Samstaða um varnarmál Pawel Bartoszek og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir skrifa 4. febrúar 2026 23:01 Í vikunni samþykkti Alþingi einróma nýja stefnu Íslands í varnar- og öryggismálum. Það er fagnaðarefni, þótt tilefnið, hið ótrygga ástand í heimsmálunum, sé það ekki. Ljóst er að okkar nærumhverfi hefur tekið miklum breytingum á undanförnum árum, ekki síst í kjölfar allsherjarinnrásar Rússlands í Úkraínu. Þar er á ferðinni grimmúðlegt og gamaldags landvinningastríð þar sem stórveldi leitast við að innlima landsvæði og undiroka nágranna sína með vopnavaldi. Sú breyting sem orðið hefur á öryggisumhverfinu er þungbær staðreynd sem við verðum að horfast í augu við. Við finnum mörg fyrir áhyggjum af því að heimurinn kunni að vera að stefna í ranga átt. Hvort sem um er að ræða tímabundna krísu eða breytingu til lengri tíma, þá kann að reyna á okkar samfélög á næstu misserum. Skýr sýn og traustur grunnur Vinna við nýja varnar- og öryggisstefnu var sett af stað síðasta vor einmitt á þessum forsendum. Leitað var álits innlendra sérfræðinga, höfuðstöðvar NATO heimsóttar, og rætt við fjölmarga, meðal annars yfirmann sameinaðs herafla bandalagsins í Evrópu. Niðurstaðan er stefna sem bregst við breyttri heimsmynd en hvílir engu að síður á traustum grunni. Aðild að NATO og varnarsamningurinn við Bandaríkin verða áfram kjölfestan í vörnum landsins. Til viðbótar er lögð áhersla á virka þátttöku í fjölþjóðlegum samstarfsverkefnum og tvíhliða samstarf við ríki beggja vegna Atlantshafsins. Til þess að standa vörð um fullveldi okkar, farsæld og frið, þurfum við áfram að starfa saman með líkt þenkjandi ríkjum og vera tilbúin til að verja þau gildi. Áfallaþol og gildismat Í stefnunni er lögð áhersla á að efla áfallaþol samfélagsins alls. Hún er nátengd þjóðaröryggisstefnu, þar sem horft er til þess að auka greiningargetu, efla rannsóknir og tryggja að laga- og stofnanaumgjörð sé skýr. Stefnan miðar að því að tryggja innlenda getu, mannauð og varnarmannvirki til að mæta áskorunum og uppfylla skuldbindingar okkar, t.d. hvað varðar gistiríkjastuðning. Rétt er að taka fram að það er ein af meginforsendum stefnunnar að við erum og verðum áfram herlaus þjóð. Samstaðan er sjálfstætt öryggismál Það er ávallt jákvætt þegar samstaða næst í flóknum málum. En þegar kemur að varnarmálum er samstaðan sjálfstætt þjóðaröryggismál. Í heimi þar sem skautun fer vaxandi og ágreiningur er iðulega notaður sem vopn til að veikja samfélög innan frá, eru þetta mikilvæg skilaboð út í umheiminn. Þegar kemur að vörnum landsins standa þingmenn á Alþingi, í stjórn og stjórnarandstöðu, saman sem einn. Höfundar eru þingmenn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir Pawel Bartoszek Öryggis- og varnarmál Utanríkismál Viðreisn Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar