Innlent

Ís­land verður ekki með í Euro­vision

Oddur Ævar Gunnarsson og Tómas Arnar Þorláksson skrifa
Páll Óskar hélt tölu á mótmælunum.
Páll Óskar hélt tölu á mótmælunum. Vísir/Vilhelm

Ísland verður ekki með í Eurovision í ár. Þetta tilkynntu stjórnarformaður og útvarpsstjóri að loknum fundi. Útvarpsstjóri sagðist hafa tekið ákvörðun um þetta og tilkynnt stjórninni í dag. 

Fulltrúar evrópskra sjónvarpsstöðva samþykktu í síðustu viku að leyfa Ísraelum að taka þátt í Eurovision í Vín í Austurríki á næsta ári. Nokkur lönd tilkynntu þá þegar að þau myndu draga sig úr keppninni. Þeirra á meðal voru Hollendingar, Spánverjar, Írar og Slóvenar. Stjórnarformaður Ríkisútvarpsins hefur áður sagt ákvörðun um þátttöku Íslands verða tekna í dag en lokafrestur til að tilkynna EBU um þátttöku rennur út í dag.

Frétt uppfærð 16:35:

Horfa má á tilkynningu þeirra Stefáns Eiríkssonar útvarpsstjóra og Stefáns Jóns Hafsteins stjórnarformanns Ríkisútvarpsins hér beint fyrir neðan.

Fengið áskoranir víða að

Stjórn Ríkisútvarpsins hefur fengið áskoranir víða að um að falla frá þátttöku, meðal annars frá Björk og Páli Óskari. Tíu manns sitja í stjórn Ríkisútvarpsins, fulltrúar flokka í minni- og meirihluta á Alþingi. Stefán Jón Hafstein er stjórnarformaður.

Samkvæmt upplýsingum fréttastofu finnst minnihluta stjórnarmanna RÚV að ákvörðun um þátttöku í keppninni eigi að vera í höndum menningarmálaráðherra, frekar en í höndum stjórnar, þar sem um pólitíska ákvörðun sé að ræða. Ráðherrann sagði hins vegar við fréttastofu í gær að ákvörðunin væri stjórnar, hann teldi sjálfur rétt að sniðganga Eurovision.

Muni ekki ríkja friður og gleði

Í tilkynningu frá Ríkisútvarpinu segir að ákveðið hafi verið að taka ekki þátt í keppninni sem fer fram í Vínarborg í Austurríki á næsta ári. Þáttaka ísraelska ríkissjónvarpsins KAN hafi að undanfarið valdið óeiningu, bæði meðal aðildarstöðva Sambands evrópskra útvarpsstöðva og almennings.

Þar er þess getið að þátttaka KAN hafi verið tekin til ítarlegrar umræðu á fundum EBU fyrr á þessu ári, fyrst í London og svo í Genf. Á fundinum í Genf hafi mikill  mikill meirihluti aðildarstöðva EBU samþykkt að ýmsar breytingar sem gerðar hafa verið á reglum og framkvæmd keppninnar væru fullnægjandi og því kom ekki til atkvæðagreiðslu um þátttöku KAN í keppninni.

„Útvarpsstjóri gerði grein fyrir því á fundinum í Genf að þrátt fyrir að breytingarnar kæmu til móts við margar af þeim athugasemdum sem fulltrúar RÚV hefðu gert á ýmsum stigum EBU-samstarfsins síðustu ár væru enn efasemdir að mati RÚV um að þær dygðu til,“ segir í tilkynningunni.

Ítrekað hafi komið farm að hagsmunaaðilar hér á landi, til dæmis samtök listamanna og íslenskur almenningur væri andvígur þáttöku. Þá hefði stjórn RÚV óskað eftir því við EBU að KAN yrði vikið úr keppninni með hliðsjón af fordæmum. Málið væri flókið úrlausnar og hefði nú þegar skaðað orðspor keppninnar og EBU. Mikilvægt væri að finna lausn fyrir alla hlutaðeigandi.

„Ljóst er miðað við opinbera umræðu hér á landi og viðbrögð við ákvörðun EBU sem tekin var í síðustu viku að hvorki mun ríkja gleði né friður um þátttöku RÚV í Eurovision. Það er því niðurstaða RÚV að tilkynna EBU um það í dag að RÚV taki ekki þátt í Eurovision á næsta ári.“

Ekkert liggi fyrir um söngvakeppni

„Söngvakeppnin og Eurovision hafa ávallt haft það markmið að sameina íslensku þjóðina en nú er ljóst að því markmiði verður ekki náð og á þeim dagskrárlegu forsendum er þessi ákvörðun tekin.

Ekki liggur fyrir ákvörðun um hvort haldin verður söngvakeppni á vegum RÚV á næsta ári. Verið er að meta fyrirliggjandi kosti í stöðunni og verður ákvörðun um það kynnt þegar hún liggur fyrir.“


Tengdar fréttir

Björk beinir skila­boðum til stjórnar RÚV

Tvísýnt er hvaða ákvörðun stjórn RÚV mun taka um þátttöku Íslands í Eurovision á fundi sínum næsta miðvikudag. Björk Guðmundsdóttir tekur undir með Páli Óskari Hjálmtýssyni og skorar á stjórn RÚV að draga sig úr keppninni á næsta ári.

„Ég nenni ekki að hlusta á 7. október rökstuðninginn enn og aftur“

Stjórn Ríkisútvarpsins tekur ákvörðun á stjórnarfundi á fundi sínum sem hefst klukkan 15 hvort Ísland muni draga sig úr keppni í ár. Boðað hefur verið til samstöðufundar við RÚV klukkan hálf þrjú þar sem stjórn stofnunarinnar er hvött til að sniðganga Eurovision. Páll Óskar Hjálmtýsson, tónlistarmaður, hvetur stjórnina til að taka ekki þátt. 

Telur rétt að sniðganga Eurovision

Menningarmálaráðherra telur rétt að sniðganga Euróvisjón í ljósi þess að ákveðið hafi verið að leyfa Ísraelum að taka þátt. Það sé hins vegar ekki ráðherra að ákveða hvaða leið verði farin heldur stjórnar Ríkisútvarpsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×