Vestri

Vestri

Fréttir af Íþróttafélaginu Vestra frá Ísafirði og Bolungarvík.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Með Vestra í Evrópu: „Engin þjálfarastaða sam­bæri­leg þessari“

Ætla má að ein­hverjir hafi rekið upp stór augu þegar greint var frá ráðningu Daniel Badu í starf þjálfara Vestra og það eftir súrsætt tíma­bil hjá liðinu sem varð bikar­meistari og tryggði sér Evrópusæti en féll úr Bestu deildinni. Daniel tekur við liðinu fyrir sögu­legt tíma­bil og ætlar að koma því aftur upp í efstu deild.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Kralj fer til Kefla­víkur

Keflavík hefur samið við vinstri bakvörðinn Anton Kralj fyrir komandi átök í Bestu deildinni en hann kemur til félagsins frá Vestra sem féll niður í Lengjudeild síðasta sumar.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Bikarhetjan til KA

Danski knattspyrnumaðurinn Jeppe Pedersen hefur skrifað undir samning við KA og mun spila með liðinu í Bestu deildinni á komandi leiktíð.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Montiel til KA

Diego Montiel, sem var einn besti leikmaður bikarmeistara Vestra á síðasta tímabili, er genginn í raðir KA.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Hlutir sem gerast þarna sem sátu að­eins í mér“

Davíð Smári Lamu­de segir það hafa orðið fljótt ljóst eftir sigur með Vestra í bikarúr­slitum gegn Val að hann yrði ekki áfram með liðið á næsta ári. Hlutir sem áttu sér stað í kringum og eftir þann leik sitja enn í honum, þó sé enginn bitur­leiki til staðar.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“

Eftir farsælan tíma hjá Vestra tekur Davíð Smári við liði Njarðvíkur í Lengju­deildinni í fót­bolta sem var ekki langt frá því að tryggja sig upp í Bestu deildina á nýaf­stöðnu tíma­bili. Hann er óhræddur við að leggja spilin á borðið varðandi mark­mið sitt með liðið á því næsta.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Þetta verður bara veisla fyrir vestan“

KR og Vestri berjast fyrir lífi sínu í Bestu deild karla í fótbolta. Þau leika hreinan úrslitaleik í lokaumferð deildarinnar á Ísafirði í dag. KR hefur aðeins fallið einu sinni í 126 ára sögu félagsins og mikið undir hjá Vesturbæjarstórveldinu.

Íslenski boltinn