Mari Jaersk tilkynnti kynið úti í náttúrunni Magnús Jochum Pálsson skrifar 13. febrúar 2026 15:25 Mari fór út í náttúruna með svarta blöðru til að greina vinkonum sínum frá kyni ófædds barns síns. Ofurhlauparinn Mari Järsk tilkynnti kyn ófædds barns síns og Njarðar Lúðvíkssonar með blöðrusprengingu úti í náttúrunni sem hún birti á Instagram í dag. Von er á barninu í sumar.
Parið greindi frá því í janúarlok að þau ættu von á barni og greindi frá kyni barnsins í Instagram-færslu upp úr 15 í dag. View this post on Instagram A post shared by M A R I J Ä R S K (@mari_jaersk) Í færslunni mátti sjá myndband af Mari hjá Helgu Reynisdóttur ljósmóður, parið opna umslag með upplýsingum um kyn barnsins og svo myndband af móðurinni tilvonandi með vinkonum sínum uppi á jökli. Mari var þar með svarta blöðru merkta „Boy or Girl?“ eða „Strákur eða stelpa?“ áður en hún sprengdi hana við mikil fagnaðarlæti og blá pappírssnifsi streymdu út í náttúruna. Það er því von á sumarstrák. Mari og Njörður kynntust árið 2022 þegar Mari fór í hreyfingarferð til Tenerife og hann í golfferð. Til stóð að koma honum saman með annarri stelpu en þá hafði kviknað neisti á milli hans og Mari. Þegar heim til Íslands var komið bauð Njörður henni á stefnumót og þá var ekki aftur snúið. Sjá einnig: Mari sló met í eggheimtu Mari og Njörður hafa fjallað opinskátt um tilraunir sínar til að eignast barn síðastliðin ár, í desember 2024 ræddi blaðamaður Vísir við hlaupakonuna þar sem hún var nýkomin úr eggheimtu vegna óútskýrðrar ófrjósemi. Það er því vafalaust mikil gleði á heimilinu með að þau eigi loksins von á barni.
Börn og uppeldi Ástin og lífið Tímamót Barnalán Mest lesið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Lífið Lét drauminn rætast á Ítalíu Lífið Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Lífið Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lífið Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Lífið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Lífið „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ Tíska og hönnun Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Lífið Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Tónlist Fleiri fréttir Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Sjá meira