Nítján af 21 útskrifaðir af sjúkrahúsi Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 18. febrúar 2025 17:07 Enginn slasaðist alvarlega í slysinu, sem er nú til rannsóknar hjá Samgöngustofnun Kanada. AP Allir þeir farþegar sem fluttir voru á sjúkrahús eftir að flugvél Delta endaði á hvolfi á flugbraut á Toronto Pearson flugvellinum í gærkvöldi eru útskrifaðir af sjúkrahúsi, nema tveir.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Delta sem Reuters hefur eftir. Áttatíu manns voru um borð í flugvélinni þegar hún skall harkalega í jörðina við lendingu og endaði á hvolfi. Þar af var 21 fluttur á sjúkrahús en samkvæmt kanadískum miðlum voru upplýsingar um ástand hinna slösuðu á nokkru reiki í dag. Samgöngustofnun Kanada hefur þegar hafið rannsókn á slysinu, og hvernig flugvélin, sem er af gerðinni CRJ900, gæti hafa hvolft þegar henni var lent á flugvellinum. Tildrög slyssins liggja ekki enn fyrir en líklegt er að orsakaþættir hafi verið fleiri en einn. Á myndbandsupptöku af slysinu sést að að minnsta kosti annar vængur flugvélarinnar hafði losnað af vélinni þegar hún skall í jörðina. Samkvæmt upplýsingum frá Toronto Pearson flugvellinum í gær voru miklir vindar og kuldi á flugvellinum í gær en óveður olli raski á flugi um flugvöllinn um helgina.
Kanada Fréttir af flugi Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Sjá meira