Chris Bosh vaknaði í eigin blóðpolli: „Glaður að vera á lífi“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. febrúar 2026 22:46 Chris Bosh faðmar hér LeBron James fyrrum samherja sinn hjá meistaraliði Miami Heat. Getty/Michael Reaves Körfuboltagoðsögnin Chris Bosh hefur sagt söguna af mjög óhugnanlegri upplifun sinni.
Fyrrverandi körfuboltastjarnan úr NBA-deildinni var að gera sig tilbúinn til að fara á stefnumót með eiginkonu sinni. Á næsta augnabliki vaknaði hann á gólfinu í eigin blóði. „Ég er glaður að vera á lífi,“ sagði hinn 41 árs gamli Bosh en í myndbandi á samfélagsmiðlum segir hann frá því sem gerðist. „Þið sjáið að ég er enn að jafna mig,“ sagði Bosh og benti á augun á sér. Hann kallar þetta „brjálæði“ og „ógnvekjandi“ og það gerðist fyrirvaralaust. Some things change you overnight. I wrote about my experience. pic.twitter.com/d8tYNsnvx5— Chris Bosh (@chrisbosh) February 25, 2026 Hann hefur einnig skrifað um þetta undir fyrirsögninni „Aftur úr myrkrinu“. „Ég rankaði hægt og rólega við mér í blóðpolli á meðan eiginkona mín talaði í ofboði við 911. Ég reyndi að hreyfa líkamann eins og ég hafði alltaf gert, en hann brást ekki við. Það var ekkert annað í stöðunni en að gefast upp. Þetta var ógnvekjandi upplifun, eitthvað sem ég hafði aldrei upplifað áður,“ skrifaði Bosh. „Það var þá sem ég áttaði mig á því: allt getur hrunið á einu augabragði. Það kemur ekki alltaf viðvörun. Það eru ekki alltaf einkenni eða aðdragandi sem segir þér hvað er í vændum. Eina stundina ertu á fótum. Þá næstu gætirðu verið farinn,“ skrifaði Bosh. Bosh líður betur núna og segir að atvikið – sem hann vill ekki fara nánar út í – hafi gefið honum nýja sýn á lífið. „Nú hugsa ég um hvernig ég lifi lífi mínu dag frá degi,“ sagði Bosh Chris Bosh var hluti af sigursælu liði Miami Heat ásamt LeBron James og Dwyane Wade. Þeir unnu NBA-titilinn bæði 2012 og 2013. Hann hefur einnig unnið Ólympíugull með Bandaríkjunum árið 2008. Bosh þurfti að hætta að spila körfubolta árið 2016 vegna endurtekinna blóðtappa.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Japan - Ísland | Strákarnir okkar í Tókýó Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Fleiri fréttir „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Sjá meira