Bíó og sjónvarp

Happy Gilmore snýr aftur í sumar

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Happy Gilmore mundar kylfuna meðan kaddýinn og áhorfendur fylgjast spenntir með.
Happy Gilmore mundar kylfuna meðan kaddýinn og áhorfendur fylgjast spenntir með. Netflix

Happy Gilmore snýr aftur á golfvöllinn eftir tæplega þrjátíu ára fjarveru þann 25. júlí þegar framhald sígildu golfgrínmyndarinnar kemur út á Netflix. Ný stikla úr myndinni var frumsýnd í dag.

Framhaldsmyndin ber hinn einfalda titil Happy Gilmore 2. Sögurþráður myndarinnar er illgreinanlegur af stiklunni nema hvað Gilmore virðist vera að snúa aftur á golfvöllinn eftir margra ára fjarveru og þarf þar að etja kappi gegn sumum af bestu golfurum heims.

Þrátt fyrir fjarveru frá golfinu er krafturinn í Gilmore enn töluverður sem sést í góðri golfhermissenu í stiklunni.

Þó nokkrir karakterar snúa aftur úr fyrstu myndinni, þar á meðal Virginia Venit (Julie Bowen), Shooter McGavin (Christopher McDonald), elliheimilisstarfsmaðurinn Hal (Ben Stiller), besti vinurinn Otto (Allen Covert) og mótsstjórinn Doug Thompson (Dennis Dugan).

Shooter og Happy elduðu grátt silfur í fyrstu myndinni.Netflix

Þá má sjá fjölda nýrra nafna í myndinni: Benito Antonio Martínez Ocasio, betur þekktur sem Bad Bunny, leikur kaddý, Margaret Qualley, Travis Kelce, Nick Swardson, Benny Safdie og dætur Sandler, Sadie og Sunny.

Leikstjóri myndarinnar er Kyle Newacheck sem hefur áður leikstýrt myndunum Game Over Man! (2018) og Murder Mystery (2019) en Sandler lék aðalhlutverkið í þeirri síðanrnefndu. Handrit myndarinnar skrifa Sandler og Tim Herlihy, einn nánasti samstarfsmaður Sandler sem hefur skrifað flestar mynda leikarans.


Tengdar fréttir

Sjáðu Sandler snúa aftur sem Happy Gilmore í nýrri kitlu

Bandaríska kvikmyndastjarnan Adam Sandler gaf aðdáendum sínum gjöf um hátíðirnar, en þá birti hann svokallaða kitlu fyrir væntanlega framhaldsmynd um Happy Gilmore, sem er væntanleg á Netflix á næsta ári.

Sandler vinnur að Happy Gilmore 2

Leikarinn Adam Sandler er sagður vinna að framhaldi myndarinnar Happy Gilmore frá árinu 1996. Leikarinn Christopher McDonald, sem lék illmennið Shooter McGavin í myndinni, segir Sandler þegar búinn að skrifa handrit.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.