Hræðilegur endir hjá Martin og félögum og útlitið svart Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. júní 2024 17:03 Bæjarar bíða en Martin Hermannsson og félagar þurfa einn sigur í viðbót. Getty/Bruno Dietrich Alba Berlin er komið 2-1 undir í undanúrslitaeinvígi sínu í úrslitakeppni þýska körfuboltans.
Alba Berlin tapaði þá öðru sinni í þremur leikjum á móti Niners Chemnitz, nú með tólf stigum, 84-72. Alba var reyndar í fínum málum í þessum leik þar til að leikur liðsins hrundi í lokaleikhlutanum sem tapaðist með tuttugu stiga mun, 31-11. Martin Hermannsson átti mjög erfiðan dag. Fann sig engan vegin og endaði með eitt stig, tvær stoðsendingar og eitt frákast á rúmum nítján spiluðum mínútum. Martin klikkaði á öllum þremur skotunum sínum í leiknum og tapaði líka þremur boltum þar af tveimur í lokaleikhlutanum. Alba tapaði þeim mínútum sem hann spilaði með fimmtán stigum. Staðan er því 2-1 fyrir Chemnitz en það liðs sem fyrr vinnur þrjá leiki fer í úrslitaeinvígið. Þar bíður Bayern München sem vann sína undanúrslitaviðureign 3-0. Alba Berlin tapaði óvænt fyrsta leiknum á heimavelli en svaraði því með 22 stiga stórsigri í leik tvö. Liðið virtist vera að gefa tóninn strax í byrjun í dag með því að vinna fyrsta leikhlutann 26-14 en það munaði átta stigum í hálfleik, 37-29. Alba var síðan áfram átta stigum yfir fyrir lokaleikhlutann en þá fór allt í baklás. Nú þarf lðið að vinna tvo leiki í röð ætli þeir í úrslitaeinvígið. Næsti leikur er líka á heimavelli Chemnitz.
Þýski körfuboltinn Mest lesið Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks Sport Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta í Hengill Ultra Sport „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fótbolti Fleiri fréttir Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Sjá meira