„Lifði eins og greifi“ á kostnað bróður síns með því að svíkja út vörur í kaupfélaginu Jón Þór Stefánsson skrifar 14. maí 2026 18:02 Húsnæði Kaupfélags Skagfirðinga á Sauðárkróki. Vísir/Vilhelm Héraðsdómur Norðurlands vestra dæmdi í gær karlmann í níu mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir fjársvik sem beindust að bróður hans. Á árunum 2016 til 2021 sveik maðurinn út vörur úr verslunum Kaupfélags Skagfirðinga, það eru Skagfirðingabúð, Verslun Eyri og Bifreiðaverkstæði kaupfélagsins. Það gerði hann með því að skuldfæra vörur á viðskiptareikning sem hann hafði vitneskju um.
Það mun hann hafa gert í alls 303 skipti, en í ákæru var hann sagður hafa hagnýtt sér rangar eða óljósar hugmyndir starfsmanna um heimild hans til þess. Andvirði þess sem hann sveik út er metið á rúmlega 6,3 milljónir króna. Í málinu lágu fyrir skilaboð sem dóttir bróðurins sendi manninum, föðurbróður sínum, en þar talaði hún um að þau hefðu getað safnað fyrir húsi með þessum peningum og að hann hafi „jú lifað eins og greifi á okkar kostnað“. Kaupfélagið sjálft sendi dómstólnum svör varðandi málið. Í þeim kom fram að „tölvukerfið væri gamalt og byði ekki upp á að hafa skráða aðila sem gætu tekið út af ákveðnum reikningum en til stæði að uppfæra kerfið. Sendir væru út reikningar um hver mánaðamót og ef einstaklingum þætti eitthvað athugavert við þá væri það skoðað. Það væri því hægt að skrifa á reikning í nafni annars aðila eins og er.“ Illa settur og hjálpaði við bústörf Fyrir dómi sagði maðurinn að hann hafi gert samkomulag við hann um þessar úttektir. Hann hafi fengið að taka af reikningnum og hann aðstoðað bróður sinn í staðinn við bústörf. Þetta hafi komið til þar sem hann væri illa settur fjárhagslega. Þeir hafi ekki rætt um umfang úttektanna. Í málsvörn hans var bent á að hann hafi alltaf skrifað eigið nafn undir reikningana. Treysti sínu fólki Bróðirinn sagði fyrir dómi að grunsemdir hans hafi vaknað um að eitthvað furðulegt væri á seyði þegar hann hafi verið farinn að beina viðskiptum sínum annað en til Kaupfélagsins í auknum mæli en reikningarnir þaðan ekki lækkað. Hann hafi þó ekki skoðað það nánar, sem hann viðurkennir að hafi verið kæruleysi, en hann hafi treyst sínu fólki. Héraðsdómur Norðurlands vestra.Já.is Eiginkona bróðurins, mágkona mannsins, sagði fyrir dómi að þegar upp hafi komist um hver ætti í hlut hafi þau boðað hann á sáttafund. Þar hafi hann gengist við því að þetta væri ekki í lagi og beðið um að fá að greiða til baka 50 þúsund krónur á mánuði. Það hafi hann gert í þrjá mánuði og síðan hætt því. Þá sagði hún að þegar maðurinn hafi hjálpað þeim með bústörf hafi þau greitt honum sérstaklega fyrir það. Fremur komist upp hefði hann skrifað annað nafn Í niðurstöðukafla dómsins var lítið gefið fyrir skýringu mannsins að hann hafi ritað eigið nafn á kvittanirnar, og það sanni að hann hafi haft heimildir til úttektanna. Í dómnum segir að svo megi ætla í fámennu samfélagi að starfsfólk kaupfélagsins hafi þekkt hann „og því hefði fremur komist upp um háttsemi hans ef hann hefði skrifað þar annað nafn en sitt eigið“. Líkt og áður segir var maðurinn sakfelldur og dæmdur í skilorðsbundið fangelsi. Honum er gert að greiða bróður sínum rúmlega 6,3 milljónir auk vaxta. Og þá er honum gert að greiða 2,6 milljónir í sakarkostnað og 1,1 milljón í málskostnað.
Dómsmál Skagafjörður Efnahagsbrot Verslun Mest lesið Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Innlent Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Innlent Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi Innlent „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans Innlent „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Áslaug getur fengið tæpar tíu milljónir í biðlaun Innlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Fleiri fréttir Vill ekki tjá sig um ráðningarviðræður „Ó, mér líður svo vel“ Vindmyllan á stærð við tvær Hallgrímskirkjur Draga aflvana bát til hafnar nær Öndverðarnesi Rýnt í flókna stöðu Icelandair Skilur áhyggjur af afslætti en mun nýta heimildina eins og hægt er Segir EES-samninginn einan og sér ekki duga lengur Reynsluboltinn í Hæstarétti hættur: „Þetta var komið gott“ Nýr meirihluti kynnir forgangslistann Keili formlega slitið Beðið í nærri tvö ár eftir gögnum um Airbus og Reykjavíkurflugvöll Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Vara við umfangsmiklum netsvikum í nafni lögreglunnar Sóttu ökumann sem slasaðist í mótorhjólaslysi Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Hafa engar upplýsingar um Sindra Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans „Það hefnir sín oft að yrkja ljóð“ Fjárdráttur lögmanns hjá héraðssaksóknara Lögregla leitar vitna í innbrotsmáli Reykjabús Tilfinningaþrungin stund á Alþingi og nýr leik- og grunnskóli að rísa í Reykjavík Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Ef þeir hafi ekki aga gerist ekki neitt Áslaug Arna hættir á Alþingi Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Leita Íslendings í Taílandi Steingrímur Ari Arason er látinn Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi Sjá meira