Ljóstrar upp um kornið sem fyllti mælinn Magnús Jochum Pálsson skrifar 16. október 2025 11:44 Kim Kardashian og Kanye West voru gift í átta ár og eiga fjögur börn saman. EPA/RINGO CHIU Kim Kardashian, raunveruleikastjarna og athafnakona, hefur greint frá korninu sem fyllti mælinn og leiddi til skilnaðar hennar við rapparann Kanye West.
Kim Kardashian og Kanye West giftu sig árið 2014 eftir að hafa þekkst um árabil fyrir það. Þau eignuðust fjögur börn saman, North, Saint, Chicago og Psalm, en skildu svo 2022 eftir átta ára hjónaband. Fréttir af óstabílum West voru fyrirferðarmiklar í kringum skilnaðinn og allar götur síðan. Kim er nýjasti gestur hlaðvarpsins Call Her Daddy í umsjón Alex Cooper og segir þar að hún hafi ákveðið að skilja við West þegar henni var farið að líða „tilfinningalega og fjárhagslega óöruggri“. Hún hafi verið stöðugt á nálum vegna hegðunar Kanyes og aldrei vitað hverju hann myndi taka upp á næst, í eitt skiptið hafi hann ákveðið að gefa fimm Lamborghini-bíla þeirra. „Þú veist aldrei hvað mun blasa við þér þegar þú vaknar og það er virkilega óþægileg tilfinning,“ sagði Kim í viðtalinu. Cooper sem stýrir hlaðvarpinu spurði þá hvað hefði verið kornið sem fyllti mælinn. „Skortur á stöðugleika,“ sagði Kim þá. Illa við baktal um börn sín Kim sagði sambandið einnig hafa liðið fyrir það hvað Kanye greindi stöðugt frá persónulegum málum fjölskyldunnar. Hún hafi verið ósátt með að hann skyldi greina opinberlega frá því að þau hafi íhugað fóstureyðingu þegar hún var ólétt af fyrsta barni þeirra. „Mér var mjög illa við að heyra einhvern tala illa um börnin mín, ömmu, frænkur - allar slíkar tilfinningar. Ef einhverjum líður þannig ættum við ekki að vera saman,“ sagði Kim í viðtalinu. Kim kom inn á ýmislegt annað í viðtalinu, þær röngu sögusagnir að Kanye fái ekki að hitta börnin sín, framhjáhald sem hún varð fyrir, erfið samskipti Kanyes við Caitlyn Jenner og stefnumótalíf hennar eftir skilnaðinn:
Hollywood Mál Kanye West Ástin og lífið Börn og uppeldi Bandaríkin Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Patrick Stewart látinn Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira