Leik lokið: Valur-Þróttur 1-3 | Þróttur fylgir Blikum eins og skugginn Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 8. maí 2025 19:52 Þróttarar eru að byrja tímabilið afar vel. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson Þróttarakonur jöfnuðu við Blika á toppnum eftir að hafa sótt þrjú stig á Hlíðarenda í Bestu deild kvenna í kvöld. Þróttur vann leikinn 3-1 eftir að staðan var 1-1 í hálfleik. Valskonur byrjuðu vel og komust yfir en Þróttur jafnaði fyrir hálfleik og komst síðan yfir í upphafi seinni hálfleiks. Lillý Rut Hlynsdóttir kom Val í 1-0 en Þórdís Elva Ágústsdóttir jafnaði tuttugu mínútu síðar. Freyja Karín Þorvarðardóttir skallaði boltann í markið í fyrstu sókn seinni hálfleiks og María Eva Eyjólfsdóttir innsiglaði síðan sigurinn tíu mínútum fyrir leikslok. Valskonur hafa þar með tapað tveimur leikjum í röð en Þróttarar eru taplausar með fjóra sigra í fimm leikjum. Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi á eftir. Besta deild kvenna Valur Þróttur Reykjavík