Manchester City vann 3-2 sigur á Liverpool í enska deildarbikarnum í liðinni viku og er komið í 8-liða úrslit keppninnar. Það fór þó ekki allt stuðningsfólk Man City glatt heim af Etihad-vellinum en unglingsstúlka varð fyrir skelfilegri lífsreynslu.
The Telegraph greinir frá því að 15 ára stúlka hafi fengið plastglas í andlitið sem væri ekki frásögufærandi nema glasið hafði verið fyllt af smápeningum og var kastað úr töluverðri hæð. Hlaut hún höfuðáverka og ör sem mun fylgja henni að eilífu.
Greater Manchester Police have launched an investigation after a teenage #MCFC supporter suffered head injuries after being hit by a full plastic pint pot weighted with coins thrown from #LFC section during Thursday s Carabao Cup clash tie https://t.co/9YEjjvtViM
— James Ducker (@TelegraphDucker) December 23, 2022
Myndbandsupptökur sýna að glasinu var kastað af svæðinu þar sem stuðningsfólk Liverpool var staðsett á vellinum. Ekki hefur tekist að finna sökudólginn en hans er nú leitað. Takist að hafa hendur í hári hans þá mun hann eiga yfir höfði sér lífstíðarbann á bæði Etihad sem og Anfield, heimavelli Liverpool.
Þetta var langt frá því eina atvikið sem er til skoðunar eftir leikinn:
- Stuðningsmaður Man City var rekinn af leikvanginum eftir að hafa gerst sekur um kynþáttaníð í garðs fatlaðs stuðningsmanns Liverpool.
- Smápeningar og reyksprengja var meðal þess sem var hent í fólk.
- Tveir menn voru handteknir eftir að reyna smygla eldfærum, blysum, inn á leikvanginn.
- Ráðist var á 53 ára gamlan mann að leik loknum. Hann þurfti að fara upp á spítala.
Bæði félög hafa fordæmt hegðun stuðningsfólksins sem hagaði sér á þennan hátt.