Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Árni Sæberg skrifar 23. janúar 2026 14:26 Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, Binni, er framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar. Vinnslustöðin Forsvarsmenn Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum áætla að eftir verðskrárbreytingar og lagningu nýrra rafstrengja myndi kosta allt að hálfum milljarði króna meira á ári að keyra vinnslu félagsins á rafmagni frekar en olíu.
Þetta kemur fram í umfjöllun á vef Vinnslustöðvarinnar en raforkumál í Vestmannaeyjum hafa verið í deiglunni undanfarnar vikur, eftir að Vestmannaeyjastrengir 4 og 5 voru teknir í rekstur. Stóð til að sigla Herjólfur á olíu á ný Til að mynda kom fram í máli Írisar Róbertsdóttur, bæjarstjóra Vestmannaeyjabæjar, í Bítinu á Bylgjunni í upphafi árs að Herjólfur myndi aðeins sigla aðra leið á rafmagni vegna 360 prósenta hækkunar á flutningsverði raforku til Eyja. Ástæða hækkunarinnar er að með tilkomu nýrra strengja fellur út svokallaður skerðanlegur flutningur, sem er ódýrari en annar flutningur raforku. Íris greindi aftur á móti frá því á Facebook á dögunum að hún hefði átt gott samtal við Jóhann Pál Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsmálaráðherra og í kjölfarið hafi Herjólfur hafið aftur siglingar á rafmagni milli Eyja og lands. Ekki liggur þó fyrir hvað breyttist. Tvíþætt mál Í umfjöllun Vinnslustöðvarinnar segir að í umræðu um málið segir að gagnlegt sé að hafa í huga að það sé tvíþætt. „Annars vegar snýst þetta um lagningu nýrra strengja til Vestmannaeyja sem allir fagna enda um að ræða endurbætur á stöðu sem löngu var orðin tímabær. Í þeirri stöðu sem upp var komin var nauðsynlegt að endurnýja gamla og gallaða strengi auk þess sem varaafl í Vestmannaeyjum var ekki nægjanlegt til að tryggja afhendingaröryggi raforku. Endurnýjun og viðbót við raforkuflutningskerfið er forsenda fyrir öruggri og stöðugri raforku til íbúa og atvinnulífs í Vestmannaeyjum.“ Hins vegar snúist málið um verðlagningu á flutningi raforkunnar og breytingu á gjaldskrá, sem sé sá þáttur sem valdið hefur hvað mestum áhyggjum. Verðlagningin sé orðin þannig að mun hagstæðara sé að nota olíu við gufuframleiðslu í fiskimjölsverksmiðju Vinnslustöðvarinnar heldur en að nota rafmagn. „Þetta er staða sem við í Vinnslustöðinni hefðum aldrei talið geta komið upp. Hún er í algjörri andstöðu við þá stefnu sem fyrirtækið hefur markvisst fylgt frá árinu 2002, þegar fjárfest var í búnaði til að gera orkuskipti möguleg, þ.e. hætta að nota olíu og nota eingöngu rafmagn. Staðan hefur því snúist við með mjög afgerandi hætti.“ Sexföld hækkun Þá segir að í fiskmjölsverskmiðju félagsins sé framleidd gufa til að flytja varma inn í framleiðsluferlið. Ef gufa væri eingöngu framleidd með olíu væri orkukostnaðurinn um 10 til 12 krónur á kílóvattstundina. Með rafmagni, eftir nýlegar gjaldskrárhækkanir Landsnets, verði orkukostnaðurinn rúmlega 30 krónur á kílóvattstundina. Við þessar breytingar hækki flutningskostnaður raforku til rafskautaketilsins í verksmiðjunni um 500 prósent, sem jafngildi um 400 til 500 milljónum króna auknum árlegum kostnaði, væri verksmiðjan væri rekin eingöngu á rafmagni. „Það er augljóst að ekki er hægt að greiða þrefalt hærra orkuverð á grundvelli hugsjóna.“ Öfugsnúið í ljósi loftslagsmarkmiða Viðbótarkostnað af þessari stærðargráðu væri hvorki raunhæft né ábyrgt að samþykkja. Samkeppnisstaða félagsins gagnvart öðrum framleiðendum veiktist til muna og rekstur verksmiðjunnar yrði óarðbær. „Í reynd er því orðið um 400 - 500 milljónum króna ódýrara á ári að framleiða gufu með innfluttri olíu en með rafmagni sem framleitt er úr íslenskum fallvatnsvirkjunum, sem verður að teljast mjög öfugsnúið í ljósi markmiða um orkuskipti og loftlagsmál. Auk þess setur þetta öll orkuskipti sem unnið hefur verið að í verksmiðjunni undanfarin ár og áratugi í talsverða óvissu.“ Fiskimjölsverksmiðjur séu þannig útbúnar að þær geta nýtt bæði rafmagn og olíu, sem veiti mikilvægan sveigjanleika. Slíkur sveigjanleiki ætti að gera verksmiðjuna að ákjósanlegum notanda raforku, þar sem hægt sé að keyra á rafmagni þegar framboð er gott en á olíu þegar aðstæður krefjast. Auk þess sé keyrslan mjög vertíðarbundin og á stuttum tíma sé mikil orkunotkun. Núverandi gjaldskrá Landsnets virðist engan veginn taka mið af slíkum aðstæðum. Landsnet vilji fjárfestinguna til baka á fjórum eða fimm árum Loks segir að það kosti að leggja nýja strengi og án þess að forsvarsmenn félagsins viti nákvæmlega hvað það kostar þá sé það eflaust umtalsverð fjárhæð, líklega á bilinu þrír til fjórir milljarðar króna. „En 400 til 500 milljónir í auknum árlegum kostnaði eru líka miklir peningar sem hægt er að nýta til annarra fjárfestinga. Ef hin fiskimjölsverksmiðjan í Vestmannaeyjum yrði einnig keyrð eingöngu á rafmagni, þá erum við að tala um að tveir aðilar í Vestmannaeyjum greiddu aukalega 800 – 1.000 milljónir árlega fyrir flutning á rafmagni bara vegna þess að tveir nýir rafmagnsstrengir voru lagðir til Eyja og þá eru aðrir kaupendur ótaldir. „Framkvæmdin hafi verið nauðsynleg til að endurnýja gamla og gallaða strengi. Reynist útreikningar félagsins varðandi kostnað við nýju strengina réttur þá hyggist Landsnet fá fjárfestinguna endurgreidda á fjórum til fimm árum en líklegur endingartími strengjanna sé 15 til 25 ár. „Eitthvað er skakkt í þessu dæmi og eflaust hefði verið miklu ódýrara fyrir fyrirtækin að leggja þessa strengi sjálf. Það hlýtur að vera sameiginlegt markmið allra á Íslandi að auka sem mest notkun á grænni orku, en ef það á að takast þá verða forsendur að vera réttar. Ef okkur tekst það, þá getum við talað um „sigur” öllum til heilla.“
Sjávarútvegur Vestmannaeyjar Orkumál Orkuskipti Mest lesið Kalla inn leikföng mögulega menguð af asbesti Neytendur Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti erlent „Það veit enginn hvert þessar breytingar eru að leiða okkur“ Atvinnulíf Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Viðskipti innlent Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Viðskipti erlent Hildur fer frá Hörpu til KPMG Viðskipti innlent Hagkerfið allt í hættu Viðskipti innlent Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Viðskipti innlent 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Viðskipti innlent Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Gjaldþrot Play nemur 21 milljarði króna Boðar aðgerðir á allra næstu dögum gegn verðbólgu Dæmdir fyrir að taka við fé fyrir Teslur sem þeir afhentu aldrei Affineva bar sigur úr býtum Munaðarlausi apinn í Japan farinn að hafa áhrif á Íslandi Gugga fer í fyrirtækjarekstur „Það er einhvers konar pissa í skóinn sinn-hagfræði“ Sýn skilaði hagnaði á fjórða ársfjórðungi Kvikutoppar fóru fýluferð í Landsrétt og borga tugi milljóna Bein útsending: Lokakeppni Gulleggsins 2026 Tekist á um kaupfox og hefð vegna 80 ára jeppa Mikið í húfi ef ekki dregur úr verðbólgu og vaxtalækkun ekki í sjónmáli Tilboð Icelandair það eina og langt yfir áætlun Lilja nýr markaðs- og upplifunarstjóri hjá Högum Verðbólga stendur í stað þvert á spár Bjarni Guðjóns hættir hjá VÍS Sjá meira
Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Viðskipti innlent
Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Viðskipti innlent