Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 5. febrúar 2026 09:08 Gylfi Ólafsson, Nanný Arna Guðmundsdóttir, Magnús Einar Magnússon, Sigríður Júlía Brynleifsdóttir og Arna Lára Jónsdóttir. Myndin er fengin af Facebook-síðu Í-listans frá því fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2022. Facebook/Í-listinn Samningaviðræðum um áframhaldandi samstarf aðildarflokka Í-listans í Ísafjarðarbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar hefur verið slitið. Þannig ekki útlit fyrir að boðið verði fram undir merkjum Í-listans í sveitarfélaginu í komandi kosningum en ástæðan er sú að ekki náist samstaða milli aðildarflokkanna um uppstillingu framboðslista né heldur að samræma ólíkar áherslur.
Þetta kemur fram í stuttri tilkynningu frá formanni uppstillingarnefndar Í-listans á Facebook-síðu listans nú í morgun. Fyrir rétt rúmri viku síðan auglýsti uppstillingarnefnd eftir fólki sem væri reiðubúið til að taka þátt í kosningunum í vor, en nú virðist ljóst að aðilar að Í-listanum hafa ekki náð saman. Skilja í sátt og með gagnkvæmri virðingu „Aðildarflokkar Í-listans ákváðu í gærkvöld að slíta samningaviðræðum um áframhaldandi samstarf til komandi sveitarstjórnarkosninga. Ekki náðist full samstaða um uppstillingu framboðslistans. Þrátt fyrir góðan vilja og málefnalegt samtal reyndist ekki unnt að samræma ólíkar áherslur. Aðilar skilja í sátt og með gagnkvæmri virðingu, þakka fyrir það samstarf sem átt hefur sér stað og óska hver öðrum velfarnaðar í komandi verkefnum,“ segir í færslunni, sem Valur Richter, formaður uppstillingarnefndar skrifar undir. Samfylkingin, Viðreisn og VG, auk óháðra, buðu fram sameiginlega undir merkjum Í-listans í síðustu kosningum og var lengst af með eins manns meirihluta í bæjarstjórn. Eftir að Arna Lára Jónsdóttir hætti sem bæjarstjóri Í-listans, eftir að hún var kjörin á Alþingi fyrir Samfylkinguna, tók Sigríður Júlía Brynleifsdóttir við stjórn bæjarins. Aðrir aðalmenn Í-listans í bæjarstjórn eru Gylfi Ólafsson, Nanný Arna Guðmundsdóttir og Magnús Einar Magnússon. Sjá einnig: Sigríður Júlía verður bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar Meirihlutinn féll hins vegar í fyrravor eftir að Þorbjörn H. Jóhannesson hætti stuðningi sínum við meirihlutann. Viðreisnarmaðurinn Gylfi Ólafsson, oddviti Í-listans, sagði á þeim tíma að það væri útilokað að nýr meirihluti yrði myndaður í bæjarstjórn. Andinn í bæjarstjórn væri góður þrátt fyrir væringar. Tekur ekki sæti á lista Í færslu sem Nanný Arna birtir á Facebook í morgun segist hún fyrst hafa verið beðin að taka sæti á lista flokksins árið 2014, en að hún hyggist ekki taka sæti á listanum aftur fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. „Að vinna fyrir sveitarfélagið mitt hefur gefið mér mikið. Ég hef lagt áherslur á umhverfismál, jafnréttismál og málefni sem eru góð fyrir fólk. Ég hef reynt að vera málefnaleg og lagt áherslu á málamiðlanir og gott samstarf. Stundum hef ég þó sett niður fótinn og staðið með pólitískri sannfæringu minni, samanber friðun Jökulfjarða í Strandsvæðaskipulagi Vestfjarða. Verkefnin eru margvísleg, oftast skemmtileg en stundum eins og groundhog day,” skrifar Nanný meðal annars. „Verkefnin eru endalaus og alltaf tækifæri til að gera meira og betra. Ég mun ekki taka sæti á lista fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar, heldur rétti keflið sátt til næstu kynslóðar sveitarstjórnarfulltrúa,“ segir ennfremur í færslunni, þar sem Nanný segist jafnframt hlakka til að verja meiri tíma með fjölskyldu sinni og barnabörnum.
Ísafjarðarbær Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sveitarstjórnarmál Viðreisn Vinstri græn Samfylkingin Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Innlent Fleiri fréttir „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Sjá meira