsvegar Fjarðarheiðarganga og hinsvegar Fjarðaganga. Samtímis býður Vegagerðin út verkhönnun Fljótaganga, jarðganga á Norðurlandi, sem gæti bent til þess að þau verði næst í röðinni og tekin fram fyrir göng á Austfjörðum. Innlent 15. nóvember 2025 20:10
Vegagerðin býður út for- og verkhönnun Fljótaganga Vegagerðin hefur boðið út for- og verkhönnun Fljótaganga, göngum sem ætlað er að tengja Siglufjörð við Fljótin. Um er að ræða 24 kílómetra vegagerð og 5,3 km löng jarðgöng. Innlent 14. nóvember 2025 13:33
Stöndum vörð um Héraðsvötnin! Fyrir hönd SUNN, Samtaka um náttúruvernd á Norðurlandi, gagnrýni ég harðlega tillögu um að færa virkjanakosti í Héraðsvötnum í biðflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar. Skoðun 31. október 2025 09:32