Að fljóta sofandi að feigðarósi í boði Viðskiptaráðs Sveinn Atli Gunnarsson skrifar 15. febrúar 2026 07:00 Viðskiptaráð Íslands er ekki vísindastofnun. Þetta eru sannindi sem virðast stundum gleymast í glansandi skýrslum ráðsins. Hlutverk þess er nefnilega ekki að finna bestu leiðina til að bjarga Jörðinni út úr loftslagsvandanum, enda væri það kannski til of mikils mælst, heldur að tryggja að útvalin fyrirtæki þurfi ekki að greiða fyrir skaðann sem þau valda. Í það minnsta ekki á næsta ársfjórðungi, eða á meðan bónusgreiðslur stjórnenda eru innan seilingar. Skammtímahugsun sem trúarbrögð Vandamálið við nálgun ráðsins er sú lamandi skammtímahugsun sem einkennir starfsemina. Í stað þess að undirbúa íslenskt atvinnulíf undir kolefnislausan framtíðarmarkað, er púðrinu eytt í að verja „flugið eins og það er núna“, með öllum sínum útblæstri og úreltu viðskiptamódelum. Það er dýrt að hugsa fram í tímann, og því virðist Viðskiptaráð telja vænlegast að fresta raunveruleikanum með því að vitna í handvalin gögn sem spá efnahagslegum ragnarökum ef mengun fær verðmiða. Þetta er ekki framtíðarsýn; þetta er tilraun til að friðlýsa fortíðina á meðan heimurinn brennur. Samkeppnishæfni í boði undanþága Það er dásamlega kaldhæðnislegt að fylgjast með Viðskiptaráði berjast fyrir „jafnri samkeppnisstöðu“ gagnvart ETS-kerfinu. Í þeirra huga þýðir það nefnilega ekki að allir eigi að borga jafnt fyrir mengun, heldur að Ísland eigi að vera einhvers konar „skattaskjól fyrir kolefni“ á miðju Atlantshafi. Í stað þess að sýna lágmarks forystu og krefjast þess að kolefnisgjöld leggist jafnt á flug um allan heim, sem myndi raunverulega jafna leikvöllinn og stöðva kolefnisleka, velur ráðið minnstu mótstöðuna: Undanþáguna. Þau vilja frekar rífa okkur út úr sameiginlegum leikreglum EES-samstarfsins en að krefjast þess að mengun hafi alls staðar sama verðmiða. Það er jú miklu þægilegra að biðja um sérstakt „VIP-leyfi“ til að skemma loftslagið en að leggja vinnu í kerfisbundnar lausnir sem munu raunverulega fleyta okkur inn í framtíðina. Markaðslausnir fyrir öll – nema okkur Það er djúp kaldhæðni fólgin í því að samtök sem alla jafna upphefja frjálsan markað og lágmarksafskipti ríkisins, hrópi nú á pólitísk afskipti og sérlausnir til að sleppa við markaðsöfl kolefnisverðlagningar. Markaðurinn á greinilega bara að vera frjáls þegar hann hækkar hagnaðinn, ekki þegar hann rukkar fyrir útblásturinn. Þetta er þróun sem hefur legið fyrir í mörg ár, en Viðskiptaráð kaus að fljóta sofandi að feigðarósi í stað þess að nýta tímann til að undirbúa íslenskt atvinnulíf undir þennan óumflýjanlega raunveruleika. Við höfum einfaldlega ekki efni á þessari einangrunarstefnu, sem gæti endað með því að við getum ekki nýtt EES-samstarfið að fullu í framtíðinni. Loftslagsvandinn verður ekki leystur með því að „plokka“ rúsínurnar úr alþjóðasamningum og henda því sem truflar hagnaðinn til skamms tíma. Það er kominn tími til að Viðskiptaráð átti sig á því að hagsmunir dagsins í dag eru einskis virði ef við eigum enga hagsmuni eftir á morgun. Loftslagsváin er raunveruleg og hún krefst metnaðar og áræðni, tvennt sem Viðskiptaráð virðist sárvanta. Greinarhöfundur er í loftslagshópnum París 1,5 sem berst fyrir því að Íslandi leggi sitt af mörkum til að leysa loftslagsvandann. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sveinn Atli Gunnarsson Tengdar fréttir Hitamál Flatjarðarsinna Ég hef lengi fylgst með fólki sem afneitar vísindum, sérstaklega loftslagsvísindum. Oft þegar ég rekst á slíka umræðu rifjast upp fyrir mér að það er líka fólk þarna úti sem heldur í alvörunni að jörðin sé flöt og ver tíma sínum í að rökræða það við annað fullorðið fólk á netinu. Flest getum við líklega verið sammála um að það sé ekki sérlega gáfuleg iðja. Við köllum það bara vitleysu og höldum áfram með lífið. 23. janúar 2026 08:00 Mýtuvaxtarverkin - inngangskúrs í loftslagsafneitun Velkomin í Mýtuvaxtarverkin - inngangskúrs í loftslagsafneitun. Þessi kúrs er ekki fyrir hvaða smámenni sem er, heldur fyrir þá sem „vita allt” og eru tilbúnir að segja það upphátt, lengi, af mikilli sannfæringu og nánast engri umhugsun. Sjálfsöryggið á bak við orðin eru, að sjálfsögðu, helsta forsenda glæstra sigra í loftslagsumræðunni. 10. janúar 2026 08:47 Viltu nýja brú eða nýtt hné? Ódýrt lýðskrum gegn loftslagsaðgerðum Það er ákveðin, dáldið dýrkeypt, skemmtun fólgin í því að lesa loftslagspistla undir viðskiptasíðum mbl.is. Þar virðist vera starfrækt sérstök deild sem sérhæfir sig í að mála vísindalega samstöðu heimsins sem dularfullt samsæri til þess eins að hafa af almenningi peninga. 4. febrúar 2026 13:33 Mýtuvaxtarækt loftslagsafneitunar Afneitun loftslagsvísinda virðist lúta sínum eigin lögmálum. Hún hverfur aldrei alveg, heldur sekkur tímabundið undir yfirborðið og sprettur svo upp aftur. Sömu mýtur, mótrök og rangfærslur endurkastast aftur og aftur, stundum í nýjum búningi en oftar úr sama hráefni. 18. desember 2025 16:03 Mest lesið Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson Skoðun Hvað verður um störfin okkar? Auður Alfa Ólafsdóttir Skoðun Hagræðing fyrir hvern? Stefán Pettersson Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Viðskiptaráð Íslands er ekki vísindastofnun. Þetta eru sannindi sem virðast stundum gleymast í glansandi skýrslum ráðsins. Hlutverk þess er nefnilega ekki að finna bestu leiðina til að bjarga Jörðinni út úr loftslagsvandanum, enda væri það kannski til of mikils mælst, heldur að tryggja að útvalin fyrirtæki þurfi ekki að greiða fyrir skaðann sem þau valda. Í það minnsta ekki á næsta ársfjórðungi, eða á meðan bónusgreiðslur stjórnenda eru innan seilingar. Skammtímahugsun sem trúarbrögð Vandamálið við nálgun ráðsins er sú lamandi skammtímahugsun sem einkennir starfsemina. Í stað þess að undirbúa íslenskt atvinnulíf undir kolefnislausan framtíðarmarkað, er púðrinu eytt í að verja „flugið eins og það er núna“, með öllum sínum útblæstri og úreltu viðskiptamódelum. Það er dýrt að hugsa fram í tímann, og því virðist Viðskiptaráð telja vænlegast að fresta raunveruleikanum með því að vitna í handvalin gögn sem spá efnahagslegum ragnarökum ef mengun fær verðmiða. Þetta er ekki framtíðarsýn; þetta er tilraun til að friðlýsa fortíðina á meðan heimurinn brennur. Samkeppnishæfni í boði undanþága Það er dásamlega kaldhæðnislegt að fylgjast með Viðskiptaráði berjast fyrir „jafnri samkeppnisstöðu“ gagnvart ETS-kerfinu. Í þeirra huga þýðir það nefnilega ekki að allir eigi að borga jafnt fyrir mengun, heldur að Ísland eigi að vera einhvers konar „skattaskjól fyrir kolefni“ á miðju Atlantshafi. Í stað þess að sýna lágmarks forystu og krefjast þess að kolefnisgjöld leggist jafnt á flug um allan heim, sem myndi raunverulega jafna leikvöllinn og stöðva kolefnisleka, velur ráðið minnstu mótstöðuna: Undanþáguna. Þau vilja frekar rífa okkur út úr sameiginlegum leikreglum EES-samstarfsins en að krefjast þess að mengun hafi alls staðar sama verðmiða. Það er jú miklu þægilegra að biðja um sérstakt „VIP-leyfi“ til að skemma loftslagið en að leggja vinnu í kerfisbundnar lausnir sem munu raunverulega fleyta okkur inn í framtíðina. Markaðslausnir fyrir öll – nema okkur Það er djúp kaldhæðni fólgin í því að samtök sem alla jafna upphefja frjálsan markað og lágmarksafskipti ríkisins, hrópi nú á pólitísk afskipti og sérlausnir til að sleppa við markaðsöfl kolefnisverðlagningar. Markaðurinn á greinilega bara að vera frjáls þegar hann hækkar hagnaðinn, ekki þegar hann rukkar fyrir útblásturinn. Þetta er þróun sem hefur legið fyrir í mörg ár, en Viðskiptaráð kaus að fljóta sofandi að feigðarósi í stað þess að nýta tímann til að undirbúa íslenskt atvinnulíf undir þennan óumflýjanlega raunveruleika. Við höfum einfaldlega ekki efni á þessari einangrunarstefnu, sem gæti endað með því að við getum ekki nýtt EES-samstarfið að fullu í framtíðinni. Loftslagsvandinn verður ekki leystur með því að „plokka“ rúsínurnar úr alþjóðasamningum og henda því sem truflar hagnaðinn til skamms tíma. Það er kominn tími til að Viðskiptaráð átti sig á því að hagsmunir dagsins í dag eru einskis virði ef við eigum enga hagsmuni eftir á morgun. Loftslagsváin er raunveruleg og hún krefst metnaðar og áræðni, tvennt sem Viðskiptaráð virðist sárvanta. Greinarhöfundur er í loftslagshópnum París 1,5 sem berst fyrir því að Íslandi leggi sitt af mörkum til að leysa loftslagsvandann.
Hitamál Flatjarðarsinna Ég hef lengi fylgst með fólki sem afneitar vísindum, sérstaklega loftslagsvísindum. Oft þegar ég rekst á slíka umræðu rifjast upp fyrir mér að það er líka fólk þarna úti sem heldur í alvörunni að jörðin sé flöt og ver tíma sínum í að rökræða það við annað fullorðið fólk á netinu. Flest getum við líklega verið sammála um að það sé ekki sérlega gáfuleg iðja. Við köllum það bara vitleysu og höldum áfram með lífið. 23. janúar 2026 08:00
Mýtuvaxtarverkin - inngangskúrs í loftslagsafneitun Velkomin í Mýtuvaxtarverkin - inngangskúrs í loftslagsafneitun. Þessi kúrs er ekki fyrir hvaða smámenni sem er, heldur fyrir þá sem „vita allt” og eru tilbúnir að segja það upphátt, lengi, af mikilli sannfæringu og nánast engri umhugsun. Sjálfsöryggið á bak við orðin eru, að sjálfsögðu, helsta forsenda glæstra sigra í loftslagsumræðunni. 10. janúar 2026 08:47
Viltu nýja brú eða nýtt hné? Ódýrt lýðskrum gegn loftslagsaðgerðum Það er ákveðin, dáldið dýrkeypt, skemmtun fólgin í því að lesa loftslagspistla undir viðskiptasíðum mbl.is. Þar virðist vera starfrækt sérstök deild sem sérhæfir sig í að mála vísindalega samstöðu heimsins sem dularfullt samsæri til þess eins að hafa af almenningi peninga. 4. febrúar 2026 13:33
Mýtuvaxtarækt loftslagsafneitunar Afneitun loftslagsvísinda virðist lúta sínum eigin lögmálum. Hún hverfur aldrei alveg, heldur sekkur tímabundið undir yfirborðið og sprettur svo upp aftur. Sömu mýtur, mótrök og rangfærslur endurkastast aftur og aftur, stundum í nýjum búningi en oftar úr sama hráefni. 18. desember 2025 16:03
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun