Fótbolti

Refsing Ronaldos opin­beruð og hún er sér­stök

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cristiano Ronaldo gæti spilað aftur með portúgalska landsliðinu í næsta mánuði.
Cristiano Ronaldo gæti spilað aftur með portúgalska landsliðinu í næsta mánuði. Getty/Grzegorz Wajda

Nú er ljóst hvernig portúgalska knattspyrnumanninum Cristiano Ronaldo verður refsað fyrir að hafa yfirgefið herbúðir portúgalska karlalandsliðsins í knattspyrnu eftir leikinn gegn Noregi á dögunum. Hann er dæmdur í bann og sektaður.

Úrskurður aganefndar Knattspyrnusambands Portúgals (FPF) er meðal annars til umfjöllunar í dagblaðinu A Bola.

Ronaldo fær þrjátíu daga bann og sekt upp á 255 evrur, sem samsvarar tæplega 35 þúsund krónum, fyrir að hafa farið heim úr landsliðsverkefninu fyrir leikinn gegn Danmörku í Þjóðadeildinni.

Ronaldo sat á varamannabekknum allan leikinn gegn Noregi á Ullevaal-leikvanginum fyrr í þessum mánuði og fyrir næsta leik, gegn Danmörku, fór hann skyndilega heim í mótmælaskyni.

Ronaldo hélt því síðar fram að landsliðsþjálfarinn Jorge Jesus hefði svikið loforð sem honum höfðu verið gefin.

35 þúsund króna sekt er auðvitað smámunir fyrir Ronaldo sem er á ofurlaunum með liði sínu í Sádi-Arabíu.

Það sem meira er að þar sem næsta verkefni landsliðsins er ekki á dagskrá fyrr en 14. nóvember og atvikið átti sér stað 30. september, daginn fyrir leikinn gegn Danmörku í Kaupmannahöfn, er Ronaldo tiltækur fyrir leikina gegn norræna liðinu (14. nóvember) og Wales í Cardiff (17. nóvember).

Það er því ekkert skrýtið að mörgum þyki þessi refsing vera afar væg og í raun broslegt hversu vel hann sleppur miðað við það að það sé verið að refsa honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×