Doncic áfram óstöðvandi og setti met Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. nóvember 2025 15:15 Luka Doncic og félagar í Los Angeles Lakers sóttu sigur til Salt Lake City. getty/Alex Goodlett Luka Doncic hefur byrjað tímabilið af gríðarlegum krafti og Los Angeles Lakers er í góðri stöðu í Vesturdeild NBA.
Doncic skoraði 33 stig, tók ellefu fráköst og gaf átta stoðsendingar þegar Lakers sigraði Utah Jazz á útivelli, 104-106, í nótt. LUKA DONČIĆ ARE YOU SERIOUS??NUTMEG INTO A FASTBREAK ALLEY-OOP 🤯 pic.twitter.com/K8NwvXRRJD— NBA (@NBA) November 24, 2025 Þetta var fjórði sigur Lakers í röð en liðið er í 2. sæti Vesturdeildarinnar með tólf sigra og fjögur töp. LeBron James skoraði sautján stig, tók sex fráköst og gaf átta stoðsendingar fyrir Lakers í leiknum í nótt og Austin Reaves skilaði 22 stigum. Doncic hefur farið mikinn í upphafi tímabils og er stigahæstur í NBA-deildinni með 34,5 stig að meðaltali í leik. Slóveninn er einnig með 8,8 fráköst og 8,9 stoðsendingar að meðaltali í leik í vetur. Í fyrstu tólf leikjum sínum á þessu tímabili hefur Doncic skorað samtals 414 stig og gefið 107 stoðsendingar. Enginn leikmaður í sögu NBA hefur verið jafn snöggur að skora að minnsta kosti fjögur hundruð stig og gefa hundrað stoðsendingar eða meira í fyrstu tólf leikjum sínum á tímabili. Luka Dončić in 12 games played this season: 414 PTS | 107 AST He's the FIRST PLAYER IN NBA HISTORY to have 400+ PTS and 100+ AST through 12 games 🤯 https://t.co/2DtiEFkRJv pic.twitter.com/7GjodXCyG1— NBA (@NBA) November 24, 2025 Doncic kom til Lakers frá Dallas Mavericks í umtöluðum leikmannaskiptum í byrjun febrúar á þessu ári. Lakers endaði í 3. sæti Vesturdeildarinnar á síðasta tímabili en féll úr leik fyrir Minnesota Timberwolves í átta liða úrslitum, 4-1.
NBA Mest lesið Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Fótbolti Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Sport Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks Sport Fleiri fréttir Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Sjá meira