Play sér ekki lengur fram á hagnað Árni Sæberg skrifar 7. september 2023 11:04 Birgir Jónsson er forstjóri Play. Stöð 2/ARnar Hækkun eldsneytisverðs og aðrar almennar kostnaðarhækkanir hafa neikvæð áhrif á afkomu flugfélagsins Play á seinni hluta ársins 2023. Því gerir félagið ekki lengur ráð fyrir því að afkoma ársins verði jákvæð.
Þetta segir í fréttatilkynningu um farþegatölur ágústmánaðar. Þar segir að félagið hafi flutt 184.926 farþega í ágúst, sem sé 70 prósent aukning frá ágúst í fyrra þegar félagið flutti 108.622 farþega. Sætanýtingin í ágúst hafi verið 88,9 prósent, samanborið við 86,9 prósent í ágúst árið 2022. Stundvísi Play í liðnum ágúst hafi verið 90,1 prósent. Af þeim farþegum sem flugu með Play í ágúst hafi 22,1 prósent verið að ferðast frá Íslandi, 35 prósent til Íslands og 42,9 prósent hafi verið tengifarþegar. Margir áfangastaðir í leiðakerfi Play hafi verið með yfir níutíu prósent sætanýtingu í mánuðinum en þar af hafi Prag, Toronto og Barselóna með yfir 95 prósent sætanýtingu. Meðal hliðartekjur á hvern farþega haldi áfram að aukast, en þær hafi verið þriðjungi hærri í ágúst 2023, samanborið við ágúst 2022. Play sjái fram á áframhaldandi vöxt hliðartekna á komandi mánuðum. Sjá fram á tækifæri til vaxtar en ekki hagnað Þá segir að félagið sjái áfram mörg tækifæri til vaxtar og vinni að því að stækka flota sinn á næstu árum. Play hafi þegar skrifað undir viljayfirlýsingu sem tryggir félaginu tvær nýjar Airbus A320neo farþegaþotur fyrir sumarið 2025. Frekari viðræður standi yfir um stækkun flotans fyrir 2024 og 2025 og greint verði frá niðurstöðu þeirra þegar þeim lýkur. Play sé í góðri stöðu nú þegar hausta tekur og veturinn nálgast. Sætanýting sé umtalsvert hærri sem og tekjur á hvern farþega frá fyrra ári og eftirspurnin á lykilmörkuðum sterk. Félagið sé hins vegar með augun á hugsanlegum áhrifum verðbólgu og hækkandi framfærslukostnaðar á eftirspurnina yfir veturinn. Það þýði að erfiðara mun reynast að spá fyrir um horfur á fjórða ársfjórðungi og lengra fram í veturinn, líkt og önnur flugfélög víða um veröld hafi nýverið verið að greina frá. Eins og fram hafi komið í uppgjörskynningum á undanförnum ársfjórðungum hafi rekstrarafkoma (EBIT) það sem af er ári verið til samræmis við áætlanir stjórnenda sem gerðu ráð fyrir að EBIT afkoma félagsins yrði lítillega jákvæð fyrir árið í heild sinni (FY23). Rekstrarafkoma (EBIT) það sem af er þessum ársfjórðungi hafi verið mjög góð og umtalsverður rekstrarbati átt sér stað, hvort sem horft er til sama tímabils í fyrra eða síðasta ársfjórðungs. Frá lokum síðasta ársfjórðungs (Q2) hafi flugvélaeldsneyti, sem sé langstærsti einstaki kostnaðarliður félagsins, hækkað um fjórðung. Ein af lykilforsendum fyrir afkomuspá ársins hafi verið stöðugt eldsneytisverð og þessi mikla hækkun, ásamt öðrum almennum kostnaðarhækkunum vegna verðbólgu í heiminum, muni hafa neikvæð áhrif á afkomu félagsins seinni hluta ársins 2023. „Því gerum við ekki ráð fyrir að EBIT afkoma ársins 2023 verði jákvæð eins og áður hafði verið spáð en þó er ljóst að um mjög umtalsverðan viðsnúning í rekstri verður að ræða frá fyrra ári og að lausafjárstaða félagsins verði áfram heilbrigð.“ Með því besta í bransanum „Ágúst gekk mjög vel í flugrekstri PLAY þar sem sætanýting var 89% og stundvísi upp á 90% sem er með því besta sem finnst í fluggeiranum. Við nálgumst nú sumarlok og það er þegar ljóst að við erum mjög stolt af frammistöðunni það sem af er ári. Við sjáum enn tækifæri á markaði og höfum þess vegna hafið skipulagningu á frekari vexti á komandi árum. Við höfum staðfest tvær nýjar A320neo farþegaþotur sem bætast við flotann árið 2025 og erum í viðræðum um frekari stækkun í nálægri framtíð. Það er jákvætt að við sjáum enn hærri tekjur á farþega samanborið við fyrra ár og betri sætanýtingu nú þegar veturinn nálgast og eftirspurnin er fremur kröftug á flestum lykilmörkuðum. Við leggjum áfram áherslu á að halda kostnaðargrunninum eins lágum og unnt er og að vera sveigjanleg í leiðakerfinu til aðlagast síbreytilegu umhverfi. Okkar frábæra teymi sem starfar hjá PLAY hefur skilað framúrskarandi starfi og þess vegna er ánægjulegt að sjá áhöfnina okkar hljóta tilnefningu frá USA Today. Þegar þetta er ritað var áhöfnin í fyrsta sæti í kosningu á vegum þessa stóra bandaríska miðils. Þetta er glæsilegt afrek fyrir áhöfnina sem hefur aðeins verið að störfum í tvö ár hjá okkar unga flugfélagi,“ er haft eftir Birgi Jónssyni, forstjóra Play.
Play Fréttir af flugi Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira