Viðgerð vegna eldsvoða að ljúka og Landspítali fær pláss Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 17. febrúar 2026 13:53 Hjúkrunarheimili Hrafnistu að Sléttuvegi getur tekið við 22 sjúklingum frá Landspítala sem hafa beðið eftir hjúkrunarrýmum. Viðgerð vegna eldsvoða er lokið á einni deild og verður lokið á annarri á næstu mánuðum. Vísir Hrafnista tekur í vikunni við ellefu skjólstæðingum Landspítala sem hafa beðið þar inni eftir hjúkrunarrými. Ástæðan er að viðgerðum er lokið á jafnmörgum hjúkrunarrýmum við Sléttuveg eftir alvarlegan bruna í nóvember. Þá verður hægt að taka á móti enn fleirum þegar húsnæðið verður að fullu tilbúið á næstu mánuðum.
Ófremdarástand hefur ríkt á Landspítalanum vegna álags á bráðadeild og svokallaðs fráflæðisvanda sem felst í að fólk liggur inni á spítalanum og getur ekki útskrifast vegna skorts á hjúkrunarrýmum. Síðustu daga hafa allt að hundrað og tuttugu sjúklingar verið í slíkri stöðu á spítalanum. Meðal þeirra sem hafa boðið legurými er einkarekna læknamiðstöðin Klíníkin, þá hefur gamalt hjúkrunarheimili í Reykjanesbæ verið boðið með allt að 30 hjúkrunarrýmum. Stjórnendur Landspítala greindu fréttastofu frá því í gær að stjórnvöld hefðu útvegað sex ný pláss vegna stöðunnar, tvö á hjúkrunarheimilinu Mörk og fjögur á HSS. Þá stæði til að flytja ellefu manns á Hrafnistuheimilin því búið væri að gera við rými á Sléttuvegi eftir bruna í nóvember. Viðgerð vegna bruna að ljúka Valgerður Kr. Guðbjörnsdóttir forstöðumaður hjúkrunarheimilis, Hrafnistu á Sléttuvegi býst við að hægt verði að taka við fólkinu í þessari viku. „Við erum að opna aftur aðra af tveimur deildum á Sléttuvegi sem við þurftum að loka eftir brunann sem varð hér í nóvember. Það veldur því að Hrafnista mun geta tekið við ellefu manns sem bíða eftir hjúkrunarrými á Landspítalanum strax í þessari viku. Hin deildin er enn lokuð en við búumst við að viðgerðum verði lokið þar fyrir páska og þá getum við tekið við öðrum eins fjölda frá Landspítalanum,“ segir Valgerður. Furða sig á að eldur hafi komið upp í nýrri rafmagnstöflu Aðeins rúm fimm ár eru síðan hjúkrunarheimilið að Slettuvegi var opnað en eldurinn kviknaði í rafmagnstöflu þar. Stjórnendur sem fréttastofa ræddi við segja að enn hafi ekki komið í ljós af hverju eldurinn kviknaði í rafmagnstöflunni sem er enn tiltölulega ný. Eldsvoðinn hafi valdið gríðarlegu tjóni á Sléttuvegi en það hafi þurft að endurnýja allt rafmagn og gera við lagnir ásamt því að endurbyggja það sem brann. Valgerður segir að fólki hafi brugðið verulega þegar það kviknaði í. „Þetta er tiltölulega nýtt hús og maður gerir aldrei ráð fyrir að svona geti gerst en það unnu allir bara rosalega vel saman þegar þetta gerðist. Starfsfólk vann algjört þrekvirki við að koma öllum út á innan við fjórum mínútum. Þá var fólk afar lausnamiðað við að taka við þeim sem við þurftum að flytja til vegna eldsvoðans. Loks hefur umfangsmiklum viðgerðum miðað vel. Við vitum hins vegar enn ekki hvers vegna það kviknaði í,“ segir Valgerður að lokum.
Landspítalinn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Heilbrigðismál Eldri borgarar Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Fleiri fréttir Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Sjá meira