Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 0-2 | Blikar ekki í vandræðum í Eyjum 15. júní 2025 15:16 Íslandsmeistararnir sigla heim með þrjú stig. vísir/Diego Íslandsmeistarar Breiðabliks gerður sér góða ferð til Vestmannaeyja þegar þeir lögðu ÍBV 0 - 2 á Þórsvelli í 11. umferð Bestu deildar karla. Með sigrinum skellir Breiðabliks sér á toppinn í bili en Víkingar eiga þó leik til góða á morgun. Leikurinn fór hægt af stað og var mjög lokaður stærstan hluta leiksins. Eyjamenn voru þéttir til baka og freistuðu þess að beita skyndisóknum á meðan gestirnir Kópavoginum stýrðu leiknum. Fyrsta mark leiksins leit dagsins ljós á 20. mínútu leiksins og það var sjálfsmark. Ágúst Orri Þorsteinsson vann þá boltann með glæsilegri tæklingu á miðjum vellinum og brunaði fram áður en hann sendi knöttinn fyrir. Boltinn fór af Sigurði Arnari Magnússyni og þaðan í netið. Vissulega mikil heppni yfir þessu marki en það verður að gefa Ágústi mikið lof fyrir þetta líka. ÍBV fékk gott tækifæri til að jafna leikinn undir lok hálfleiksins þegar Vicente Valor átti frábæra fyrirgjöf sem Arnari Breka tókst ekki að stýra á markið og það var því Breiðablik sem hélt inn í Þórsheimilið með 1-0 forystu þegar flauta var til leikhlés. Seinni hálfleikur spilaðist svipað og sá fyrri, Breiðablik með tögl og hagldir á leiknum á meðan ÍBV varðist vel og fékk vissulega sín tækifæri til að jafna leikinn. Tobias Thomsen skoraði annað mark Breiðabliks á 76. mínútu leiksins og gerði það eftir frábæran undirbúning frá Valgeiri Valgeirssyni. Eftir mikið klafs á miðjum vellinum vann Valgeir boltann og brunaði fram völlinn áður en hann þræddi Tobias inn með frábærlega tímasettri sendingu. Fleira markvert gerðist ekki í þessum leik og það voru því Íslandsmeistararnir sem fóru heim með stigin þrjú úr Eyjum í tilþrifa litum leik eins og áður segir. Atvik leiksins Setjum það á þetta sjálfsmark. Ágúst vinnur boltann glæsilega á miðjum vellinum og þennan rosalega sprett sem endar með marki. Þetta er alveg dæmigert mark um það hvernig þú skapar þína eigin heppni stundum og Ágúst gerði það heldur betur hér í dag. Stjörnur og skúrkar Ágúst Orri var frábær í dag og fær maður leiksins. Þá átti Valgeir Valgeirsson líka mjög fínan dag. Það er ómögulegt að velja skúrk úr svona leik annars. Dómarinn Þeir félagar voru með allt upp á 10 í dag og enginn að væla yfir neinu. Stemning og umgjörð Það var góð mæting hjá stuðningsmönnum Breiðabliks í dag sem sungu og trölluðu allan leikinn og gjörsamlega áttu stúkuna. Besta deild karla ÍBV Breiðablik