Hópslysaáætlun virkjuð á Snæfellsnesi Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 6. október 2025 17:44 Slysið varð í Seljafirði. Grafík/Sara 42 erlendir ferðamenn voru um borð í rútu á Snæfellsnesi er hún valt af veginum. Bæði hópslysaáætlun og samhæfingarmiðstöð Almannavarna voru virkjaðar vegna slyssins en miðað við upplýsingar sem liggja fyrir er talið að betur fór en á horfðist. Tveir voru fluttir með þyrlu á sjúkrahús í Reykjavík.
Slysið varð í Seljafirði, á norðanverðu Snæfellsnesi, um hálf sex síðdegis í dag og staðfesti Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, að hópslysaáætlun hefði verið virkjuð en þá eru lögregla, slökkvilið, sjúkralið, Landhelgisgæslan og björgunarsveitir kölluð út. Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Almannavarna, greindi frá að samhæfingarmiðstöð Almannavarna hefði verið virkjuð. Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn á Vesturlandi, staðfestir í samtali við fréttastofu að um erlenda ferðamenn hafi verið að ræða auk fararstjóra og bílstjóra. Hann staðfestir einnig að rútan valt út af veginum og endaði á hvolfi. Hann segir að enginn sé talinn alvarlega slasaður en átta voru fluttir á sjúkrahúsið á Akranesi. Þá voru aðrir farþegar fluttir í fjöldahjálparstöð sem var opnuð í Grundarfirði vegna slyssins. Allir voru með meðvitund. Guðmundur Birkir, aðgerðarstjóri Landhelgisgæslunnar, segir að ferðamennirnir tveir voru fluttir á Landspítalann í Fossvogi sem lenti þar rétt fyrir klukkan hálf átta. Hann bendir á að í hópslysaáætluninni er hlutverk Landhelgisgæslunnar bæði að senda þyrluna og einnig varðskip ef það er nálægt slysstað. „Svo vildi til að Þór er þarna í Breiðafirðinum og er að detta inn á Grundarfjörð. Það er hluti af þessu viðbragði,“ segir Guðmundur Birkir. Ásmundur segir að rannsóknarlögreglumaður lögregluembættisins á Vesturlandi sé á vettvangi. Slysið verði til rannsóknar hjá þeim auk rannsóknarnefndar samgönguslysa. Fréttin hefur verið uppfærð.
Björgunarsveitir Almannavarnir Landhelgisgæslan Mest lesið Hópslysaáætlun virkjuð á Snæfellsnesi Innlent Ákærðar fyrir að auglýsa vændi en kaupendurnir ekki Innlent „Það endaði bara með því að það var brotið á börnunum okkar“ Innlent Nauðgaði sofandi kærustu sem hafði ítrekað verið brotið gegn Innlent Grindvíkingum blöskrar umræðan í Vikunni Innlent Jón biðst innilegrar afsökunar á umræðu um Grindavík Innlent Hafi tekið bílstjórann hálstaki meðan hann lá á flautunni Innlent Gretu Thunberg og félögum vísað úr landi Erlent Okkar borg – Þvert á flokka tekur slaginn í borginni Innlent Dómstólar neita Jóni Óttari um að fá afhenta haldlagða muni Innlent Fleiri fréttir Vilja að Reykjavík lögsæki ríkið „Við viljum bara grípa þau fyrr“ Risaskuld, nýr flokkur og áheyrnarprufur hunda Hópslysaáætlun virkjuð á Snæfellsnesi Rúða brotin og flugeld kastað inn Riða staðfest á Kirkjuhóli Hafa þurft að sjóða vatnið í 79 daga Ágreiningur við ríkisstarfsmenn kostaði 642 milljónir á tíu árum Handtekinn fyrir stórfellda líkamsárás í Dugguvogi Farið yfir framboð hjá Miðflokknum „Það endaði bara með því að það var brotið á börnunum okkar“ Segir erfitt fyrir lækna að starfa við boðuð skilyrði Okkar borg – Þvert á flokka tekur slaginn í borginni „Hlýtur að hafa í sér fælingarmátt ef þú yrðir nafngreindur við slíka iðju“ Nauðgaði sofandi kærustu sem hafði ítrekað verið brotið gegn Stolt úthverfatútta en ekki lattelepjandi miðbæjarrotta Vændi á Norðurlandi og ósáttir læknar Sex slasaðir eftir árekstur á Jökuldalsheiði Jón biðst innilegrar afsökunar á umræðu um Grindavík Dómstólar neita Jóni Óttari um að fá afhenta haldlagða muni Ákærðar fyrir að auglýsa vændi en kaupendurnir ekki Einum veittir stunguáverkar og annar varð fyrir hópárás „Draumar geta ræst“ Grindvíkingum blöskrar umræðan í Vikunni Nýr formaður SUS vill sækja til hægri Miður að börn fylgi foreldrum en ekki öfugt Hafi tekið bílstjórann hálstaki meðan hann lá á flautunni Play skuldi Isavia hálfan milljarð króna Tveir á sjúkrahús eftir að bíll valt við árekstur „Þetta er ekki á borði þingflokksins“ Sjá meira