Minnesota mætti New Orleans Pelicans í leik sem skipti miklu máli er varðar endanlega stöðu liðanna í deildinni. Að lokum vann Minnesota fimm stiga sigur, 113-108. Þó Minnesota hafi unnið leikinn virðist eitthvað vera að í herbúðum liðsins þar sem Rudy Gobert reyndi að kýla Kyle Anderson þegar liðið hafði komið saman í leikhléi.
Rudy Gobert throws a shot at teammate Kyle Anderson during a timeout. pic.twitter.com/dRzi3ALkoJ
— Chris Haynes (@ChrisBHaynes) April 9, 2023
Gobert hefur beðist afsökunar en það má reikna með að Minnesota sendi hann í tímabundið leyfi.
Hvað lokatölur leiksins varðar þá skoraði Karl-Anthony Towns 30 stig í liði Minnesota og tók 8 fráköst. Anthony Edwards skoraði 26 stig og tók 13 fráköst. Hjá Pelicans var Brandon Ingram stigahæstur með 42 stig ásamt því að taka 12 fráköst og gefa 7 stoðsendingar.
Big performances propel the Timberwolves to the W and #8 seed
— NBA (@NBA) April 9, 2023
KAT:
30 PTS, 8 REB, 5 3PM
Ant:
26 PTS, 13 REB, 4 AST, 4 BLK, 4 STL pic.twitter.com/VdDXiyNmTJ
Los Angeles Lakers vann Utah Jazz með 11 stigum, lokatölur 128-117. Lakers mæta Timberwolves í fyrstu umferð umspilsins. Sigurvegarinn úr þeirri rimmu mætir svo Memphis Grizzlies í 1. umferð úrslitakeppninnar.
LeBron James átti góðan leik í liði Lakers og var stigahæstur með 36 stig ásamt því að gefa 6 stoðsendingar og taka jafn mörg fráköst. Að LeBron frátöldum þá skoruðu sex leikmenn Lakers 12 stig eða meira. D‘Angelo Russell skoraði 17 og gaf 5 stoðsendingar á meðan Anthony Davis skoraði 16 og tók 13 fráköst.
Hjá Jazz voru þrír leikmenn með 20 stig eða meira. Kris Dunn skoraði mest eða 26 stig. Hann tók einnig 10 fráköst og gaf 8 stoðsendingar.
LeBron showed out in the Lakers W
— NBA (@NBA) April 9, 2023
36 PTS
6 REB
6 AST
8 3PM
They secure the #7 seed in the West pic.twitter.com/EVFfD7Mivg
Golden State Warriors settu met þegar þeir skoruðu 55 stig í fyrsta leikhluta gegn Portland Trail Blazers. Leiknum lauk með 56 stiga sigri Warriors, lokatölur 157-101.
Stephen Curry var stigahæstur með 26 stig ásamt því að gefa 7 stoðsendingar. Þar á eftir kom Moses Moody með 25 stig, Jordan Poole með 21 stig og Klay Thompson með 20 stig. Hjá Trail Blazers skoraði Skylar Mays 21 stig og gaf 12 stoðsendingar.
The Warriors hit 27 threes in their win to secure the #6 seed
— NBA (@NBA) April 9, 2023
They're only the 4th team in NBA history to record 4 games with 25 or more 3PM in a single season. pic.twitter.com/sKSJPiZ3X8
Los Angeles Clippers vann góðan fimm stiga sigur á Phoenix Suns, lokatölur 119-114. Sigurinn lyfti Clippers upp í 5. sæti sem þýðir að þessi lið mætast í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.
Norman Powell var stigahæstur hjá Clippers með 29 stig á meðan bæði Kawhi Leonard og Russell Westbrook skoruðu 25 stig hvor. Kawhi tók 15 fráköst og gaf 6 stoðsendingar á meðan Westbrook tók 7 fráköst og gaf 8 stoðsendingar.
Hjá Suns var Saben Lee stigahæstur með 25 stig ásamt því að gefa 9 stoðsendingar. Kevin Durant spilaði ekki með Suns en hann var einnig hvíldur í tapinu gegn Lakers nýverið.
Sixth (Nor)Man of the Year.
— LA Clippers (@LAClippers) April 10, 2023
@Kia Performance of the Game pic.twitter.com/K7KZ2bCEiu
Önnur úrslit
New York Knicks 136 – 141 Indiana Pacers
Toronto Raptors 121 – 105 Milwaukee Bucks
Chicago Bulls 103 – 81 Detroit Pistons
Brooklyn Nets 105 – 134 Philadelphia 76ers
Cleveland Cavaliers 95 – 106 Charlotte Hornets
Boston Celtics 120 – 114 Atlanta Hawks
Washington Wizards 109 – 114 Houston Rockets
Miami Heat 123 – 110 Orlando Magic
Oklahoma City Thunder 115 – 100 Memphis Grizzlies
Dallas Mavericks 117 – 138 San Antonio Spurs
Denver Nuggets 109 – 95 Sacramento Kings
THE BRACKET IS SET pic.twitter.com/j7Dn0yxXyy
— NBA (@NBA) April 9, 2023