Þetta væri enn einn sorgardagurinn í atvinnumálum þeirra Skagamanna, nú þegar Skaginn 3x hefði óskað eftir gjaldþrotaskiptum.
Skaginn 3x einn stærsti vinnustaður Akraness
Gjaldþrot rótgróna fyrirtækisins þýði að 128 fjölskyldur missa lífsviðurværi sitt, en 100 af þeim 128 sem þar störfuðu búi á Akranesi og í nágrenni þess. Vilhjálmur segir að Skaginn 3x hafi verið einn stærsti vinnustaður Akraness. Fjöldinn allur af afleiddum störfum tapist einnig samhliða gjaldþrotinu.
Til að setja gjaldþrotið í samhengi segir hann að miðað við höfðatölu væri þetta eins og 2.400 manns misstu vinnuna í Reykjavík.
Hamfarir í atvinnumálum dynja á Skagamenn
„Mér er það til efs að nokkurt sveitarfélag hafi þurft að þola eins miklar hamfarir í atvinnumálum eins og við skagamenn, að undanskildum vinum okkar í Grindavík,“ segir Vilhjálmur.
Fyrir nokkrum árum hafi öllum sjávarútvegi verið rústað á Akranesi þökk sé fyrirkomulagi fiskveiðistjórnunarkerfisins. Árið 2017 hafi Brim til að mynda fært alla sína starfsemi til Reykjavíkur. Einnig væri rétt að rifja upp að árið 2004 voru 250 manns í vinnu hjá fiskvinnslufyrirtækinu Haraldi Böðvarssyni á Akranesi. Það ár hafi 170 þúsund tonnum verið landað og fyrirtækið greitt á þriðja milljarð í laun. Það væri allt farið í dag.

Þá hafi möguleikum Skagamanna á veiðum og vinnslu hvalaafurða verið „slátrað með handónýttri og ólöglegri stjórnsýslu stjórnvalda og þrýstingi frá öfgafólki.“
Skorar á fyrirtæki að hefja starfsemi á Akranesi
„Ég skora á fyrirtæki að skoða möguleika á að hefja starfsemi hér á Akranesi,“ segir Vilhjálmur. Biðja ætti öflug fyrirtæki að skoða þann möguleika að hefja starfsemi í bænum, og athuga hvað hægt væri að gera til að hvetja þau til að flytja starfsemina á Skagann.
Þótt allir innviðir á Akranesi væru til fyrirmyndar, blasi við að Akurnesingum hafi ekki tekist að efla atvinnulífið í bænum.
Enginn sjávarútvegur væri eftir, ekkert hótel, sem leiði til þess að Akranes væri ekki með í ferðaþjónustunni.
„Við verðum að fara að opna augun fyrir þessum staðreyndum og krefjast þess að stjórnvöld, bæjarstjórn og við öll ráðumst í eflingu á gjaldeyrisskapandi atvinnutækifærum okkur Akurnesingum til hagsbóta,“ segir Vilhjálmur.