Blikar komust upp í efsta sætið með 2-0 sigri á ÍBV í Vestmannaeyjum. Ágúst Orri Þorsteinsson skoraði fyrsta markið lengst utan af kanti og Tobias Bendix Thomsen innsiglaði síðan sigurinn í seinni hálfleik.
Afturelding vann 4-1 sigur á Skagamönnum í Mosfellsbænum. Elmar Kári Enesson Cogic skoraði tvö mörk en í seinna skiptið skaut Benjamin Stokke í hann. Stokke skoraði sjálfur úr víti en Hrannar Snær Magnússon innsiglaði svo sigurinn. Viktor Jónsson kom ÍA í 1-0.
Vuk Oskar Dimitrijevic skoraði á móti sínum gömlu félögum í 2-0 sigri Fram á FH. Sigurjón Rúnarsson skoraði seinna markið.
Eftir þessi tvö þá sitja FH-ingar og Skagamenn í fallsætunum tveimur.
Diego Montiel tryggði Vestra 1-0 sigur á KA á Ísafirði. Vestramenn hafa unnið sex leiki í sumar þar af fjóra þeirra fyrir vestan.
Stjarnan vann 3-2 sigur á Vals í fyrsta leik umferðarinnar. Jóhann Árni Gunnarsson, Emil Atlason og Guðmundur Baldvin Nökkvason skoruðu mörk Stjörnunnar en Patrick Pedersen, markahæsti leikmaður deildarinnar, var með bæði mörkin fyrir Val. Valsmenn misstu Bjarna Mark Antonsson af velli með rautt spjald strax eftir að þeir minnkuðu muninn i 3-2.