Upp­gjörið: Stjarnan - Þróttur 0-2 | Fyrsta tap topp­liðsins kom í Garða­bæ

Pálmi Þórsson skrifar
Þróttur mátti þola tap í Garðabæ.
Þróttur mátti þola tap í Garðabæ. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson

Stjarnan lagði topplið Þróttar þegar liðin mættust í Garðabæ í Bestu deild kvenna í fótbolta.

Þróttur hélt vel í boltann en strax á 10. mínútu dúkkaði Hrefna Jónsdóttir með boltann í teignum og gat lítið gert en að koma sínum konum yfir. Eftir þetta mark þéttu Stjörnukonur varnarleik sinn en meira og gáfu fá færi á sér. Þróttarar héldu boltanum og sendu marga leikmenn fram meðan að Stjarna ógnuðu með hraða sínum og krafti.

Það var síðan á 35. mínútu sem eina alvöru færi Þróttar kom en hún Katie Cousins fékk góða fyrirgjöf, tók boltann á kassann og hamraði honum á markið en Auður í markinu varði alveg stórglæsilega og hélt sínum konum í forystu.

Þannig stóðu leikar í fyrri hálfleik Stjörnukonur yfir en Þróttarar alltaf að hóta að koma sér inn í leikinn.

Seinni hálfleikur fór hægt af stað og var hálf tíðindalítill. Bitlausar sóknir frá Þrótti og svo skyndisóknir frá Stjörnunni sem urðu ekki að alvöru færum. En svo á 83’ mínútu fékk varamaðurinn hún Fanney Lísa boltann inn í teig og renndi honum á Úlfu Dís Kreye sem þrumaði honum í hornið og innsiglaði 2 - 0 sigur fyrir Stjörnuna en þetta reyndust lokatölur.

Atvik leiksins

Atvik leiksins verður að vera þegar Auður Sveinbjörnsdóttir varði skot Katie Cousins en ef Katie hefði skorað úr þessu færi þá hefði vörn Stjörnurnar sennilega opnast meira og fleiri mörk hefðu verið skoruð í leiknum.

Stjörnur og skúrkar

Títtnefnd Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving er klárlega stjarna þessa leiks en fyrir utan þessa stórkostlegur vörslu í fyrri hálfleik þá var hún örugg í öllum sínum aðgerðum og varði allt sem hún átti að verja. Eitthvað sem spekingarnir segja oft.

Dómarar

Þorfinnur Gústaf var með flautuna og engin vafa atriði sem hægt er að setja út á. Guðni Freyr og Tomasz Piotr voru með flöggin og var samvinna þeirra þriggja bara mjög góð. Héldu góðu flæði á leiknum.

Stemming og umgjörð

Stemmingin í Garðabænum var góð að vana. Sól og blíða en aðeins um 200 manns á leiknum sem þó létu vel í sér heyra. Flest þeirra gerðu sér ferð alla leið úr Laugardalnum.

Alltaf fúlt að tapa en hrós á Stjörnuliðið

Ólafur á hliðarlínunni.vísir / anton brink

„Spiluðu þennan leik vel. Þéttar varnarlega og komu með góða stungu sóknir á okkur sem að við réðum ekki við. Verðskuldaður sigur Stjörnunnar,” sagði Óli strax eftir leik.

Þróttur lagði leikinn þannig upp að þær ætluðu að halda svolítið í boltann en gekk illa að skapa færi. Er það áhyggjuefni?

„Stjarnan gerði mjög vel í að loka á okkur. En ef þú hefðir sagt við mig fyrir mót 22 stig eftir 9 leiki þá hefði ég þegið það. En það sem var í þessum leik til að taka hann út þá var flæðið í spilinu og ákefðin var var ekki nægilega mikil. Stjarnan lokaði virkilega vel á okkur á köntunum og svona stoppaði okkur þegar við vorum að skipta á milli kanta. Við vorum heldur ekki að ógna nægilega mikið djúpt. Þannig það var fullt af svona atriðum sem að þær náðu að þvinga okkur í sem að við leystum illa. Þannig bara hrós á Stjörnuliðið fyrir að leggja leikinn vel upp. Og að sama skapi umhugsunarefni fyrir mig að koma ekki með betri lausnir. Segi ekki að það sé áhyggjuefni. Það er leikur núna eftir viku tæpa. Svo förum við í frí. Við þurfum að vera klárar í þessu þetta eru ágætis punktar til að taka með í framhaldið.”

En framhaldið er einmitt seinni umferðin í deildinni og stefnir þetta í þriggja hesta hlaup um titilinn í ár?

„Ég hef ekki hugmynd um það. Eins og ég sagði fyrir leik. Við horfum ekkert í töfluna. Við söfnum bara stigum og til að safna stigum þarftu góða frammistöðu. Við náðum því ekki í dag. Frammistaða okkar var ekki nægilega til að vinna og verðskuldaður Stjörnusigur. Svo er þetta bara með töfluna. Þú mátt ekki ef þú ert neðarlega að fara í “panic” eða ef þú ert ofarlega að vera ofsa kátur. Bara halda áfram að sigla í gegnum tímabilið og muna hvað gefur þér stigin. Það er svona það sem við þurfum að vinna en það er geysileg tilhlökkun fyrir restinni af sumrinu og væri fáránlegt að segja eitthvað annað og leggjast í eitthvað þunglyndi. Auðvitað er maður fúll að tapa leik en það kemur fyrir bestu lið að tapa leikjum. Það er eins og maðurinn sagði það er hvernig maður kemur út úr tapinu. Hvernig þú reisir þig en ekki að tapið skilgreini mann,” sagði Óli að lokum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira