Leik lokið: Svíþjóð 4 - 1 Þýskaland | Úrslitaleikur um efsta sætið Haraldur Örn Haraldsson skrifar 12. júlí 2025 18:31 Lina Hurtig skoraði síðasta mark Svía. EPA-EFE/Peter Powell Svíþjóð vann riðilinn sinn á EM kvenna í fótbolta eftir sigur gegn Þjóðverjum. Bæði lið fara áfram úr riðlinum, en það var ljóst fyrir leik. Þjóðverjar byrjuðu leikinn betur, en Jule Brand skoraði strax á sjöundu mínútu. Gamnið lifði ekki lengi þar sem Stina Blackstenius hafði jafnað leikinn fyrir Svíþjóð á 12. mínútu. Hin 18 ára Smilla Holmberg kom svo Svíþjóð yfir á 25. mínútu en stærsta atvikið átti sér stað fljótlega eftir það. Á 31. mínútu ver Carlotta Wamser leikmaður Þýskalands boltann með hendinni. Hún er ekki markvörður Þýskalands, og því fékk hún rautt spjald og Svíþjóð víti. Fridolina Rolfö steig á punktinn og skoraði af miklu öryggi úr spyrnunni. Síðari hálfleikurinn var töluvert rólegri en Svíar bættu við fjórða markinu á 80. mínútu. Lina Hurtig skoraði það, en fleiri mörk voru ekki skoruð í leiknum. EM 2025 í Sviss