Ólafur Björn Loftsson, afreksstjóri Golfsambands Íslands, hefur valið landsliðin sem taka þátt á Evrópumótum kvenna, karla, stúlkna og pilta. Evrópumót kvenna fer fram í Frakklandi og karlaliðið leikur á Írlandi. Stúlknalandsliðið leikur í Englandi og piltalandsliðið í Ungverjalandi.
Íslandsmótið í holukeppni er í fullum gangi á Hlíðavelli í Mosfellsbæ og nú er 16 manna útsláttarkeppnin hjá körlunum hafin, eftir tveggja hringja höggleik í gær og bráðabana um síðustu lausu sætin.
Það þurfti fjögurra kvenna bráðabana til að skera úr um það hver fengi sextánda og síðasta sætið inn í útsláttarkeppnina á Íslandsmóti kvenna í holukeppni, á Hlíðavelli í Mosfellsbæ í gær.
Nóttina áður en J.J. Spaun tryggði sér rúmlega hálfan milljarð króna, með því að vinna risamót í golfi í fyrsta sinn í gær, þurfti hann að rjúka út í apótek til að ná í lyf fyrir unga dóttur sína.
Sam Burns er enn í efsta sæti, fjórum höggum undir pari, eftir þriðja keppnisdag Opna bandaríska meistaramótsins í golfi og gæti síðar í dag lyft sínum fyrsta risamótstitli á loft. Aðeins fjórir kylfingar eru undir pari eftir þrjá keppnisdaga.
Þó kylfingurinn Rory McIlroy sé ekki í besta skapinu þessa dagana þá ræddi hann stuttlega við fjölmiðla eftir keppni dagsins á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi. Hann komst í gegnum niðurskurðinn en var ekki viss hvort það væri yfir höfuð jákvætt.
Eftir tvo keppnisdaga á hinum erfiða Oakmont golfvelli eru aðeins þrír kylfingar með skor undir pari á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi. Ríkjandi meistarinn Bryson DeChambeau missti af niðurskurðinum.
Bandaríkjamaðurinn JJ Spaun er einn með forystuna eftir fyrsta hring á Opna bandaríska mótinu í golfi og honum tókst að sleppa alfarið við skolla á Oakmont Country Club vellinum í dag.
Það var mikið fjör í Vík í Mýrdal um Hvítasunnuhelgina þar sem fjöldi manns kom saman og keppti í fjórum íþróttagreinum, á sérstakri íþróttahátíð til minningar um Pálma Kristjánsson.
Andrea Bergsdóttir hefur verið að gera frábæra hluti á LET Access mótaröðinni í golfi, næststerkustu atvinnumótaröð Evrópu, og hreinlega flogið upp stigalista mótaraðarinnar. Hún jafnaði besta árangur Íslendings um helgina.
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins hefur miklar áhyggjur af hugmyndum um uppbyggingu 300 íbúða á svokölluðum framtíðarreit við 27. holu á golfvellinum við Korpúlfsstaði í Grafarvogi. Hann gagnrýnir skort á samráði við Golfklúbb Reykjavíkur en samkvæmt upplýsingagátt borgarinnar er ekkert fast í hendi.
Gunnlaugur Árni Sveinsson verður í dag fyrstur Íslendinga til að taka þátt í Arnold Palmer bikarnum, sterkasta áhugakylfingamóti heims. Hann spilar í dag með hinni sænsku Meju Örtengren.
Íslandsmótið í holukeppni kvenna fer fram á Hlíðavelli í Mosfellsbæ 20. - 23. júní. Til stóð að mótið færi fram viku fyrr, á Urriðavelli í Garðabæ 13.-15. júní, en eftir mat á vallaraðstæðum var ákveðið að færa mótið.
Dagbjartur Sigurbrandsson náði ekki að tryggja sér sæti á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi, hann endaði jafn í 38. sæti á lokaúrtökumóti í Columbus, Ohio í Bandaríkjunum í gær. Dagbjartur var í tólfta sæti eftir fyrri hringinn en sá seinni reyndist honum erfiður.
Heiðrún Anna Hlynsdóttir úr Golfklúbbi Selfoss og Jóhannes Guðmundsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur hömpuðu bæði Hvaleyrarbikarnum í fyrsta sinn í gær. Heiðrún vann afgerandi sigur í kvennaflokki en Jóhannes tryggði sigur í karlaflokki í bráðabana.
Dagbjartur Sigurbrandsson tekur þátt í lokaúrtökumóti fyrir opna bandaríska meistaramótið í golfi í dag. Í holli með honum er þrefaldi risamótsmeistarinn Padraig Harrington og Svíinn Alex Noren, sem er með tíu sigra á Evrópumótaröðinni.
Scottie Scheffler vann Minningarmótið annað árið í röð, titill sem einungis Tiger Woods hafði áður tekist að verja. Scheffler vann mótið með yfirburðum, fjórum höggum betur en næsti maður á eftir, og hefur nú unnið þrjú af fjórum mótum síðastliðinn mánuð.
Andrea Bergsdóttir náði sínum besta árangri á tímabilinu þegar hún hafnaði í fjórða sæti á Santander golfmótinu á LET Access mótaröðinni. Andrea var í efsta sæti fyrir lokahringinn á Naturavila golfvellinum í dag en endaði einu höggi á eftir efstu þremur kylfingunum.