„Ríkisstjórnin verður að hætta að hringja í lögregluna“ Jakob Bjarnar skrifar 13. júní 2024 12:34 Bjarni taldi ekkert athugavert við bréf dómsmálaráðherra sem gerði athugasemd við bréfaskrif Sigurðar Inga Jóhannssonar fjármálaráðherra til lögreglunnar. „Við munum ekki líða pólitísk afskipti af ákæruvaldinu eða frumkvæði lögreglunnar,“ sagði forsætisráðherra. vísir/vilhelm Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir Viðreisn beindi fyrirspurn til Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra í fyrirspurnartíma nú rétt í þessu. Fyrirspurnin sneri meðal annars að bréfaskrifum Sigurðar Inga Jóhannssonar fjármálaráðherra til lögreglunnar. Hún snéri þá uppá mál sitt og minnti á afskipti Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur þá dómsmálaráðherra af vinnubrögðum lögreglu.
Þorbjörg Sigríður telur að um algjört grundvallaratriði í réttarríki sé að ræða, varðar pólitísk afskipti fjármálaráðherra af lögreglunni. Alvarleg afskipti Sigurðar Inga af störfum lögreglu Þorbjörg Sigríður vildi vita afstöðu Bjarna til málsins, hvort hann tæki undir með Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra sem hefur gert athugasemdir við bréf Sigurðar Inga sem vill að lögreglan skoði nánar netsölu með áfengi. „Aldrei þessu vant voru ráðherrar að rífast um atriði sem einhverju máli skipta. Reyndar voru ráðherrar þar að takast um algjör grundvallaratriði í siðuðum samfélögum. Um það hvort lögregla og ákæruvald geti sætt pólitískum afskiptum.“ Þorbjörg Sigríður rakti málið. „Bréfs þar sem fjármálaráðherra bendir lögreglu á starfsemi sem kunni að fara í bága við lög. Vitneskja um þessi mál lágu hins vegar alveg fyrir. Í bréfinu minnir hann lögreglu á að í kæru sem lögregla hafi áður verið með til rannsóknar hafi tiltekin atriði ekki verið skoðuð nægilega. Sú rannsókn stendur yfir skv. Grími Grímssyni yfirlögregluþjóni. Sem gerir þessi afskipti enn alvarlegri.“ Búum við í réttarríki? Þorbjörg Sigríður segir dómsmálaráðherra eðlilega hafa stigið fram og bent á hið augljósa sem er að lögregla og ákæruvald geta aldrei lotið pólitískum afskiptum. Enginn ráðherra geti beint tilmælum til lögreglu um það að hefja rannsókn. Lögregla sjái um það og ákæruvaldið – og enginn annar. Þorbjörg Sigríður sagði augljóst að Sigurður Ingi hafi verið kolrangstæður en hún snéri síðan upp á fyrirspurn sína og spurði hvort það væri í lagi að Áslaug Arna þá dómsmálaráðherra hefði afskipti af lögreglu?vísir/vilhelm „Þá komu viðbrögð fjármálaráðherra þar sem hann segir það áhugavert að dómsmálaráðherra hafi brugðist við bréfasendingum hans til lögreglunnar. Hann bætir raunar um betur og á honum má skilja að það hefði verið athafnaleysi hjá honum hefði hann ekki skrifað lögreglunni.“ Þorbjörg Sigríður sagði að um algjört grundvallaratriði að ræða og hún spurði Bjarna hvort hann tæki undir með Guðrúnu? „Búum við nokkuð í landi þar sem ráðherrar telja það beinlínis skyldu sína að senda lögreglunni bréf eins og þessi – með ábendingum um mál til að skoða?“ Ráðherra rangstæður Bjarni taldi ekkert í bréfi dómsmálaráðherra geti verið umdeilt, ekki neitt og um er um að ræða grundvallaratriði. Og hann taldi að á þinginu hlyti að vera alger samstaða um það. „Við munum ekki líða pólitísk afskipti af ákæruvaldinu eða frumkvæði lögreglunnar. Það breytir því ekki að það er eitthvert svigrúm fyrir ráðherra, eftir atvikum forstöðumenn stofnana, til að vekja athygli á einhverjum stöðum og það er það sem hæstv. fjármálaráðherra taldi sig vera að gera.“ Bjarni taldi rétt að reyna að halda sig við umræðuefnið sem væri netsala á áfengi.vísir/vilhelm Þorbjörg Sigríður steig þá aftur í pontu og sagði þetta kennslubókardæmi um pólitísk afskipti af lögreglu. „Afskipti sem ekki er hægt að skilja öðruvísi en að ráðherra þyki tilefni til að lögregla hefji skoðun á ákveðnu máli.“ Því hvert var markmið með bréfinu annað en að ýta við lögreglunni? „Ráðherrann er rangstæður. Og ég vona að dómsmálaráðherra sé ekki eini ráðherrann sem stendur vörð um þessar grundvallarreglur. Ráðherra sendir ekki hugleiðingu dagsins um hvern skal rannsaka.“ En hvað með afskipti Áslaugar Örnu? En þá sneri Þorbjörg Sigríður uppá málið og benti á að þetta væri ekki í fyrsta skipti sem hefur þurft að minna á þessar grunnreglur. „Síðast voru það símhringingar þáverandi dómsmálaráðherra beint í lögreglustjóra á aðfangadag.“ Þarna minnti Þorbjörg Sigríður á mál sem vakti verulega athygli þegar Bjarni sjálfur var gripinn innan landhelgi og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir þá dómsmálaráðherra hlutaðist til um málið. „Síðast voru það símhringingar þáverandi dómsmálaráðherra beint í lögreglustjóra á aðfangadag. Skyndilegur áhugi hafði þá kviknað á reglum um upplýsingagjöf lögreglu til fjölmiðla í kjölfar frétta um rannsókn lögreglu á ætluðum lögbrotum í Ásmundarsal, þar sem annar ráðherra hafði verið viðstaddur. Lögreglustjóri fékk tvö símtöl beint frá dómsmálaráðherra á aðfangadag. Forseti, ríkisstjórnin verður að hætta því að hringja í lögregluna eða senda henni bréf. Búum við ekki í réttarríki?“ spyrði Þorbjörg Sigríður. Vill frekar ræða um netsölu á áfengi Bjarni taldi betra að verja tímanum í hið undirliggjandi lagalega álitaefni sem er tilefni af þessum skoðanaskiptum öllum sem er að hér hefur netverslun með áfengi vaxið umtalsvert að því er virðist. „Það eru skilaboðin sem við fáum innan úr kerfinu. Reyndar er athyglisverð staðreynd að netverslun virðist geta boðið áfengi á lægra verði en ÁTVR. Það er athyglisverð staðreynd og það hefur myndast ákveðið lagalegt tómarúm vegna þess að gömul lög tók ekki tillit til þess með hvaða hætti netverslun gæti rutt sér til rúms á þessum vettvangi.“ Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar var fljótur að átta sig á því í hvers konar net flokkssystir hans, Þorbjörg Sigríður, var búin að flækja forsætisráðherra í.Vísir/Vilhelm Bjarni sagði að því hafi Sjálfstæðismenn talað fyrir því að það væri tímabært að koma með frumvarp sem ekki hefur tekist samstaða um til að skerpa línurnar um það „hvernig menn ætli að ramma inn verslun sem færi fram í gegnum netið er lokið óundirbúnum.“ Sigmar Guðmundsson Viðreisnarmaður fór einnig í pontu og sagði að hér væri verið að ræða grundvallaratriði réttarríkis, ekki netsölu með áfengi. Og það væri sem sagt í lagi ef ráðherra Sjálfstæðisflokksins hefði afskipti af lögreglu en ekki þegar ráðherra Framsóknarflokksins gerði það?
Alþingi Ráðherra í Ásmundarsal Sjálfstæðisflokkurinn Viðreisn Áfengi og tóbak Netsala á áfengi Mest lesið Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Innlent Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Erlent Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Dregur úr vindi en áfram vetrarveður Veður Jólakindin Djásn á Stokkseyri Innlent Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Innlent Alls kyns jól um allan heim Erlent Þak fauk nánast af hlöðu Innlent Fleiri fréttir Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Jólakindin Djásn á Stokkseyri Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Standa vaktina við lokunarpósta á jóladag Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Þak fauk nánast af hlöðu Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Útköll víða vegna óveðurs Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Appelsínugular viðvaranir og jólaboð hjá Hjálpræðishernum Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Gleðileg jól, kæru lesendur Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara Varað við ferðalögum víða um land Margir á síðasta snúningi með jólapakkana Í sumum tilfellum eina hátíðlega stund dagsins Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Vonskuveður og þau sem eru á síðasta snúningi Fjúgandi hálka í kirkjugörðum Reykjavíkur Stolið hálsmen Tolla dúkkaði upp tuttugu árum síðar Nóg að gera hjá slökkviliðinu í nótt Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? „Skiptir sannleikurinn engu máli?“ Fjölmenni gekk fyrir frið í miðborginni Rútur skildar eftir á Holtavörðuheiði og leiðinni lokað Sjá meira