Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni Lovísa Arnardóttir, Sunna Sæmundsdóttir og Kolbeinn Tumi Daðason skrifa 12. febrúar 2026 23:01 Runólfur segist hafa fulla trú á Ölmu en að það virðist þó skipta máli hvaða stöðu fólk gegni hvernig það vilji taka á viðfangsefni bráðamóttökunnar. Sýn Forstjóri Landspítalans segir virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni þegar það skoðar hvernig eigi að taka á stöðu bráðamóttökunnar. Alma Möller, þá landlæknir, sagði í minnisblaði til heilbrigðisráðherra árið 2022 að staðan á bráðamóttökunni væri svo slæm að ef það væri ekki eina bráðamóttakan á landinu myndi hún mæla með því að henni yrði lokað tímabundið.
Starfsmenn bráðamóttökunnar hafa á síðustu dögum ítrekað lýst hættuástandi á deildinni og segja nóg komið í ályktun sem þeir sendu frá sér eftir hitafund í gær. Þar segir að starfsfólk og sjúklingar séu sett í aðstæður þar sem hætta á smiti, slysum, ofbeldi og alvarlegum afleiðingum sé augljós og viðvarandi og tafarlausra úrbóta er krafist. Alma Möller, nú heilbrigðisráðherra, var til svara í kvöldfréttum Sýnar í gær og sagði að á næstu dögum yrðu opnuð 17 hjúkrunarrými og 28 dagdvalarrými. Auk þess myndu bætast við 100 hjúkrunarrými í Urðarhvarfi í maí eða júní og það væri til skoðunar að flýta opnun hluta þeirra. Félag bráðalækna hefur lýst yfir miklum vonbrigðum með viðbrögð Ölmu. Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans, segir þessa þróun búna að vera í gangi síðustu ár en staðan hafi snarversnað á síðustu vikum. „En það var mjög slæmt fyrir. Eftir á að hyggja þá hefðu þurft að koma einhver inngrip,“ segir hann. Rætt var við Runólf í kvöldfréttum Sýnar. Hann segir beðið eftir hjúkrunarrýmunum í Urðarhvarfi en þau hafi tafist eins og opnun viðbyggingar við bráðamóttökuna líka þar sem á að opna bráðamatsdeild. „Sú framkvæmd hefur tafist en engu að síður hefðu þurft að koma inngrip í þetta ferli og aðstæðurnar eru afleitar. Þær lýsingar sem hafa komið fram eiga fullan rétt á sér.“ Allt of margir sjúklingar sem þurfi að komast annað Hann segir spítalann í samtali við stjórnvöld um frekari aðgerðir en það þurfi að skapa legurými fyrir bráðaveika einstaklinga og ástæðan fyrir því að staðan er eins og hún er sé sú að það séu allt of margir sjúklingar sem bíði þess að koma á legudeild. „Það geta verið allt að 60 á hverjum tíma auk þeirra sem streyma inn og þarf að meta.“ Hann segir of lítið af legurýmum og leiðirnar til að skapa slík rými sé að byggja nýtt eða leigja og það taki tíma. Á spítalanum séu líka 120 manns sem bíði þess að komast í hjúkrunarrými og til að bregðast skjótt við sé engin önnur leið en að færa umtalsverðan hluta þeirra frá spítalanum. Aldraðir komist ekki af spítalanum Runólfur segir vandamál spítalans að það taki enginn annar við fólkinu sem til þeirra leitar. Þau reyni að veita þeim þjónustu og að koma þeim heim en þegar fólk er „aldurshnigið“ glími það við sjúkdóma, missi færni og geti ekki farið heim. „Það kemst ekki út af spítalanum. Það þarf sólarhringsþjónustu,“ segir Runólfur og að þessi vandi tengist því auðvitað að það hafi verið vanrækt að byggja upp hjúkrunarheimili. Sem dæmi hafi árið 2019 verið 58 hjúkrunarrými á hverja þúsund íbúa höfuðborgarsvæðisins og við árslok 2024 hafi þau verið orðin 48. „Þetta er óásættanlegt.“ Vildi leggja til að bráðamóttökunni yrði lokað Í kvöldfréttum las Kolbeinn Tumi Daðason, fréttamaður og þulur, upp úr minnisblaði sem Alma Möller, sem landlæknir, sendi á Willum Þór Þórsson, þáverandi heilbrigðisráðherra. Minnisblaðið er ritað í kjölfar heimsóknar á bráðamóttökuna þann 31. maí 2022 og kemur fram að landlæknir hafi margoft heimsótt deildina allt frá því að hún tók við árið 2018. Hún hafi á þeim tíma gert úttektir, lagt fram tilmæli um úrbætur og vakið athygli á þungri stöðu. Í minnisblaðinu er þung staða bráðamóttökunnar rakin. Þar segir að staðan hafi farið bráðversnandi og að það séu engar skyndilausnir. Þar kemur fram að sjúklingafjöldi sé of hár, fólk liggi á göngum deildarinnar og það sé ljóst að „öryggi sjúklinga, friðhelgi einkalífs, persónuvernd og sýkingavarnir sé ekki hægt að tryggja við slíkar aðstæður.“ Þá er einnig í minnisblaðinu fjallað um meðaldvalartíma og mönnun og er niðurstaða landlæknis að staðan hafi aldrei verið verri á bráðamóttökunni og að hún muni líklega þyngjast. Þá segir að deildin sé eina sinnar tegundar á Íslandi og því sé augljóst að ekki sé hægt að leggja til við ráðherra að stöðva rekstur hennar tímabundið því það myndi ógna öryggi sjúklinga gríðarlega.“ „Landlæknir vill þó nefna að ef það væri raunhæfur kostur er staðan þannig á bráðamóttökunni að tilefni hefði verið til að leggja slíkt til. Þess í stað þurfa allir sem að málum koma að sameinast um lausnir,“ segir í minnisblaðinu en Runólfur fékk sjálfur, sem forstjóri Landspítalans, afrit af þessu minnisblaði. Færðu 40 í ágúst en staðan aldrei verri Runólfi virtist nokkuð skemmt í fréttatímanum að rifja þetta upp en segir að það verði að grípa inn í þetta „stórkoslega vandamál“ og snúa því til betri vegar hið bráðasta. Eftir það verði að fylgja því eftir með öðrum lausnum svo það fari ekki í sama farið. Það hafi gerst áður. „Það hafa komið kannski 40 hjúkrunarrými og við höfum getað fært fólk frá Landspítalanum, síðast bara í ágúst, svo fer þetta strax í sama farið aftur. Það er bara fjöldi aldraðra úti í samfélaginu sem er á þeim stað að það má ekki mikið út af bregða og þá er viðkomandi kominn í þessa stöðu.“ Um minnisblað Ölmu sem landlæknis segir Runólfur að það virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegnir hvernig tekið sé á viðfangsefninu. „Ég hef fulla trú á Ölmu, ég er búinn að þekkja hana árum saman og við reynum sameiginlega að koma þessu í viðunandi horf.“ Fjallað var um málið í sjónvarpsfréttum Sýnar.
Landspítalinn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024) Heilbrigðismál Eldri borgarar Hjúkrunarheimili Ástand á bráðamóttöku Landspítalans Berklar Tengdar fréttir Starfsmaður smitaður af berklum: „Þetta var alveg frekar mikið sjokk“ Hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku Landspítalans sem smitaðist af berklum segir atvikið hafa haft bæði andleg og líkamleg áhrif. Starfið sé hans ástríða en eitthvað verði að gera til að bæta starfsaðstæður. Formaður Félags hjúkrunarfræðinga kallar eftir aðgerðum strax. 11. febrúar 2026 19:45 Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Íslenskur karlmaður sem greindist með berkla í ágúst í fyrra eftir að hafa leitað á bráðamóttöku Landspítalans lést á spítalanum í janúarmánuði á þessu ári eftir að meðferð hafði ekki borið árangur. 4. febrúar 2026 07:53 Starfsmenn á bráðamóttöku með berkla en ekki taldir smitandi Að minnsta kosti átta starfsmenn á bráðamóttökunni í Fossvogi í Reykjavík hafa verið útsettir fyrir berklum, en þeir eru hvorki veikir né smitandi. Þá getur vel verið að þeir hafi smitast af bakteríusýkingunni fyrir mörgum árum. 3. febrúar 2026 17:18 Mest lesið Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Erlent Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Fleiri fréttir Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Sjá meira
Starfsmaður smitaður af berklum: „Þetta var alveg frekar mikið sjokk“ Hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku Landspítalans sem smitaðist af berklum segir atvikið hafa haft bæði andleg og líkamleg áhrif. Starfið sé hans ástríða en eitthvað verði að gera til að bæta starfsaðstæður. Formaður Félags hjúkrunarfræðinga kallar eftir aðgerðum strax. 11. febrúar 2026 19:45
Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Íslenskur karlmaður sem greindist með berkla í ágúst í fyrra eftir að hafa leitað á bráðamóttöku Landspítalans lést á spítalanum í janúarmánuði á þessu ári eftir að meðferð hafði ekki borið árangur. 4. febrúar 2026 07:53
Starfsmenn á bráðamóttöku með berkla en ekki taldir smitandi Að minnsta kosti átta starfsmenn á bráðamóttökunni í Fossvogi í Reykjavík hafa verið útsettir fyrir berklum, en þeir eru hvorki veikir né smitandi. Þá getur vel verið að þeir hafi smitast af bakteríusýkingunni fyrir mörgum árum. 3. febrúar 2026 17:18