Taka Amaroq af markaði í Kanada Árni Sæberg skrifar 18. febrúar 2026 11:54 Eldur Ólafsson er stofnandi og forstjóri málmleitarfélagsins Amaroq minerals, sem vinnur að gullgreftri í Grænlandi. Amaroq hefur óskað eftir afskráningu hlutabréfa sinna úr TSX Venture-kauphöllinni í Kanada. Gert er ráð fyrir að afskráningin taki gildi við lok viðskipta þann 19. mars 2026. Þá stefnir félagið á skráningu á aðalmarkað kauphallarinnar í London í stað vaxtarmarkaðar þar í borg.
Í tilkynningu þess efnis til Kauphallar segir að hlutabréf félagsins, í formi hlutdeildarskírteina sem gefin eru út af Computershare Investor Services PLC í Bretlandi, muni áfram vera skráð og í viðskiptum á AIM, Nasdaq Iceland og OTCQX. Lítil velta Frá því að hlutabréf Amaroq hafi verið tekin til viðskipta á AIM og Nasdaq Iceland hafi dagleg velta með hlutabréf félagsins í Kanada verið tiltölulega lág miðað við heildarveltu á öllum mörkuðum. Í ljósi þessarar lágu veltu telji félagið að sá kostnaður og þær kvaðir sem fylgja því að viðhalda skráningu á TSX-V réttlæti ekki áframhaldandi skráningu í Kanada. Samþykki hluthafa vegna afskráningarinnar sé ekki áskilið þar sem hlutabréf félagsins verði áfram skráð á AIM og Nasdaq Iceland, sem teljist fullnægjandi markaðir samkvæmt reglum TSXV. Af vaxtarmarkaði á aðalmarkað Eins og áður hafi verið greint frá hafi félagið haft til skoðunar að færa skráningu sína í London af AIM yfir á Aðalmarkað Kauphallarinnar í London (e. LSE Main Market) og jafnframt skrá hlutabréfin á opinberan lista Breska fjármálaeftirlitsins með það að markmiði að breikka og styrkja fjárfestahóp félagsins enn frekar. „Með vaxandi umfangi og stærð starfsemi Amaroq er orðið ljóst að til þess að fá aðgang að frekari stuðningi stofnanafjárfesta og vísitölusjóða er aðalmarkaður LSE, samhliða Nasdaq Iceland, heppilegasti vettvangurinn til að styðja við áframhaldandi vöxt félagsins. Amaroq staðfestir að félagið hyggst ljúka þessum flutningi á árinu 2026 og hefur skipað Citigroup Global Markets Limited sem umsjónaraðila og ráðgjafa.“
Amaroq Minerals Kauphöllin Kanada Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira