Innlent

Daði ekki í stöðu til að meta hvaða fundir eru mikil­vægari en aðrir

Vésteinn Örn Pétursson og Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifa
Bergþór Ólason þingflokksformaður Miðflokksins. 
Bergþór Ólason þingflokksformaður Miðflokksins.  Vísir/Vilhelm

Þingflokksformaður Miðflokksins segir koma sér á óvart að Daði Már Kristófersson starfandi atvinnuvegaráðherra hafi verið á vinnufundi á vegum Viðreisnar í Smiðju meðan stjórnarandstaðan boðaði hann á þingfund á laugardag. Það sé ekki Daða að meta hvaða fundir séu mikilvægari en aðrir þegar hann er boðaður með þessum hætti. 

Heitar umræður urðu á Alþingi í dag vegna þingfundarins á laugardaginn, meðal annars vegna þess að þá hafði tillögu um nefndarvísan frumvarpsins verið frestað þar til í dag en verulega hitnaði í hamsi þegar mætingarleysi Daða á fundinn var til umræðu. 

Fyrr í kvöld var samþykkt tillaga um að frumvarpinu skyldi vísað til atvinnuveganefndar í stað efnahags- og viðskiptanefndar. Stjórnarandstaðan hafði lagt fram að því yrði frekar vísað í hina síðarnefndu nefnd þar sem um skattamál væri að ræða, líkt og Bergþór Ólason þingflokksformaður Miðflokksins sagði í samtali við fréttamann fyrr í kvöld. 

Nokkrum sögum fer af því hvers vegna Daði mætti ekki á þingfundinn á laugardaginn en í óundirbúnum fyrirspurnum í dag, eftir að stjórnarandstaðan lét spurningum þess efnis rigna yfir hann, sagðist Daði hafa haft öðrum skyldum að gegna. Hann hafði ætlað sér að mæta undir lokin en þingfundinum verið slitið fyrr en áætlað var. 

Bergþór gefur lítið fyrir þessar skýringar. 

„Okkur er í tvígang sagt að það sé verið að sækja hann í hús. Hann sé fastur í erindagjörðum, væntanlega opinberu, og sé væntanlegur. Síðan kemur í ljós að Daði sat í húsi allan tímann á einhverjum vinnufundi Viðreisnar.“

Í umfjöllun Mbl.is um málið segir að ef marka má myndir á samfélagsmiðlum hafi hann verið á vinnustofu á vegum grasrótar Viðreisnar sem hét „Við erum í rík­is­stjórn. Hvað nú?“.

„Hann er ekki í þeirri stöðu að meta hvaða fundur er mikilvægur og hver ekki í þessu samhengi. Þegar búið er að gera boð eftir ráðherranum þá ber honum að mæta og sérstaklega þegar hann er í húsi. Þetta er sérstök gerð af hroka og vanvirðingu í garð þingsins.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×