Fyrirmyndarverkefni í grunnskólum Reykjavíkurborgar Steinn Jóhannsson og Arndís Seinþórsdóttir skrifa 9. mars 2026 09:33 Í Reykjavík eru tæplega 40 grunnskólar, hver með sína sérstöðu og styrkleika. Sú sérstaða birtist meðal annars í fjölbreytni nemendahóps, öflugu starfsfólki, aðstöðu og staðsetningu skólanna. Allir grunnskólar borgarinnar leggja ríkan metnað í að skapa fjölbreytt og skapandi námsumhverfi í takt við Menntastefnu Reykjavíkur – Láttu draumana rætast. Nýlega voru afhent Hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs fyrir skólaárið 2025–2026. Verðlaunin eru viðurkenning á öflugu frumkvöðlastarfi í grunnskólum borgarinnar og hvatning til frekari þróunar og nýsköpunar. Verðlaunaverkefnin endurspegla sköpunarkraftinn, fagmennskuna og framtíðarsýnina sem einkenna skólastarfið í Reykjavíkurborg. Verkefnin sem hlutu viðurkenningu voru: Rimaskóli – Fjölbreytt nálgun í náttúruvísindakennslu á unglingastigi. Þar hefur verið byggt upp framsækið og upplifunarmiðað námsumhverfi sem styður virkni nemenda, sköpun og fjölbreyttar námsleiðir. Námsmatið er hvetjandi og býður nemendum upp á að sýna hæfni sína á ólíkan hátt. Laugarnesskóli – Skólabókasafnið sem hjartað í skólasamfélaginu. Áralangt þróunarstarf hefur skapað menningu þar sem lestur er ekki aðeins hluti af námi, heldur uppspretta gleði, forvitni og sjálfstrausts. Árangurinn sést skýrt: ánægja nemenda með lestur er langt yfir landsmeðaltali og útlán eru þau hæstu á íslensku skólabókasafni. Engjaskóli – Hamingjuhópurinn. Verkefnið, sem hófst 2021, hefur það markmið að draga úr einmanaleika og efla vellíðan. Hópurinn, skipaður fulltrúum allra árganga miðstigs, vinnur með félags- og tilfinninganám, greinir niðurstöður hamingjukvarða og mótar aðgerðir byggðar á gagnreyndum aðferðum ásamt hugmyndum frá nemendum sjálfum. Verkefnin voru kynnt á Öskudagsráðstefnu grunnskóla borgarinnar 18. febrúar síðastliðinn. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Reykjavíkur. Grunnskólar Reykjavíkur eru lifandi samfélög þar sem fagmennska, sköpunarkraftur og hlýtt viðmót starfsfólks mynda sterkan grunn að farsæld barna og ungmenna. Verkefnin sem hér hafa verið kynnt eru aðeins brot af því metnaðarfulla starfi sem á sér stað á hverjum einasta degi í skólum borgarinnar. Markmiðið er að byggja upp skóla þar sem sérstaða hvers barns fær að blómstra og draumar þeirra fá að rætast í samræmi við Menntastefnu borgarinnar. Frumkvöðlastarf í skólum er í því samhengi ómetanlegt – það skapar rými fyrir nýjar hugmyndir, gefur starfsfólki og nemendum tækifæri til að prófa, þróa og móta lausnir sem endurspegla þarfir samfélagsins hverju sinni. Þegar skólar stíga fram af hugrekki, með frumkvæði og faglega forvitni verður til menning sem er öðrum innblástur í skólasamfélaginu. Slík verkefni geta orðið öðrum til eftirbreytni; þau sýna að nýsköpun er ekki aðeins stór orð heldur daglegt starf sem styrkir fagmennsku, eflir námsumhverfi og skapar jákvæða framtíðarsýn. Steinn Jóhannsson sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs.Arndís Steinþórsdóttir, skrifstofustjóri grunnskólaskrifstofu á skóla- og frístundasviði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Reykjavík Grunnskólar Steinn Jóhannsson Mest lesið Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun