Segir einkaaðila ekki hafa fengið svör í marga mánuði Smári Jökull Jónsson skrifar 14. febrúar 2026 12:30 Rósa Guðbjartsdóttir er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og situr í velferðarnefnd. Vísir/Vilhelm Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að endurskoða þurfi hvernig bráðamóttaka Landspítala sé sett upp og rekin. Ákveða þurfi að breyta fyrirkomulaginu til að sýna starfsmönnum og skjólstæðingum meiri mannúð og virðingu.
Málefni bráðamóttöku Landspítala hafa verið til umræðu síðustu daga og í viðtali í kvöldfréttum Sýnar í gær sagði heilbrigðisráðherra að til greina kæmi að semja við einkareknar heilbrigðisstofnanir til að bregðast við vandanum. Nú standa yfir viðræður við Klíníkina varðandi móttöku sjúklinga. Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfsætðisflokksins og fulltrúi í velferðarnefnd, segir skrefin jákvæð og að með því sé verið að taka á fráflæðisvanda sem snúi að öldruðu fólki. „Það sem ég hef verið að benda á er að til framtíðar þurfum við að endurskoða bráðamóttökuna og hvernig hún er sett upp og rekin. Það gengur ekki lengur, og við sjáum það öll sem að höfum þurft að nota þessa þjónustu, að hrúga saman fólki sem að er komið til að fá aðstoð við minniháttar áverkum, lífshættulega slösuðu fólki og veikt og svo aldraðir með ákveðin vandamál,“ sagði Rósa í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar. Einkaðilar ekki fengið svör í marga mánuði Rósa vill að sett verði á laggirnar sérstök bráðadeild fyrir aldraða og segir slíkt fyrirkomulag hafa gefist vel á Norðurlöndunum. Fullreynt sé að ríkið sjái um rekstur bráðamóttöku. Hún gaf lítið fyrir orð heilbrigðisráðherra um að hratt hefði verið brugðist við. „Maður heyrir líka af því að einkaaðilar, sem að segjast hafa haft pláss fyrir til dæmis aldraða, að þeim hafi ekki verið svarað í marga mánuði fyrr en núna. Þegar allt er komið í mikið óefni og starfsfólk er með slík neyðaróp, að það er ekki annað hægt en að bregðast við.“ Ekki spurning um meira fjármagn Gott sé að verið sé að bregðast við en hugsa þurfi starfsemina upp á nýtt. „Sýna bara starfsmönnum og skjólstæðingum meiri mannúð og virðingu með því að breyta þessu fyrirkomulagi og það er bara ákvörðun. Það er ekkert annað en ákvörðun um breytt skipulag.“ „Ekki bara spurning um meira fjármagn og kannski alls ekki, heldur ákvörðun um skipulagsbreytingar og jafnvel þá útvistun verkefna ef að menn vilja fara þá leið, sem væri hægt að mæla með til þess að létta á ríkisrekstrinum.“
Landspítalinn Heilbrigðismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Ástand á bráðamóttöku Landspítalans Tengdar fréttir Vinna að því að fækka sjúklingum og flytja annað Alma Möller heilbrigðisráðherra segir mikilvægast að fækka sjúklingum á spítalanum og flytja þau annað sem hafa lokið meðferð og geta farið annað. Á næstu dögum bætist við hjúkrunar- og dagdvalarrými til að taka við sjúklingum. Hún segir að sér líði ekki vel með stöðu spítalans og vanlíðan starfsfólks. 11. febrúar 2026 20:24 Starfsmaður smitaður af berklum: „Þetta var alveg frekar mikið sjokk“ Hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku Landspítalans sem smitaðist af berklum segir atvikið hafa haft bæði andleg og líkamleg áhrif. Starfið sé hans ástríða en eitthvað verði að gera til að bæta starfsaðstæður. Formaður Félags hjúkrunarfræðinga kallar eftir aðgerðum strax. 11. febrúar 2026 19:45 Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira
Vinna að því að fækka sjúklingum og flytja annað Alma Möller heilbrigðisráðherra segir mikilvægast að fækka sjúklingum á spítalanum og flytja þau annað sem hafa lokið meðferð og geta farið annað. Á næstu dögum bætist við hjúkrunar- og dagdvalarrými til að taka við sjúklingum. Hún segir að sér líði ekki vel með stöðu spítalans og vanlíðan starfsfólks. 11. febrúar 2026 20:24
Starfsmaður smitaður af berklum: „Þetta var alveg frekar mikið sjokk“ Hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku Landspítalans sem smitaðist af berklum segir atvikið hafa haft bæði andleg og líkamleg áhrif. Starfið sé hans ástríða en eitthvað verði að gera til að bæta starfsaðstæður. Formaður Félags hjúkrunarfræðinga kallar eftir aðgerðum strax. 11. febrúar 2026 19:45