Flugumferðarstjórar boða til yfirvinnubanns Atli Ísleifsson skrifar 18. nóvember 2025 07:49 Arnar Hjálmsson er formaður Félags flugumferðarstjóra. Vísir/Vilhelm Félag íslenskra flugumferðarstjóra hefur boðað yfirvinnubann sem hefst á miðnætti þann 25. nóvember næstkomandi. Enn hefur ekki náðst samkomulag í kjaradeilu félagsins og Samtaka atvinnulífsins fyrir hönd Isavia. Félagið segir að ef ekki fæst fólk til að vinna yfirvinnu þurfi að skerða þjónustu og beina fleiri flugvélum fram hjá íslensku flugstjórnarsvæði.
Frá þessu segir í tilkynningu frá félaginu. Segir að yfirvinnubannið sé vægasta aðgerðin sem félagsmenn FÍF geti gripið til á þessum tímapunkti til að undirstrika mikilvægi þess að samningar milli flugumferðarstjóra og Isavia náist sem allra fyrst. Um síðustu áramót losnuðu samningarnir og hafa flugumferðarstjórar því verið samningslausir í rúma ellefu mánuði en kjaraviðræður hafa staðið yfir mun lengur. Í síðasta mánuði boðaði Félag flugumferðarstjóra fimm vinnustöðvanir en aðeins kom til einnar þeirra því skriður komst á kjaraviðræðurnar og var hætt við aðgerðirnar. Óásættanleg staða Í tilkynningunni frá félaginu segir að óásættanlegt sé að stéttin hafi verið samningslaus frá áramótum sem ógni mikilvægum hagsmunum Isavia og þeirra fjölmörgu flugrekenda sem fari um íslenska flugumsjónarsvæðið. Mikil vonbrigði voru að engin niðurstaða fékkst á fundi FÍF, Isavia og SA sem boðað var til síðastliðinn sunnudag. FÍF telur nauðsynlegt að boða yfirvinnubann, þrátt fyrir að viðræður séu enn í gangi, í þeirri von að samningar náist og ekki komi til frekari aðgerða af hálfu félagsmanna. Ljóst er að Isavia hefur tapað mikilvægu samkeppnisforskoti um hæft starfsfólk sem birtist í of lítilli nýliðun, miklu álagi og fækkun í stéttinni, m.a. vegna flótta í sambærileg störf erlendis. Þessari þróun vill FÍF snúa við til að gæta íslenskra hagsmuna. Ein birtingarmynd viðvarandi undirmönnunar hjá Isavia er umfangsmikið yfirvinnuálag með tilheyrandi aukakostnaði og óhagræði. Á 19 vikna tímabili árið 2024 þurftu Isavia ohf. og dótturfélög þess að óska eftir að flugumferðarstjórar ynnu yfirvinnu í 1.261 skipti. Fáist ekki fólk til að vinna yfirvinnu þarf að skerða þjónustu, sem þýðir að beina þarf fleiri flugvélum fram hjá íslensku flugstjórnarsvæði. Ísland verður af mikilvægum gjaldeyristekjum og ef Isavia tekst ekki að tryggja fullnægjandi mönnun ógnar það samningum um rekstur alþjóðlega flugumsjónarsvæðisins. Horfa verður til þess að íslensk flugumferðarstjórn er gjaldeyrisskapandi útflutningsatvinnuvegur sem skilar á milli 8 og 9 milljörðum króna í gjaldeyristekjur á ári hverju. Laun flugumferðarstjóra koma að mestum hluta erlendis frá og eru því ekki greidd með skatttekjum frá almenningi. Það eru því ríkir hagsmunir að Isavia tryggi að mannekla skaði ekki orðspor Íslands sem þjónustuaðila fyrir alþjóðlega flugrekendur. Íslenskir flugumferðarstjórar sinna mikilvægu hlutverki þar sem öryggi, traust og áreiðanleiki skiptir öllu máli. Íslenska flugstjórnarsvæðið er eitt stærsta flugstjórnarsvæði heims, um 5,5 milljónir ferkílómetrar að stærð, og fara að meðaltali um 540 flugvélar í gegnum svæðið á hverjum sólarhring. Nauðsynlegt er að Isavia komi til móts við kröfur flugumferðarstjóra og dragi úr álagi á starfsfólk til að tryggja samfellda, góða og örugga þjónustu árið um kring,“ segir í tilkynningunni frá flugumferðarstjórum.
Verkföll flugumferðarstjóra Kjaramál Isavia Keflavíkurflugvöllur Stéttarfélög Fréttir af flugi Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Fleiri fréttir „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Sjá meira