Viðskipti innlent

Lætur af störfum hjá Stöð 2 eftir tuttugu ára feril

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Eva hefur samið um starfslok hjá Sýn eftir 20 ára feril á miðlum félagsins.
Eva hefur samið um starfslok hjá Sýn eftir 20 ára feril á miðlum félagsins.

Eva Georgs. Ásudóttir, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2, hefur samið um starfslok hjá Sýn. Hún hefur starfað á stöðinni frá árinu 2005. 

„Eftir tuttugu ára starf hjá Stöð 2 hef ég samið um starfslok hjá Sýn. Það hefur verið einstakt að fá að vera hluti af því magnaða teymi sem hefur staðið á bakvið fjölmiðla Sýnar á þessum tíma. Það hefur varla komið sá dagur þar sem ég hef ekki hlakkað til að mæta í vinnuna og takast á við verkefnin framundan við hlið frábærra vinnufélaga sem vinna af ástríðu og metnaði alla daga,“ segir Eva.

Lítur stolt um öxl

Hún sé þakklát fyrir þau tækifæri sem hún hafi fengið til að vaxa og dafna í starfi, fyrst á fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar, síðar í innlendri þáttagerð og loks sem sjónvarpsstjóri. 

„Verkefnin hafa verið mörg og ólík en bara á síðasta ári fórum við í endurmörkun á dagskrárstefnu Stöðvar 2, efldum innlenda framleiðslu, opnuðum fréttagluggann, fengum sýningarréttinn að enska boltanum og nú í desember voru fleiri áskrifendur að Stöð 2+ en nokkru sinni fyrr. Ég lít stolt um öxl og óska öllu mínu góða samstarfsfólki hjá Sýn alls hins besta með framhaldið.“

Þrátt fyrir að hafa samið um starfslok tekur Eva fram að þau taki ekki þegar gildi. Hún hafi ekki ráðið sig í annað starf og óráðið sé hvað taki við hjá henni þegar að starfslokum kemur.

Þakkar fyrir dýrmætt framlag

Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar, þakkar Evu fyrir dýrmætt framlag hennar til miðla Sýnar á tuttugu ára starfsferli hennar.

„Eva er sterkur leiðtogi, fagmanneskja fram í fingurgóma og hefur veitt okkur sem höfum unnið með henni innblástur með ástríðu sinni. Við óskum Evu alls hins besta í þeim verkefnum sem hún tekur sér fyrir hendur næst,“ segir Herdís.

Vísir er í eigu Sýnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×