Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Magnús Jochum Pálsson skrifar 22. desember 2025 16:23 Finni á Prikinu og Jesú létu sig ekki vanta í Breiðholtið. Róbert Arnar Stemmingin var gríðarleg í ÍR-heimilinu í Breiðholti á laugardag þegar Emmsjé Gauti hélt Jülevenner með góðum gestum. Ragga Gísla, Finni á Prikinu, Erpi, Steinda jr, Bríeti, Króli og Birnir voru öll meðal gesta.
Emmsjé Gauti umbreytti ÍR-heimilinu annað árið í röð til að halda jólatónleikana Jülevenner fyrir fullu húsi. Rapparinn steig þar á stokk ásamt fjölmörgum góðum gestum, þar á meðal rapparanum Birni, Bríett, Röggu Gísla og þó nokkrum öðrum leynigestum. Margt var um manninn, veigarnar flæddu og hasarinn linnulaus. Gauti dró þá meðal annars fram bæði Finna og Geoff á Prikinu og bauð gestum svo upp á blóðuga fjölbragðaglímu milli jólasveinsins og Jesú Krists. Af myndum og stemmingunni að dæma skemmtu sér flestir en það á þó ekki við um Jónas Sen, gagnrýnanda Vísis, sem gaf tónleikum Gauta á föstudag eina stjörnu í dómi sínum í morgun og lýsti þeim sem helvíti á jörðu. Viðburðurinn hefði sannað endanlega að kapítalisminn gæti selt fólki hvað sem er, svo lengi sem það væri pakkað inn í nógu mikið glimmer og kaldhæðni. „Ef markmiðið var því að sjúga hverja einustu örðu af sál, heilagleika og menningu úr jólahátíðinni, þá tókst Gauta það ekki bara; hann fullkomnaði verkið,“ skrifaði Jónas um tónleikana. Gauti, sem bæði kann á leikinn og hefur húmor sjálfum sér, tók gagnrýninni fagnandi í samtali við mbl.is fyrr í dag. „Ég hef ekki verið jafn glaður yfir neinum dóm ever, án gríns,“ sagði hann þar. Gauti hefur húmor fyrir dómnum. „Það er eins og ég hafi skrifað þessa grein, mér finnst þessi dómur amazing. Ég opnaði hann og ég var bara stoltur af honum, ég er ekki einu sinni að grínast,“ sagði hann í sama viðtali og hefur meira að segja nýtt dóminn til að auglýsa tónleikana á næsta ári. Þannig stendur á forsöluplakatinu fyrir tónleikana skrifað stórum stöfum: „Helvíti á jörðu.“ Ljósmyndarinn Róbert Arnar mætti á tónleikana á laugardaginn og fangaði þar stemminguna sem virkaði ansi góð. Gauti góður.Róbert Arnar Bríet alltaf öflug.Róbert Arnar Jóna Margrét naut sín fremst.Róbert Arnar Bríet brilleraði.Róbert Arnar Króli tók lagið með Gauta.Róbert Arnar Róbert Arnar Ljósadýrð og gleði.Róbert Arnar Stemmingin var góð.Róbert Arnar Róbert Arnar Villi Neto ferskur á kantinum.Róbert Arnar Glæsilegt par.Róbert Arnar Þessi gamli góði skemmti fólkinu.Róbert Arnar Fjórar skvísulegar pæjur.Róbert Arnar Guðjón Smári á FM alltaf kátur.Róbert Arnar Birnir og Steindi með aldursforsetanum.Róbert Arnar Finni á Prikinu.Róbert Arnar Gauti og Erpur rifu í mækinn.Róbert Arnar Jóli tók Jesú í snúning.Róbert Arnar Jólasveinninn misþyrmdi Jesú Kristi.Róbert Arnar Gauti með glímuköppunum.Róbert Arnar Geggjaðar gellur.Róbert Arnar Steindi og góð vinkona.Róbert Arnar Allt gengið sem kom að tónleikunum.Róbert Arnar
Tónleikar á Íslandi Tónlist Jól Samkvæmislífið Reykjavík Mest lesið Ein pilla dró Panettiere til dauða Lífið Ed Sheeran sparkar Macklemore Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Lífið Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið 50+: Svefnherbergisskilnaður Áskorun Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lífið samstarf Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Lífið Fleiri fréttir Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Sjá meira