Kerfið er vandamálið ef það styður ekki nýsköpun Sunna Sæmundsdóttir skrifar 21. febrúar 2026 23:32 Hávær umræða hefur verið um vanda Landspítalans. Sérfræðingur hjá Fjársýslu ríkisins segir nauðsynlegt að huga að rót vandans og lausnum er byggja á nýsköpun. Vísir/Vilhelm Með nýsköpun í heilbrigðiskerfinu er hægt að framlengja sjálfstæða búsetu fólks, draga úr þörf fyrir innlagnir og leysa stóran vanda, að mati sérfræðings hjá Fjársýslu ríkisins. Framlínustofnanir þurfi að snúa bökum saman og kerfið eigi að treysta heilbrigðisstarfsfólki til þess að leita lausna. „
Þegar við horfum á heilbrigðiskerfið okkar núna að þá blasa við ákveðin pressumál; flöskuhálsar á sjúkrahúsum og biðlistar eftir hjúkrunarrýmum. Þetta eru akút verkefni sem verður bara að leysa, ég held að það sé alveg augljóst. En til þess að varna svona ástandi þarf líka að horfa á rót vandans og það þyrfti að vera hægt að framlengja sjálfstæða búsetu þeirra sem ekki þurfa að leggjast inn á sjúkrahús,“ segir Sveinbjörn Ingi Grímsson, sem starfar á sviði nýsköpunar og viðskiptaþróunar hjá Fjársýslu ríkisins. Sveinbjörn Ingi Grímsson, sérfræðingur hjá Fjársýslu ríkisins.vísir/aðsend Að þessu markmiði megi vinna með innleiðingu nýrra lausna og aðferða. Búið sé að skilgreina fjarheilbrigðisþjónustu í lögum og ekkert standi því í vegi að fólk geti ráðist í slík verkefni. Sveinbjörn segir fordæmin hins vegar fá og þróunina hæga. Verkefni sem hafi þó komist á laggirnar hafi gefið góða raun, til dæmis úrræði á Suðurlandi sem nefnist heimaspítali fyrir aldraða. „Sem var þá í rauninni bara hugsjónarstarf eins öldrunarlæknis í umdæminu sem var að koma heim frá Svíþjóð þar sem viðkomandi hafði sér breytta aðferðafræði við að veita heilbrigðisþjónustu til aldraða sem virkaði. Og áhrifin voru þau að aldraðir þurftu að leggjast sjaldnar inn á bráðamóttöku og það fækkaði legudögum í hvert skipti. Aðferðin sem var notuð fólst einungis í því að í stað þess að krefja sjúklinga um að koma til lækna inn á sjúkrahús að þá fóru læknar og hjúkrunarfræðingar til þeirra,“ segir Sveinbjörn. Sveinbjörn hvetur stofnanir í heilbrigðiskerfinu til þess að snúa bökum saman og leita leiða til nýsköpunar. Hann bendir á að skrifstofu stafrænnar heilsu hafi verið komið á laggirnar innan heilbrigðisráðuneytisins í ársbyrjun og hafi nú það hlutverk að leiða framþróun í þessum málum. „Við erum ofboðslega varfærin þegar kemur að breytingum í heilbrigðiskerfinu, sem er rétt og við verðum að vera það. En við megum heldur ekki vera áhættufælin. Við verðum að vera tilbúin til þess að taka lítil skref í rétta átt,“ segir Sveinbjörn. Starfsmenn bráðamóttöku kröfðust aðgerða á baráttufundi í síðustu viku.vísir/Lýður Valberg „Þetta krefst þess að stofnanir séu tilbúnar að stíga nýjan dans og ganga í takt. Stuðla að því að það sé auðvelt að sækja sér góðar upplýsingar og fá leiðsögn frá hinu opinbera. Ég held það sé ekkert tæknilega því til fyrirstöðu, þetta snýst um bara einhug og samstarfsvilja.“ Einnig séu tækifæri til þess að ná fram hagræðingu og sparnaði. Sveinbjörn bendir á að horfa þurfi heilstætt á áhrif nýsköpunaraðgerða þar sem kostnaður við innleiðingu geti skapast hjá einni stofnun á meðan áhrif sparnaðar koma fram hjá annarri. Skýr pólitísk viðmið þurfi um að stofnanir skapi hagræði fyrir heildina en ekki einungis eigin fjárlagalið. Leita ætti leiða til þess að tryggja að aldraðir sem ekki þurfa að fara á sjúkrahús geti verið lengur heima.vísir/Arnar Treysta eigi heilbrigðisstarfsfólki og stjórnendum til þess að ráðast í aðgerðir. „Það er fólkið sem við viljum geta treyst og við getum það. Ef við leyfum þeim ekki að hafa atvinnurými sem þarf til þess að ná árangri og gefa þeim heimildir til þess að breyta og fara í umbætur, að þá erum við vandamálið, þá erum við að halda aftur af framþróun. Treystum heilbrigðisstarfsfólki og treystum stjórnendum stofnana, sem að hafa metnað fyrir því að ná fram nýjungum eða framförum, og sjáum hvort það verði ekki til einhverjir töfrar úr því.“
Heilbrigðismál Landspítalinn Ástand á bráðamóttöku Landspítalans Nýsköpun Eldri borgarar Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fleiri fréttir Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Sjá meira