Í vikunni munu verkfallsaðgerðir beinast að leikskólum, grunnskólum og höfnum tíu sveitarfélaga og um helgina munu starfsmenn sundstaða og íþróttamiðstöðva hjá enn fleiri sveitarfélögum leggja niður störf.
Verkföll halda áfram í næstu viku með þessu sniði en frá og með 5. júní bætir enn í verkföllin.
Leikskólastarfsmenn og starfsmenn bæjarskrifstofa og ráðhúsa munu leggja niður störf frá 5. júní til 5. júlí. Hafnarstarfsmenn leggja niður störf 5. júní til 16. júní eða 5. júlí. Starfsmenn áhaldshúsa og þjónustumiðstöðva frá 5. júní til 17. júní og starfsmenn sundlauga og íþróttamannvirkja, vinnuskóla og almenningssamgangna fara í ótímabundið verkfall frá og með 5. júní.
Náist ekki að semja ná verkfallsaðgerðirnar til um 2.500 starfsmanna í 29 sveitarfélögum.
Mikill hugur í félagsfólki
Samninganefndir funduðu hjá ríkissáttasemjara síðdegis vegna verkfallsaðgerðanna. Formaður BSRB segir samtalið þokast áfram en enn sé langt í land.
„Ég geng bjartsýn inn á þennan fund en ég á ekki von á því að það komist niðurstaða í kjaradeilunni út frá honum,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.
Mikill hugur sé í félagsfólki.
„Þau sáu að það þýddi ekki að láta þetta misrétti ganga yfir sig og þess vegna leggja þau niður störf.“
Lögðu fram tilboð en enn langt á milli
BSRB hefur haldið því fram að sveitarfélögin séu að brjóta jafnréttislög með því að veita félagsmönnum BSRB ekki sömu kjör og aðrir sem vinni sömu störf á sama vinnustað. Sveitarfélögin hafa hvatt BSRB til að fara með málið fyrir dómstóla og fá úr því greitt hvort um brot á lögum sé að ræða.
„Dómstólaleiðin myndi taka eitt til tvö ár og okkar félagsfólk hefur einfaldlega valið að knýja fram sínar kröfur með aðgerðum.“
Það eru tæpar tvær vikur síðan þið funduðuð síðast hjá ríkissáttasemjara. Hafa komið fram ný tilboð?
„Já, Samband íslenskra sveitarfélaga lagði fram tilboð fyrir helgina og það endurspeglar það að við þokumst nær hvert öðru en það er hinsvegar mjög langt á milli ennþá.“
Kölluð út til að passa barnabörnin
Guðbjörg Guðjónsdóttir var kölluð út í morgun. Leikskólinn hjá einu ömmubarninu var lokaður og næstu daga mun hún taka á móti enn fleiri barnabörnum.
„Ég þyrfti eiginlega að klóna mig. Ég verð líklega með þrjú sem verða í fríi á fimmtudaginn og ég gríp bara tækifærið og fer í gamla hlutverkið mitt, leikskólakennarann,“ segir Guðbjörg sem er fyrrverandi leikskólastjóri.
Hún hafi rætt við foreldra sem margir séu búnir á því eftir Covid, Eflingarverkföll og nú þessi, auk almenns leikskólavanda. Hún verði því í viðbragðsstöðu ef verkföllin dragast. Allir eru þó ekki svo heppnir.
„Þegar ég fór með minn litla í morgun þá sögðu foreldrar að þau væru að taka af sumarfríinu sínu. Það er bara bagalegt að fólk sé búið með fríið áður en fríið byrjar. Þannig að ég bara geri eins og ég get. “
Hún vonar að sveitarfélögin komi til móts við BSRB.
„Ég veit að þetta fólk er svo frábært og við þurfum á því að halda. Þetta er fólkið sem stundum heldur uppi leikskólunum.“
Ekki boðað til annars fundar
Ljóst er þó að verkföllin munu halda áfram þar sem fundur samninganefndanna hjá ríkissáttasemjara í dag bar ekki árangur. Sonja Ýr segir í samtali við Reykjavík síðdegis að fundurinn hafi endað á þeim nótum að ríkissáttasemjari hafi ekki séð tilefni til þess að bjóða til annars fundar.
„Það er bara ennþá það langt á milli deiluaðila. Það verður þó að segjast eins og er að á undanförnum dögum hafa báðir samningsaðilar tekið skref í áttina að hvorum öðrum en það er ennþá mjög langt á milli.“
Þá segir Sonja Ýr að nú þurfi bara að sjá hvað setur. BSRB voni eftir því að sveitarfélögin sýni frekari samningsvilja til þess að reyna að leysa hnútinn sem kjaradeilan er komin í.
„Af því það sem skiptir máli þegar upp er staðið er hvernig fólk upplifir virðingu fyrir sínum störfum og ég held það geti allir sett sig í þau spor að það myndi enginn vilja sætta sig við þær aðstæður að manneskjan við hliðina á þér væri með hærri laun í nákvæmlega sama starfi.“