Erlent

Em­bættis- og ráða­menn tjá sig um á­rásina

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Þessi fjögur voru meðal embættismanna sem tjáðu sig um árásina.
Þessi fjögur voru meðal embættismanna sem tjáðu sig um árásina. Samsett/Ívar Fannar/EPA

Ýmsir embættis- og ráðamenn hafa tjáð sig í dag um árásir Bandaríkjanna á Íran. Flestir tóku í sama streng og sögðu að Íranir ættu ekki að eiga neins konar kjarnorkuvopn.

Bretland

Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, var einna fyrstur til að tjá sig en hann segir kjarnorkuáætlun Írans alvarlega ógn við alþjóðaöryggi.

„Ástandið í Mið-Austurlöndunum er enn óstöðugt og stöðugleiki á svæðinu er forgangsatriði. Við biðjum Írani um að snúa aftur að samningaborðinu og komast að diplómatískri lausn,“ skrifar hann á X.

Rússland

Rússar, sem hafa lengi verið bandamenn Írans, hafa einnig tjáð sig um árásirnar með yfirlýsingu frá yfirvöldum. Þar segjast þeir fordæma árásina harðlega og kalla þær óábyrgar.

 Rússar telja einnig að árásirnar séu brot á alþjóðalögum og kalla eftir því að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna beiti sér fyrir því að ljúka átökunum.

Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, ætlar að heimsækja Vladimír Pútín Rússlandsforseta í dag til að ræða málin.

Frakkland

Jean-Noel Barrot, utanríkisráðherra Frakklands, sagði í yfirlýsingu á X að Frakkar hefðu ekki átt neinn hlut í árásinni og hvetja allar hliðar til að gæta hófsemi til að koma í veg fyrir átökin.

„Frakkland hefur ítrekað lýst yfir mjög eindreginni andstöðu sinni við að Íran eignist kjarnorkuvopn,“ skrifar Barrot.

„Frakkland er sannfært um að varanleg lausn á þessu máli krefst samningaviðræðna innan ramma kjarnorkusáttmálans.“

Páfagarður

Leó páfi tjáði sig óbeint um málið í vikulegri helgiathöfn hans með pílagrímum.

„Enginn vopnaður sigur getur bætt upp fyrir sársauka mæðra, ótta barna, stolinni framtíð. Látum diplómatíu þagga niður í vopnum, látum þjóðir móta framtíð sína með friðarviðleitni, ekki með ofbeldi og blóðugum átökum,“ sagði hann.

Leó páfi á svölum Péturskirkju er hann tók við embættinu.

Hann birti einnig yfirlýsingu þar sem hann segir stríð ekki koma í veg fyrir vandamál heldur einungis fjölga þeim og býr til djúp sár sem taki margar kynslóðir að gróa. 

Ísland

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tjáði sig um málið á X líkt og margir aðrir leiðtogar. 

„Kjarnorkuáætlun Írans er mikið áhyggjuefni og við hvetjum leiðtoga til að semja af einlægni til að binda enda á hana,“ skrifar Þorgerður.

Hún segir það þurfi að koma í veg fyrir áframhaldandi stigmögnun á svæðinu.

„Ég endurtek: Alþjóðalög þurfa að vera leiðarljós okkar - diplómatísk samskipti og viðræður eru eina lausnin.“

Evrópusambandið

Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, segir Írana mega ekki þróa kjarnorkuvopn þar sem það myndi ógna öryggi alþjóðar.

„Ég hvet allar hliðar til að stíga til baka, fara aftur að samningaborðinu og koma í veg fyrir frekari stigmögnun,“ skrifar hún á X.

Þar kemur einnig fram að utanríkisráðherrar Evrópusambandsins munu funda vegna málsins á morgun.

Sameinuðu þjóðirnar

António Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir árásina hættulega stigmögnun og beina ógn við alþjóðafrið.

„Það er vaxandi hætta að þessi átök gætu farið hratt úr böndunum - með hörmulegum afleiðingum fyrir almenna borgara, svæðið og heiminn.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×